Leita í fréttum mbl.is

Rúnturinn hjá bloggvinum

Það er ótrúlegt hvað það tekur langan tíma að skoða allt blogg hjá bloggvinum. Ég hef setið við tövuna frá kl.11:30 að skoða blogg og einstöku sinnum farið yfir á annað út frá þeim sem ég hef skoðað.

Ég hef líka hreinsað svolítið til á blogginu mínu eins og Jenný þar sem sum bloggin voru eingöngu virk í kringum kosningar. Svo eru alltaf einn og einn sem hætta eða flytja sig annað. Sumarfrí tilkynna líka margir þessa dagana.

Það sem helst hefur fangað athygli mína á þessum bloggrúnti er bloggið hjá Þorsteini Ingimarssynisem fjallar um staðsetningarbúnað á erlendum konum hér á landi við vinnu sína, það er svínslegt ef satt er og hvar er vinnueftirlit og lögreglueftirlit?

Brasilískst vax hefur verið töluvert í umræðunni á vefsíðum og í blöðum undanfarna mánuði og ekkert lát á. Heiða Bergþóra Þórðardóttir er ein þeirra sem hefur tekið þetta fyrir og gerir grín af þessu með skemmtilegum sans fyrir gagnrýni. Það er af sem áður var þegar við konur þurftum að berjast fyrir því að verða ekki rakaðar að neðan við barnsfæðingu, nú hafa rakarar fæðingadeilda ekkert að gera og engar stolpípur heldur! Það skildi þó aldrei vera að þeir hafi komið þessu í tísku aftur sem höfðu þennan starfa innan fæðingadeildanna? Blush

Að síðustu bendi ég á blogg vinkonu minnar Ástu Ragnheiðar sem bloggar um allsérstakt náttúruundur við Þingvelli, svokallaðar klettagæsir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Ég á enga blogvini

Hvernig eignast maður þannig?

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 27.6.2007 kl. 14:40

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Gísli, ég sendi þér leiðbeiningar inn á gestabókina þína.

Takk fyrir innlitið Beta, vona að ég megi skrifa Beta?

Edda Agnarsdóttir, 27.6.2007 kl. 16:13

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Edda mín takk fyrir ábendingar.  Ég ætla að hendast núna í smá bloggvinatiltekt. Smjúts.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.6.2007 kl. 18:19

4 Smámynd: Arna Lára Jónsdóttir

Best að kvitta fyrir innlitið. Hingað kem ég reglulega til að fá fréttir af Skaganum.

Arna Lára Jónsdóttir, 27.6.2007 kl. 19:34

5 identicon

Kosturinn við bloggvini að þetta eru einstaklingar sem blogga um eitthvað sem maður hefur áhuga á. Sumir kvarta yfir því að bloggvinir commenta ekki hjá sér og henda þeim út.  eg sjálfur er ekki nógu duglegur að commenta en þeim mun duglegri að renna yfir bloggin hjá mínum bloggvinum. þetta eru mjög góðir flýtitakkar að hafa  bloggvinadálkinn til hliðar.

kv. 

Þorsteinn Ingimarsson (IP-tala skráð) 27.6.2007 kl. 21:08

6 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Gaman að sjá ykkur öll. Takk fyrir innlitið.

Edda Agnarsdóttir, 27.6.2007 kl. 23:07

7 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Takk fyrir að vilja vera vinur minn og að hjálpa mér við að ná mér í aðra 

Þetta net og blog er algjör snilld

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 28.6.2007 kl. 22:35

8 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Gísli. Velkomin á bloggið og vinahópinn.

Edda Agnarsdóttir, 29.6.2007 kl. 10:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband