Leita í fréttum mbl.is

Grunnskólakennarar eru orðnir lægstir í launum af öllum uppeldisstéttum.

Það er af sem áður var þegar Grunnskólakennarar fylgdu þingmönnum í launum og þá var líka oftast ein fyrirvinna á heimilum, en samt ÞINGMANNAKAUP.

Í dag eru laun kennara orðin að meðaltali 40 þúsund krónum lægri á mánuði en kaup leikskólakennara og ekki þykja þeir vel launaðir allavega hjá Reykjavíkurborg. En Leikskólakennarar eru vel að þessu komnir og mættu vera hærri þess vegna. Þroskaþjálfar eru hærri í launum en Leikskólakennarar og er það líka vel. Það sem er skrýtnast í þessu öllu er hvað kennarar hafa dregist aftur úr og miðað við samningagerðir í launamálum þá hef ég aldrei vitað til þess að hægt væri að semja um 40 þúsund á einu bretti, þannig að staðan er slæm.

Mér finnst að allar þessar uppeldisstéttir eigi að hafa sömu laun. Ég segi að grunnskólakennari eigi að hafa 490 þúsund í laun á mánuði.


mbl.is Skólastjórar segja ekki lengur hægt að halda úti lögboðinni kennslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ég er svo sammála þér! Það er löngu kominn tími til að gera vel við þau sem að sjá um menntun barnanna okkar frá leikskólastigi og áfram! Mér finnst þetta eitt að mikilvægustu störfum sem að unnin eru, því verið er að mennta börnin okkar sem að eru framtíð þessa lands.

Góða helgi !

Sunna Dóra Möller, 19.10.2007 kl. 21:46

2 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Hvað skyldi það kosta á ársgrundvelli fyrir sveitafélögin að hækka laun kennara upp í svona 350þús?  Þetta er með ólíkindum hvað stéttin lætur bjóða sér.  En eins og meðferðarfulltrúin segir: Mér þykir leitt að þú skulir ekki meta mig að verðleikum, en ég ætla að bjóða þér að gera það áfram.

Góða nótt. 

Ingibjörg Friðriksdóttir, 19.10.2007 kl. 22:13

3 identicon

Hmm...hef unnið á leikskólum(7 ár-leiðbeinandi).Hef unnið í grunnskólum 7 ár,sem stuðningsfulltrúi og kennari.Er hætt í þessum geira og fer aldrei aftur þangað,ef Guð lofar.Launin...segi ekki meira um þau,en kröfurnar...ef launin væru jafnhá og kröfurnar sem gerðar eru til kennara væri gaman að lifa. Það ætti að gera eina önn í grunnskóla að þegnskyldu hér á landi.Kannski fólk myndi þá skilja við hvað er að eiga í þessu djobbi.

Guðrún Garðarsdóttir (IP-tala skráð) 19.10.2007 kl. 23:02

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Frá upphafi til endis skólagöngu eiga kennarar barnanna okkar að hafa mannsæmandi laun fyrir ómissandi framlag sitt við að byggja upp framtíð hverrar þjóðar.  Það er svo einfalt að ég skil ekki hvað stendur í veginum. 

Takk fyrir þarfa færslu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.10.2007 kl. 23:52

5 Smámynd: Ingigerður Friðgeirsdóttir

Ég er alveg sammála þér Edda Laun kennara eru alveg til skammar. Kennarar fara bara í önnur störf þar sem launin eru hærri. Ég á strák í grunnskóla og er hann í 6 bekk og er búinn að vera með 5 kennara á þessu tímabili mér finnst þetta öfug þróun. Sem foreldri þætti mér gott ef sami kennari gæti verið með bekkinn sinn allavega fyrstu 4 árin. það þarf að gera mikla breytingu í þessari stétt.

Ingigerður Friðgeirsdóttir, 20.10.2007 kl. 00:03

6 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

þetta er ótrúlega kvíðvænleg þróun. hvenær á að gera eitthvað í málunum? Ég bara spyr.

Jóna Á. Gísladóttir, 20.10.2007 kl. 00:45

7 identicon

Ég hef stundum velt fyrir mér hvort koma þurfi á því sem kallað var hér um árið „þjóðarsátt“ um að þurrka út gamlan forpokaðan þankagang gagnvart störfum kennara og þar með launum þeirra og þjóðin sammælist um að hækka laun þeirra margfalt, segi og skrifa margfalt. Það þýðir líka að fólk þarf að vera tilbúið til að líta á það sem séraðgerð sem ekki sé sjálfsagt að gangi í gegnum alla launaskala.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 20.10.2007 kl. 11:33

8 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Þetta endurspeglar svo vitlaust verðmætamat í samfélaginu, og samfélagið okkar er jú bara við - fólkið sjálft sem býr hérna. 

Við erum tilbúin að borga svo og svo mikið fyrir ýmsan óþarfa, en ekki tilbúin að greiða þeim sem uppfræða börnin okkar mannsæmandi laun.

Marta B Helgadóttir, 20.10.2007 kl. 13:39

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Mér finnst það algjör lágmarks krafa að þeir sem annast um og kenna börnum okkar séu á háum launum.  Og fyrst ég er byrjuð þá er hjúkrunarfólk og þeir sem stunda umönnunarstörf á skítalaunum.

Ásdís Sigurðardóttir, 20.10.2007 kl. 21:48

10 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Verdmætamatid er fokid ut i vedur og vind i allri grædgisvædingunni Er ekki alveg kominn timi a ad breyta thessari endaleysu? Thad eru nægir peningar til i ad laga thetta.

Halldór Egill Guðnason, 21.10.2007 kl. 20:34

11 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Við bjóðum upp á þetta.  Kvörtum en gerum þetta samt.  Í fyrradag, var hent eggjum í stofugluggann minn, sennilega fyrir það eitt að reyna að hafa hemil á blessuðum nemendum mínum. Það er sennilega best að láta sér standa á sama um gengi nemenda sinna, leyfa þeim að vera með gos og nammi í tímum, teygja út úr sér tyggjóið og smella og blása framan í kennara, sýna Simpson annanhvern tíma og steinþegja, þegar þau taka köstin sín.  

Ingibjörg Friðriksdóttir, 21.10.2007 kl. 21:30

12 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Sammála því að bæta laun kennara á öllum stigum.

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 22.10.2007 kl. 13:00

13 Smámynd: Páll Jóhannesson

Hækkum laun kennara og frystum launahækkanir hjá þeim tekjuhæstu.

Páll Jóhannesson, 22.10.2007 kl. 15:57

14 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Það er tími komin á að endurskoða allt launakerfið. Það er til skammar þessi launamismunur sem orðinn er í landinu.  Það virðast vera til nógir peningar, en ekki handa öllum stéttum. Þetta þarf að leiðrétta.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 24.10.2007 kl. 11:47

15 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Sunna, ég er sammála því að þetta er mikilvægt starf. Í Kaupmannahöfn eru víða þessa dagana stórt hreyfi auglýsingaspjald með þremur manneskjum sem eiga að tákna kennara , hjúkrunarfræðing og leikskólakennara og fyrirsögnin er: Við stöndum saman eða við eigum samleið!

Ingibjörg, ég er kannski ekki alveg að ná þessu með meðferðarfulltrúann, er það eitthvað starfsheiti? 350 þús er of lágt! Ég ksnnast við svona eggjakast, það urðu nokkrir starfsmenn í öðrum skólanum á Skaga fyrir því fyrir nokkrum árum.

Guðrún, hef mjög sterkan skilning á þessu.

Jenný, hvað eru mannsæmandi laun eftir langt nám í skóla?

Ingigerður, já það væri draumur að hafa sama kennarann, en það er draiumur minn að það komi fleiri en rinn að umsjón bekkjar þannig að skörunin eða breyting verður ekki eins mikil fyrir börnin. Það sem er allra verst er nýr kennari - eða ö0lluheldur óþekkt andlit fyrir yngri börnin.

Jóna, kennarar sömdu af sér, finnst mér, í síðustu kjarasamningum og samningar verða ekki lausir fyrr en um áramótin og þá byrjar þjarkið og ég hef ekki trú á því að kennarar fari í verkfall þeir segja bara upp og eru þegar byrjaðir á því. Við misstum marga kennara í fyrra og þeir eru byrjaðir að segja upp núna.

Anna, ég hef nú ekki heyrt þessa hugmynd núna en hún er athyglisverð, ég hef verið þeirra skoðunar að kennurum vanti ímyndafræðing fyrir stéttina svo þeir nái betur til fjöldans, eitthvað hefur verið reynt og fór misjafnlega í kennara, þeir eru kannski líka dáldið erfiðir, láta ekki af stjórn.

Marta og það versta er að foreldrar yngstu barnana verða oftar en ekki uppvæg vegna fría í skólanum eða svokallaðra starfsdaga kennara en finnst jafnframt sjálfsagt að fara með börnin í frí á skólatíma. Það er mjög gjarnan litið til skólans sem geymslu eða pössunarstað fyrir börnin.

 skoðaðu það sem ég skrifaði til Sunnu!

Halldór, það er til skítnóg af peningum!

Kristjana, ég vona að í framtíðinn verði þessi störf lögð að jöfnu!

Gísli, hvað finnst þér um að það fylgu þingmannalaunum?

Páll ég er ekki alveg inni á þessari frystingu, því venjulega er þetta hálaunaða fólk fyrir utan opinber störf, en sjáum til!

Elísabet, það er akkúrat það að yfirvaldið hefur engan áhuga á kennurum og þvílík niðurlæging sem síðasta verkfall var, algjör hunsun og ekki til vottur af virðingu fyrir réttindabaráttunni og eða starfsheitinu kennari.

Sveinn ekki veit ég hvernig svara á þessuöðruvísi en þannig að hjá því opinbera eru það lykilmenn og toppstöður eins og ráðherra, sendiherra,ráðuneytisstjórar, lögmenn í hæstarétti sem dæmi. Annars er það fólk sem vinnur hjá einkafyrirtækjum sem semur um laun og allir mennaðir eru ívið hærri en hjá því opinbera.

Ólöf, gott að sjá þig aftur. Ef þetta leiðréttist ekki í vetur verður mikill flótti úr stéttinni. Ég sé meira segja fyrir mér konur í kennarastétt já og karla fara heim og sinna heimili, því á þessum launum borgar sig varla að vinna ef það eru tvær fyrirvinnur.

Edda Agnarsdóttir, 24.10.2007 kl. 15:42

16 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Takk fyrir að benda mér á þetta Edda mín. Kær kveðja í baráttuna

Ásdís Sigurðardóttir, 24.10.2007 kl. 20:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband