Leita í fréttum mbl.is

Veikindi herja á þessu heimili um jólin!

Aðfangadagskvöld var dásamlegt,  stelpurnar mínar (barnabörnin) frá Svíþjóð Edda og Ylfa Eir voru í eins kjólum og Jón Geir var í skyrtu með bindi. Kalkúnn á borðum og börnin borðuðu ekkert betur spennan svo mikil. Þau voru þakklát og glöð með hvern einasta pakka og nutu alls í botn.

Morguninn eftir voru báðar dætur mínar orðnar veikar og eru enn. Pabbi þeirra var lagstur á Þorláksmessu og nú er öll hans fjölskylda orðin veik í Garðabænum, konan hans, sonur minn og dætur hans, þannig að árlegu jólaboði á jóladag var aflýst þar á bæ. Þetta setur strik í reikninginn, en samt hefur þetta gengið vel, enda hafa börnin ekki orðið veik hér. Auðvita vona ég að sleppa við veikindi, en það kemur bara í ljós.

Magnea, Sindri og Aldís kíktu í dag og fóru svo í jólaboð kl. 18 í bænum og á morgun förum við svo í jólaboð á Álftanesið til forsetans... æi ég meinti til Þóru mágkonu!Whistling

Set myndir inn á færsluna síðar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll Jóhannesson

Farðu vel með þig og vonandi rífur fjölskyldan sig upp úr þessari pest.

Páll Jóhannesson, 26.12.2007 kl. 22:20

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ertu semsagt að segja mér að Þóra mágkona sé ekki forseti   ég var svo viss  hí hí hí.   Vona að heilsan batni sem allra, allra fyrst.

                   Blue "Fílustrumpur" ég þoli ekki veikindi.

Ásdís Sigurðardóttir, 26.12.2007 kl. 22:29

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Vonandi veikjast ekki fleiri og ég bið þig fyrir jólakveðju til Þóru og annarra sem ég þekki. 

Anna Einarsdóttir, 26.12.2007 kl. 22:35

4 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Endilega farið vel með ykkur, svo áramótin verði hressari

Ingibjörg Friðriksdóttir, 26.12.2007 kl. 23:03

5 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Vona að veikindin vari stutt. Bestu kveðjur um gleðilega hátíð og góða rest 

Halldór Egill Guðnason, 27.12.2007 kl. 00:55

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er viss um að Þóra væri fínn forseti (þó ég þekki hana ekki baun). Sendi öllum sterkar batakveðjur

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.12.2007 kl. 02:01

7 identicon

Æi- leiðinlegt að lenda í veikindum á þessum tíma. Vonandi rjátlast þetta fljótt af þeim. Hafðu það sem best mín kæra

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 27.12.2007 kl. 21:09

8 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Vonandi nær fólk sér fljótt, ansi leiðinlegt að vera veikur á þessum tíma.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 28.12.2007 kl. 16:19

9 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Hér hefur flensa verið á ferð líka !

Sendi mínar bestu batnaðarkveðjur !

Sunna Dóra Möller, 28.12.2007 kl. 17:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband