Leita í fréttum mbl.is

Kæru bloggvinir, stjörnurnar skína, en þó á sérstakan hátt í dag.

NAUT 20. apríl - 20. maí
Þeir sem eru með á nótunum, lenda á mikilvægum fundum. Vertu með í nú-liðinu. Lestu allt sem þú kemst yfir. Dillaðu þér í takt við aðra.
Mér fannst þessi stjörnuspá dáldið sérstök. Jú jú þetta er merkið mitt og merki mannsins míns líka.
Ég er að fara til tannlæknis að láta taka sauma úr mér eftir aðgerð í síðustu viku. Nú svo vonast ég til að geta komist til Báru í leikfimi og það er alveg víst að þar get ég dillað mér í takt við aðra.
Ég vona að ég sé með á nótunun þótt ég hafi oft áhyggjur af gleymskunni í mér undanfarið og það gremjulegasta er að ég gleymdi afmæli eins af barnabörnum mínum síðasta þriðjudag. Þegar ég var yngri með börnin lítil hét ég sjálfri mér að ég skildi muna afmælisdaga barnabarnanna, en nú eru komin skekkjumörk og þau mega víst vera, en ekki meira en það.
Ég les allan fj... en hvort það er allt sem ég kemst yfir er annað mál. Lestrardoði er eitt af því sem aukist hefur með aldrinum.
Veit ekki alveg hvað þetta nú-lið er, nema þá helst að það séuð þið kæru bloggvinir!Heart

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

 Já, þetta þýðir bara að vera dugleg að lesa bloggið og muna að við erum næstum allt sem þú þarft, ekki samt alveg.  Knús til þín Edda mín

Ásdís Sigurðardóttir, 4.2.2008 kl. 15:16

2 Smámynd: Benna

Hehe sniðugt ég og kallinn eigum einmitt þetta stjörnumerki líka, ég sem hélt að það væri bara liggur við einsdæmi að svo væri þar sem þekkt er að við Nauts fólk getum verið ansi þrjósk og svona.....en gaman að þessu og já svoldið spes spá ....

Benna, 4.2.2008 kl. 15:21

3 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Sunna Dóra Möller, 4.2.2008 kl. 16:29

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Kem þessu til húsbands.  Hans stjörnuspá.  Er enn með þessa daga á hreinu, veit þó ekki hversu lengi.

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.2.2008 kl. 17:08

5 identicon

Þetta á greinilega allt við þig. Ég er yfirleitt ekki svona heppin með mína spá. Kannski er ég bara í vitalusu merki

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 4.2.2008 kl. 19:44

6 Smámynd: Brattur

... ég lenti einu sinni í því að muna ekki hverju ég gleymdi... svo mundi ég það mörgum dögum seinna og þá var orðið og seint að skrúfa fyrir baðið...

Brattur, 4.2.2008 kl. 20:02

7 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Heyrðu þið strákar, Ægir og Brattur, þið eruð engum líkir, enda krúttastrákar báðir tveir!

Anna þetta er ágætt ef maður hefur ekkert að blogga um, annars finnst mér stjörnuspá mbl svo arfavitlaus að það er ekki hægt að hafa það eftir - en aldrei þessu vant kom ein skiljanleg en svo sem ekki á háu plani!

Þarf greinilega að setja upp myndaalmanak af barnabörnunum Hallgerður!

Ásdís knús á þig líka.

Sunna takk fyrir hjartað - það er nú aðalmálið.

Benna gaman að fá kveðju frá þér og satt segirðu, það er sérstakt að rekast áannð par í sama merki - en ég held nú samt að þetta sé töluvert algengt.

Edda Agnarsdóttir, 4.2.2008 kl. 21:20

8 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

nú nú pant vera með í því liði.....

hvernig ætli ég verði eftir 10 ár....man ekki fyrir húshorn nú þegar 

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 4.2.2008 kl. 21:42

9 Smámynd: Heiða  Þórðar

Innlitskvitt á þig mín kæra.

Heiða Þórðar, 4.2.2008 kl. 23:35

10 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Leit við til að bolla þig Edda 

Marta B Helgadóttir, 4.2.2008 kl. 23:56

11 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Marta mín, þú veist nú alveg hvað þetta þýðir á dönsku?

Edda Agnarsdóttir, 5.2.2008 kl. 00:14

12 Smámynd: Kolgrima

Frábær stjörnuspá, verð að lesa hana fyrir nautið frá Norðfirði!

Kolgrima, 5.2.2008 kl. 00:35

13 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Elísabet ertu að meina kolkrabbar?

Ha Norðfirði?

Edda Agnarsdóttir, 5.2.2008 kl. 10:52

14 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Edda þó!   ...hugsar þú á dönsku  

Marta B Helgadóttir, 5.2.2008 kl. 12:55

15 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Ef nú-liðið eru krabbar tilheyri ég því.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 5.2.2008 kl. 17:25

16 Smámynd: Fríða Eyland

Eru krabbarnir ekki áttavilltari en nautin eða hvernig var það aftur, naut elska að rækta grænmeti og tína ber eins og krabbar.

Sólskynskveðjur  

Fríða Eyland, 6.2.2008 kl. 13:26

17 identicon

Giskleikurinn Kalli Tomm, nefndur eftir skapara sínum í Mosó verður hjá mér kl 21. Skráðir Mbl. bloggarar velkomnir.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 6.2.2008 kl. 17:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband