Leita í fréttum mbl.is

Meiri skrípaleikur

Það er eins gott að þeir sem eiga aðild að þessum skrípaleik samanber Akraneskaupstaður fari að huga að vilja almennings í þessum málum.

Hvaða mönnum dettur í hug að koma með tillögu sem stríðir gegn samþykktum frá síðasta eigendafundi Orkuveitu Reykjavíkur og samþykktum borgarráðs nýverið.

Það er bara ekki í lagi með sumt fólk   -  afhverju eru þessir menn í pólitík?

Ættu þeir ekki að reka sín eigin fyrirtæki?

Geta þeir ekki leikið sér með eigið fé?

Látið almannafé í friði og hættið þessu gamaldags stórkallabrokki!

 


mbl.is Hörð gagnrýni á tillögu um REI
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þeir virðast ekki hafa hugmynd um hvað á að gera og það sem er sannleikur í dag hjá þeim er lygi á morgun. Maður er nú orðin frekar þreyttur á þessum köllum. 

Ásdís Sigurðardóttir, 18.4.2008 kl. 19:39

2 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Edda mín ég tek undir þau orð að þeir ættu að hætta að leika sér með annara fé og nota sitt eigið. Svo finnst mér pólitíkin vera orðin ansi skrítin. Hreinn og beinn skrípaleikur og eiginhags munir í fyrsta sæti.

Eigðu góða helgi.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 18.4.2008 kl. 21:42

3 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Ég er alveg gáttuð á þessum "skrípaleik" sem þarna á sér stað.   Ég hélt að loksins væru þeir sexmenningar í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins,  búnir að  vinna sig í gegnum misklíðina og komnir á sameiginlega niðurstöðu til að vinna eftir, fram að næstu kosningum,  en það er öðru nær.  Ég á nú frekar von á að Gunnar bæti gráu ofan á svart, það fannst mér nú á orðum hans fyrr í vetur..

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 18.4.2008 kl. 22:52

4 Smámynd: Páll Jóhannesson

Vá! hvað armar Orkuveitunnar, Rei og allt það teygir sig víða..... sláið á puttana hjá þessum ,,háu" herrum.

Páll Jóhannesson, 18.4.2008 kl. 23:59

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Veistu að ég veit ekki hvort ég er að fara eða koma þessa dagana.  Ekki von með þessa bjána í borginni.

ARG

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.4.2008 kl. 00:40

6 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Kvitta fyrir mig.

Marta B Helgadóttir, 19.4.2008 kl. 09:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband