Leita í fréttum mbl.is

Mismunandi heilsufar öldunga.

Í fyrradag fékk ég langömmu barnabarns míns í heimsókn ásamt manni hennar og bróður. Allt þetta fólk er komið yfir áttrætt. Langamman býr við góða heilsu miðað við aldur orðin 86 ára, maður hennar á svipuðu reki er aftur á móti búin að fá parkison veiki og hefur líka þurft að gangast undir aðgerðir vegna kransæða og hjarta. Bróðir langömmunnar er aðeins yngri og vel ern.

Umræður okkar snérust meðal annars um heilsufar öldunga og langlífi. Mamma systkinanna dó 102 ára og hafði aldrei farið á spítala. Hún var orðin blind en mjög vel ern fram í andlátið. Í dag væri hún ekki blind, því Það sama hrjáir dóttur hennar og hún hefur tvívegis á tíu ára millibili farið og látið skipta um augasteina og þarf ekki að nota gleraugu 86 ára. Mamman dó árið 1993.

Það er framfaraspor að rannsaka öldrunarsjúkdóma eins og Hjartavernd hefur tekið þátt í sem gæti orðið til þess að fólk gæti lifað góðu lífi í ellinni!

Hver veit?


mbl.is Uppgötvun Hjartaverndar vekur víða mikla athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Það er auðvitað frábært að fá að lifa sem lengst ef heilsan er góð.  Og auðvitað á að rannsaka öldrunarsjúkdóma eins og aðra.  Auka lífsgæðin.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.6.2008 kl. 17:58

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Í það minnsta okkur eskan! Knús á þig.

Edda Agnarsdóttir, 28.6.2008 kl. 18:40

3 Smámynd: Anna Þóra Jónsdóttir

Iss, það er svo langt þar til þið verðið aldraðar að það verður örugglega búið að finna upp "lækningar" við öllum ellikvillum fyrir þann tíma.

Anna Þóra Jónsdóttir, 28.6.2008 kl. 19:05

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég lifi enn í voninni að þegar skipta þarf um loku í hjartanu á mér, verði hægt að gera það án þess að saga mig í sundur, mér finnst nóg að hafa lent í því einu sinni. 

Ásdís Sigurðardóttir, 28.6.2008 kl. 19:43

5 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Það er ótrúlegt hvað hægt er að gera fyrir fólk nú til dags. Skipta um ýmsa liði og ætli bráðum verði hægt að skipta um heila í manni? Nú svo eru aðgerðir gerðar í gegn um göt. Já ýmislegt til að auka lífsgæðin.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 28.6.2008 kl. 20:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband