Leita í fréttum mbl.is

Bloggvinir

Það er ekki hægt að segja annað en að það hafi verið léttskýjað í dag, þvílík veðursæld!

Ég hef verið með annan fótinn úti í porti að sóla mig og drekka kaffi og íste ásamt því að eiga góð símtöl við tvær bloggvinkonur.

Eins og margir vita eru bloggarar margir hverjir með hokið bak af reynslu lífsins og ekki er það verra að geta sótt í reynslubrunn þeirra með ráðgjöf og hlustun. Það eru ekki allir sem kunna að hlusta og þess vegna er mikilvægt fyrir alla sem lenda í hrakföllum að geta leitað til þeirra sem kunna þessa list.

 

Þetta er ekki þannig ef þið haldið það, að ég hringi í einhvern á blogginu ef mér líst vel á bloggið hans og beri mig upp við hann og biðji að hlusta!

Ó sei sei nei nei - margir bloggarar eru duglegir að hittast og hef ég hitt t.d. u.þ.b. helming af mínum bloggvinum og fyrir vikið á ég annarskonar samband við þá en aðra sem ég hef ekki hitt.

 

Hrafnhildur (Krumma) er ein af þessum bloggvinum mínum sem ég hef hitt og hefur mikla og jákvæða áru  og jafnvel gamla. Hún gæti verið dóttir mín vegna aldursins og hún gæti verið mamma mín vegna þessara sterku og þroskuðu áru.

Hún er yndisleg kona með hugann og starfsandann þar sem ég vildi helst vera - það er myndlistin.

  

Í dag átti ég gott símtal við Jennýju Önnu, hún er sú bloggvinkona mín sem ég þekkti áður en ég byrjaði að blogga. Við erum svokallaðir unglingavinir, áttum heima í sama hverfi og vorum yfirleitt þrjár til fjórar saman þegar við hittumst. En við höfum ekkert samneyti haft frá unglingsárunum og ekki vitað neitt af hvor annari fyrr en stuttu fyrir blogg.

Sömuleiðis átti ég líka langt og gott símtal við Kolgrímu sem hefur ekki bloggað lengi og þar bar hæst á góma fjölskylduleyndarmálin okkar beggja. ekki laust við að það hafi komið smá öfundarvottur yfir því að ein af okkar eðalbloggvinkonum getur svo til átakalaust skrifað um litla rasistann.

Allar eigum við leyndarmál og erum í misgóðri eða vondri aðstöðu til að opinbera þau en því miður þá verður að opinbera sum af þeim!

 


mbl.is Léttskýjað í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Takk fyrir falleg orð Edda mín...nú svo er ég alltaf til í spjall.

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 19.7.2008 kl. 20:04

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Gaman að heyra þig hrósa þessum konum, þekki samt ekki til Kolgrímu.  ég heyri að þú lýsir þeim alveg eins og ég hef séð þær fyrir mér huglægt.  Hlakka til að fá að hitta ykkur allar einn góðan veðurdag.  Gangi þér vel og hafðu það gott elskuleg   Love You 

Ásdís Sigurðardóttir, 19.7.2008 kl. 20:27

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk fyrir mig elsku Edda við tölum saman í næstu viku, nú eða fyrr

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.7.2008 kl. 21:04

4 Smámynd: Hulda Elma Guðmundsdóttir

Vinur þinn er þér allt. Hann er akur sálarinnar, þar sem samúð þinni er sáð og gleði þín uppskorin. Hann er brauð þitt og arineldur. Þú kemur til hans svangur og í leit að friði. Þegar vinur þinn talar, þá andmælir þú hinum óttalaust, eða ert honum samþykkur af heilum hug. Og þegar hann þegir, skiljið þið hvor annan. Því í þögulli vináttu verða allar hugsanir, allar langanir og allar vonir ykkar til, og þeirra er notið í gleði, sem krefst einskis. (Gibran)

Hulda Elma Guðmundsdóttir, 19.7.2008 kl. 21:42

5 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Það eru nokkuð margir að blogga um bloggið og bloggvinina um Þessar mundir. (Skrýtið hvernig samvirknin vinnur stundum ómeðvitað) Það sýnist sitt hverjum, sumir ógurlega neikvæðir og aðrir bara í að dreifa sólargeislunum. Allir eru samt að reyna að skilgreina þetta nýja og spennandi vináttuform og taka þannig þátt í að móta netheiminn. -

Ég er fyrir mitt leiti afar ánægður með flest samskipti mín við bloggvini og bloggara almennt þótt ég þekki ekki nema brot af þeim persónulega. Mér finnst blog.is vera eins og samfélag þar sem mikið ber á sumum, minna á öðrum sem samfélagið gæti samt illa verið án. Það er næstum því eins og fólk "deyi" ef það hættir að blogga og ef einhver er latur, byrjar maður að hafa áhyggjur. Svolítið fyndið allt saman :)

Svanur Gísli Þorkelsson, 19.7.2008 kl. 22:59

6 Smámynd: Kolgrima

Takk fyrir gott spjall!

Kolgrima, 20.7.2008 kl. 03:42

7 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Ég held að engin af mínum vinum sé eitthvað aktívur bloggari. Allir svona hálf daufir í dálkin þegar kemur af bloggfærslu þetta sumarið. En það koma tímar koma ráð með "lækkandi sól og snjó í haga"

Brynjar Jóhannsson, 20.7.2008 kl. 08:57

8 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Elsku þið öll, takk kærlega fyrir innlitið - þið eruð best!

Edda Agnarsdóttir, 20.7.2008 kl. 12:53

9 identicon

Ég hef grátið það að vera of langt í burtu til að mæta í blogginkonusamsætin sem mér hefur verið boðið í en ég trúi að það sé ekki öll nótt úti enn og brosi breitt við tilhugsunina um gott kaffispjall í góða (blogg)vina hópi

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 20.7.2008 kl. 14:34

10 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Ég væri sko til í bloggvinahitting, þetta er allt svo frábært fólk. Ég þekki bara eina blogvinkonu persónulega.

Helga Magnúsdóttir, 20.7.2008 kl. 14:50

11 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Stelpur mínar við drífum bara í þessu bráðlega!

Edda Agnarsdóttir, 20.7.2008 kl. 14:58

12 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Sjálfsagt að njóta veðurblíðuna þegar hún gefst. Það reyni ég að gera og hef þá gjarnan með mér lesmál sem ég glugga í milli þess að góna út í bláinn.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 20.7.2008 kl. 17:32

13 Smámynd: Tína

Alveg væri ég til í að hitta bloggvini mína. Það væri sko ekki leiðinlegt að geta tengt bæði andlit og rödd við nöfnin.

Knús á þig Edda mín og ég vona að þér líði betur.

Tína, 21.7.2008 kl. 07:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband