Leita í fréttum mbl.is

Skondið

Er ekki hægt að setja upp svona Offce1 á Akranesi?

Það væri ekkert smá gaman að fara í bókabúð á nóttunni og ekki væri verra ef hægt væri að fá kaffibolla með!

Namm ég sé þetta alveg fyrir mér, ég ligg andvaka og get ekki sofnað, ég fer af stað fram og næ mér í vatnsglas og drekk það og leggst aftur í rúmið en mér gengur ekkert að sofna. Þá fer ég fram aftur og man allt í einu að Office1 er opið, váá, ég þangað!

Svo klæði ég mig í og fer út og tek hjólið og hjóla í Office1, skoða híbýlablöðin, Allt for damerne, Femine, Vogue og guð má vita hvað!

Svo væri hægt að fá te eða kaffi með róandi og svæfandi elementum!

Oh ég bíð eftir svona draumabúð í mínum heimahögum,

Þangað til eruð þið velkomin til mín ef þið vakið á nóttinni.


mbl.is Verslanir Office 1 opnar allan sólarhringinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég var einmitt að velta því fyrir mér hvernig ég hef komist af án sólarhringsopinnar  bók- og ritfangaverslunar.

Ég vakna stundum upp (oft) og hugsa: Guð hvað mig vantar strokleður og heftiklemmur.  Alveg: Dem, dem, allt lokað.

Hahahaha.

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.8.2008 kl. 17:05

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Hehehe  me too!

Edda Agnarsdóttir, 18.8.2008 kl. 17:37

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Já, eða litabók og liti þegar maður er andvaka.

Ásdís Sigurðardóttir, 18.8.2008 kl. 17:42

4 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Eða túss og teiknibólur, til að skreyta drauma sína.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 18.8.2008 kl. 20:39

5 Smámynd: Páll Jóhannesson

Ef þú vissir hvað ég er búinn að bíða lengi, lengi eftir þessu. Því miður verður búðin bara opin í 3-4 nætur eða eitthvað.... svo nú er bara stilla á sig klukku og þótt ekki væri nema bara fara á staðin og sjá hvað margir nýta sér þessa þjónustu. Já ekki er nú öll vitleysan eins.

Páll Jóhannesson, 18.8.2008 kl. 23:01

6 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þetta gengur ekki að hafa enga bókabúð í svona stóru bæjarfélagi.  Það þarf einhver á Akranesi að drífa í því.  Ef ekki þá geri ég það bara sjálfur.

Jakob Falur Kristinsson, 19.8.2008 kl. 10:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband