Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008

Ofbeldið og klámið heldur áfram

Stundum spyr ég sjálfa mig hvort öll tæknivæðingin eins og upptökuvélar, myndbandstæki og myndbönd almennt + sjónvarp séu aðal orsakavaldur á ofbeldi gegn börnum?

Hvað haldið þið?

Miðað við þær rassíur sem lögreglan er að gera víða í Evrópu í þessum málum sem eru ´öllum tilvikum stór og umfangsmikil.

Bara á Spáni eru þeir að taka kannski bara brot af því sem fyrirfinnst þar, eða hátt í fimmtíu manns sem dreifa ósómanum á netið! Og þetta er inni á heimilum fólks - hvaða fötlun eða sýki eða geðveiki er þetta?

Er einhver nær?


mbl.is Handtökur á Spáni í tengslum við barnaklám
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magnea og "Skoppa og Skrítla"

 

skoppa-skrýtla og magn.Skoppa og Skrítla eru í miklu uppáhaldi hjá Magnea litlu Sindra og Aldísardóttur. Hún horfir á Skoppu og Skrítlu þætti lon og don af DVD diskum heima hjá sér.

Svo gerðist það einn daginn í vetur að Skoppa og Skrítla komu í heimsókn til Kaupmannahafnar og héldu nokkrar sýningar fyrir íslensk börn.

Magnea fór með mömmu sinni og það var ekki að spyrja að því, barnið steinlá fyrir þeim og fannst hún alltaf hafa þekkt þær, faðmaði og knúsaði í lok sýningar.

Nú eru Skoppa og Skrítla að búa til kvikmynd um sjálfar sig, það verður gaman að fara í bíó með ungviðið!

Hér fyrir neðan er svo nýjasta myndin af Magneu minni sem varð 2ja ára 2. júní s.l.

 

MAGN.24-06


mbl.is Skoppa og Skrítla á hvíta tjaldið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjárvík á Hjaltlandseyjum og íslenska krónan!

Kannski er bara best að flytja til Fjárvíkur, hver veit?

Þetta brjálaða land sem við búum á - hvað er í gangi?

Nú fara bankarnir að gera upp fjórðungsuppgjörið og örugglega í + eins og venjulega og þeim er spáð mörgum plúsum?

Huga fólksins í landinu er svo dreift með Ísbjarnarblúsum, góðu veðri, útihátíðum og öllu kítingi í kringum það, einhverju blaðri um utanlandsferðir ráðherra og þingmanna, eldneytiskostnaði hjá sama fólki og fleira og fleira.

En hvenær ætlum við öll í landinu að rísa upp á afturlappirnar og spyrja út þessa blessuðu krónu sem var í sögulegu lágmarki í dag?

Eins og ég spurði fyrst - eigum við að flytja til Fjárvíkur?


mbl.is Lýsir yfir sjálfstæði frá Bretlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tengsl foreldra og barna.

Það vekur athygli mína um leið og fréttir hafa borist undanfarið af niðurstöðum könnunar um kynlíf unglinga hér á Íslandi til samanburðar í öðrum löndum í Evrópu þar sem íslenskir unglingar stökkvi fyrr út í kynlíf en jafnaldrar þeirra að íslenskar stúlkur séu ekki jafnverndaðar og jafnöldrur þeirra í öðrum löndum!Þetta segir Þóroddur Bjarnason prófessor í dag. 

 Ég hef verið hugsi yfir því undanfarið, hvað það er í okkar munstri sem ekki er að skila sér. Erum við teprur eða finnst okkur kynlíf unglinga í lagi?   Þarf ekki að taka stórt skref fram í umræður um þessi mál? Ég er langþreytt á öllu tali um hið neikvæða þætti tengslum við kynlíf og kynlífsathafnir og er til í að vera með í að snúa dæminu við og gera eitthvað jákvætt og fallegt úr þessu.

Í dag á sonur minn Högni afmæli, hann er 36 ára í dag. Hann á eina dóttur sem heitir Sandra María og er að koma frá heimkynjum sínum í Vejle til Íslands í kvöld og dvelur í þrjár vikur. Hún er yndisleg stúlka og ég hlakka heil ósköp að fá hana, hún ætlar að dvelja eitthvað hér hjá mér. 

23.júní 2008

Högni og Sandra María daginn fyrir fermingu hennar í vor.


mbl.is Missa verndarhlutverkið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvíburi og krabbar, Hollendingar og Rússar, stelpurnar okkar og stelpurnar mínar.

Dagurinn í dag er stór dagur. Hollendingarnir (mitt lið) etja kappi við Rússana kl 18:45 í dag og ég verð fyrir framan tækið  og horfi á þá ef dramatíkin verður mér í hag annars stend ég upp og geri eitthvað annað - taugarnar ekki betri en það.

Stelpurnar okkar eru líka að keppa i dag og það er engin smáleikur - ég fer ekki á leikinn nema að það komi einhver á hvíta hestinum (ísbirninum) og fari með mig þangað og skili mér aftur heim! En leikur þeirra er Laugardalsvelli í dag kl. 16:30 að mig minnir. Þær þurfa að vinna Slóvena svo þær geti komist til Finnlands í úrslitakeppnina, það væri geggjað fyrir stelpurnar okkar og okkur á Íslandi. 

Hrund myndir 018

Ég á tvær stelpur sem báðar æfðu fótbolta sem stelpur og unglingar. Eldri stelpan mín æfði lengi í DK og svo varð hún ekki eins tengd þegar hún kom heim í menntaskóla, en hún fór í nokkrar keppnisferðir með fyrirtækinu sem hún vann hjá, flugfélagi og þær stelpur kepptu við önnur flugfélög í öðrum löndum.

Yngri stelpan mín Hrund Ýr, reyndi eitthvað fyrir sér með Stjörnunni í Garðabæ eftir að hún fluttist til Íslands frá Svíþjóð en tókst heldur ekki að tendra neistann aftur. Hrund Ýr á afmæli í dag og er 37 ára þriggja barna móðir Ylfu Eiri 7 ára og tvíburana Jón Geir og Eddu sem eru 5 ára. Ég á þrjú börn sem fædd eru í þessum mánuði, hin eru eftir þennan dag.

Hrund myndir 002

Hún er ekki dugleg að senda mér myndir en myndirnar hér eru báðar frá í des. 2005 þegar hún kom hingað í stutta heimsókn. Hún kom að vísu hingað um síðustu jól en var lasin öll jólin.

 Til hamingju með afmælið Hrund mín!Wizard


mbl.is „Algjör úrslitaleikur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar er Skaftholt?

Fallegt er það, nú kemur Bjarkarlundur og Sigurrósargarður. Þetta eru engin smá nöfn á trjálundinum. Vonandi fær það að dafna og vera í friði eða þá að einhver taki að sér að hugsa um lundinn.

Einn lundur sem ég þekki til og er kenndur við Vigdísi Finnbogadóttur, merktur fallega og gengið inn í lundinn milli hárra trjáa og búið að snyrta og lagfæra aðgengi með möl og gullfallegum trjáplankahellum ásamt gulli slegnum skildi með nafninu Vigdísarlundur.

Nú er skiltið horfið, mölin vaxin grasi og öðrum gróðri, tréplankarnir sokknir í gróðri og hríslurnar sem sumar eru orðnar að trjám í dag, dóu margar hverjar af illri umhirðu.

Vonandi fer ekki svona fyrir Bjarkarlundi og Sigurrósargarði. 


mbl.is 1.000 bjarkir fyrir Björk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stelpur glossið ykkur í kvöld og hafið það skemmtilegt!!

 Skjár einn í kvöld kl. 21

 Af hverju?

Svar: Söfnun fer fram á tækjum til að greina brjóstakrabbamein á frumstigi!

Símanúmer eru: 903 1000ef þú vilt gefa 1000 kr. 903 3000ef þú vilt gefa 3000 kr. og 903 5000fyrir þá sem vilja gefa 5000 kr.

Ef þú vilt gefa meira eða minna getur þú hringt inn í kvöld meðan á útsendingu stendur þar sem þjóðþekktar konur taka á moti framlögum. Síminn þar er 595 6000

Gróa Ásgeirsdóttir og Guðný Pálsdóttir eru forsvarskonur átaksins.

Þær fóru af stað með GLOSS söluna eða varagljáann eins og mogginn kýs að kalla það.

Ég verð með minn í allt kvöld.

Stelpur, munið að með þessu tæki losum við okkur við bókaþvinguna eða pressuna sem við höfum mátt pínast með í gegn um árin á brjóstunum!

Þegar ég fer í krabbameinsskoðun, þá verður mér ósjálfrátt hugsað til karlanna sem sleppa svo billega frá þessari "þvingu" á tillann!!

Ææ ég segi sonna!


mbl.is Konur taka höndum saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Predikun

Í Laugardalnum var kvennamessa í gær. Ekki hef ég ennþá komist á þessar árlegu messur.

Þórunn Sveinbjarnardóttir predikaði í dag á messunni og varð það til þess að ég fór að athuga hvað orðabókin segir um orðið predikun!

Það þýðir auðvitað að flytja ræðu við guðþjónustu og gæti ekki verið einfaldari útskýring. En predikun hefur líka aðra útskýringu og hún er: að halda skoðunum fast fram!

Nú hefur ekki verið sagt frá innihaldi predikunar Þórunnar, en mín tilfinning er sú að það hafi hún einmitt gert að halda skoðunum sínum fast fram.


mbl.is Umhverfisráðherra predikaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stoppum sálarmorð.

Konur á Íslandi fagna Kvenréttindadeginum í dag 19. júní í fallegu veðri en því miður ekki allt jafn fallegt sem konur hafa þurft að burðast með í gegn um tíðina og ber hæst þá ofbeldi gegn konum í ýmsum myndum.

Bleikir steinar hafa verið afhentir á þessum degi undanfarin ár á vegum Femínistafélags Íslands. Steinarnir eru afhentir til að vekja athygli á sérstökum málum sem varða konur og því órétti sem þær eru beittar.

Í ár fær Dómsmálaráðherra Íslands Bleika steininn, ásamt Forseta hæstaréttiar, Dómarafélag Íslands og Kynferðisafbrotadeild lögreglunnar.

Ekki undarlegt miðað við þá dóma sem kveðnir hafa verið upp í kynferðisakamálum gegn konum og börnum.

Í dag hafa þó nokkrir blogg vinir mínir bloggað um mál í tilefni dagsins og set ég slóðir þeirra hér inn.

Jenný Anna bloggvinkona mín er líka gömul æsku-og hverfisvinkona og er svokallaður ofurbloggari enda með þrjár færslur sem falla undir kvenréttindi ef ekki fjórar.

Bleika byltingin

Hver fær grjótið

Þjóð í móðursýkiskasti

Einum rúnkklúbbi minna

Næst er það Hulda Elma Guðmundsdóttir frá Norðfirði sem bloggar um "Gæfusporið fyrir 93 árum"

Þá er það Gísli Baldvinsson á Akureyri sem bloggar um "Kvenréttindi eru Jafnréttindi"

Að lokum er Það Rósa Harðardóttir sem kannar skyldleika við þekktar konur, "Guðrún Ósvífursdóttir"

 


mbl.is 98% þolenda eru konur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki seinna vænna - tökum saman höndum og stöndum saman!

Vistakstur er það sem koma skal.

Nú er að duga eða drepast - bætum umferðamenninguna og fækkum slysum og eldsneytiseyðslu!

Myndin í kvöldfréttum sjónvarpsins frá  þrettán þúsund manna bæ í Þýskalandi eða Austurríki var með smellnara sem ég hef séð uppá síkastið.

Engin umferðamerki, engar götumerkingar, engar hjólabrautir og engin umferðarljós, s.s. tilraun til bættrar umferðamenningar og það hafði skilað árangri.

Allir tóku tillit og fóru hægt á gatnamótum  og sá sem var á undan fór yfir - engar bílaraðir.

Æðislegt - vonandi getum við bráðum gert tilraunir með VISTAKSTUR!


mbl.is Vistaksturskennsla styrkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband