Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2008

26 stiga hiti í Kaupmannahöfn í dag og í gær var það svipað.

Í gær var skundað á hina fornfrægu sólarströnd Kaupmannahafnar í Klampenborg, Bellevue sem Arne Jakobsen hannaði. Það er ekki nóg með að hann hafi hannað alla aðstöðuna þar, því hann hefur líka hannað þó nokkrar villur í grenndinni, leikhúsið (Bellevue Theatre (1935-36) og veitingastað, Resturant Jakobsen.

Það var heitt og ég roðnaði það mikið að ég passaði mig í dag og hélt mig í skugga og innandyra.

Í dag fór ég m.a. í Svarta Demantinn og sá sýningu bandríska ljósmyndarans Sally Mann og grínteiknimyndir af dönskum forsætisráðherrum eftir danska teiknara sem birst hafa í blöðum. Það var skemmtilegt að rifja upp þekkt andlit úr danskri pólitík eins og Anker Jörgenssen, Poul Sluther og Uffe Elleman Jenssen. 

Sally Mann er af minni kynslóð fædd 1951, umdeild mjög fyrir efnistök sín í ljósmynduninni. Hún er þekktust fyrir myndir sínar af börnum, bæði sínum og annarra. Hún hefur líka rannsakað dauðann í myndefni og byrjaði fyrst á hundinum sínum eftir að hann dó. Vann sig út úr sorginni við missi hundsins með ljósmyndavinnu á honum eftir dauðann.

Á morgun fer ég til Svíþjóðar.

Reyni að hafa samband þaðan.

Bless á meðan.


mbl.is Mikil blíða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er í sólbaði

Það er gott ef Freyja getur sólað sig, þá veit ég að hún er ekki með viðkvæma húð.

Nú er ég að njóta sólarinnar af og til, Hleypinn, hleyp út og alltaf til skiptist. Hér á bæ eru ýmislegt að gerast, ég er að fara til DK í fyrramálið og til Sverige á miðvikudaginn. Kem aftur eftir viku. Þetta er skreppitúr. Rétt að kíkja á afkomendur.

Sindri kemur heim 20. ágúst og tekur litla skottið með og mamma hennar viku seinna. Hrund, Guðni og fjölskylda eru stanslaust í gestamóttöku í Svíþjóð. Erfitt að finna smugu sem ég get átt með henni og fjölskyldunni.

Best að drífa sig aftur út í sólina og svo reyni ég að skrifa eitthvað frá DK og Sverige.

Hafið það gott í dag og á morgun í veðurblíðunni.


mbl.is Freyja sólar sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð leið til styrktar fátækum

Í gegn um árin hefur verið bankað upp á heima hjá mér og beðið um flöskur til styrktar íþróttum, skátum, hjálparsveitum og vott ever!

En nú eru skemmtilegri verkefni framundan, gaskútarnir eru að vísu þungir en mun minna fer fyrir þeim en fullum svörtum ruslapoka af flöskum, enda ekki ekki hægt að fá nema brot af því sem hægt er að fá fyrir gaskút í skilagjaldi.

Nú er bara að safna öllum gaskútum og safna fyrir fátækum á Íslandi! Það þarf ekker að hanga með þetta yfir veturinn heima hjá sér, bara endurnýja næsta ár.

Bubbi þú byrjar.


mbl.is Gaskútar vinsælir hjá þjófum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framkvæmdir

Hér á bæ er mannurinn sá eini sem nennir að gera eitthvað. Hann ryksugar, eldar mat, smíðar glugga, málar, festir upp rör fyrir útblástur úr sturtu, slær garðinn þvær bílinn, teiknar eldhúsinnréttingu og nú erum við á leiðinni í bæinn, það er hin svokallaða borg, að kaupa eitt stykki eldhús í IKEA.

'Ég er auðvitað voða glöð - allt fylgir með sko allar græjur eins og ísskápur, uppþvottavél, kaffivél, ísskápaskúffur, spam helluborð, örbylgju/bakaraofn með hitaskúffu og svo venjulegur bakaraofn!

Ég held ég sé búin að telja allt upp!

Mannurinn spurði mig gær hvort ég yrði eitthvað ánægðari í lífinu við þetta?

Ég svaraði að það væri ég nú ekki viss um - kannski pínulítið.

Þá lyfti hann upp vísifingri og þumalputta og setti þá saman eins og þegar maður smellir fingrum, skildi samt rifu eftir og sagði; kannski svona lítið?

Annars er ég sæmileg.


Nellie McKay

Nú segi ég þið "verðið"!

Að sjá þetta myndband í morgunsárið var bara ekki fyndið heldur líka svo ljúft, milt og vel sungið.

Þess vegna segi ég þið verðið að sjá það.

Þökk sé Sóleyju að hafa fundið þessa snilld.

Hef ekki hugmynd hver þessi söngkona er og vona því að einhverjir geti frætt mig og aðra um hana, hún er yndi. 

Ef að fellibylurinn er á leiðinni til landsins , þá er þessi söngur einmitt til að hlusta á í rigningu og roki af Bertu!

En það er annað mál og krefst meiri pælinga með þessi kvennmannsnöfn á fellibyljum!


mbl.is Berta kemur til landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dauðarefsingar - vegna kynferðis?

Hér í þessaari frétt er sagt frá því að konurnar séu dæmdar m.a. fyrir sifjaspell. Það hvarflar að manni að þarna sé verið að snúa hlutunum á hvolf, það er að karlmaður sem er í sömu fjölskyldu og konan,  misnotar hana og hún er dæmd. Eða hvað haldið þið miðað við það sem sagt er frá hér í mbl fréttinni að þar eru átta konum refsað á móti einum karli?

Það er ekki svo ýkja langt síðan konur á íslandi voru látnar bera alla ábyrgð vegna naugana, misnotkunar og ofbeldis af hálfu karlmanna - þær voru líka teknar af lífi!

 "Í Íran er framhjáhald glæpur sem varðar við dauðadóm.  Refsilög Írans segja til um að karlmenn, sem hafa verið sakfelldir fyrir framhjáhald, skuli grafnir í jörðu upp að mitti og konur upp að brjóstkassa, áður en grýting hefst.  Þá er tekið fram að steinarnir eigi ekki að vera svo stórir að einstaklingurinn láti lífið við fyrsta

Óhugnaðurinn eftir þennan lestur, segir mér hvað það er hræðilega langt í land að kynin í heiminum nái jafnræði.


mbl.is Níu manns bíða þess að vera grýtt til bana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggvinir

Það er ekki hægt að segja annað en að það hafi verið léttskýjað í dag, þvílík veðursæld!

Ég hef verið með annan fótinn úti í porti að sóla mig og drekka kaffi og íste ásamt því að eiga góð símtöl við tvær bloggvinkonur.

Eins og margir vita eru bloggarar margir hverjir með hokið bak af reynslu lífsins og ekki er það verra að geta sótt í reynslubrunn þeirra með ráðgjöf og hlustun. Það eru ekki allir sem kunna að hlusta og þess vegna er mikilvægt fyrir alla sem lenda í hrakföllum að geta leitað til þeirra sem kunna þessa list.

 

Þetta er ekki þannig ef þið haldið það, að ég hringi í einhvern á blogginu ef mér líst vel á bloggið hans og beri mig upp við hann og biðji að hlusta!

Ó sei sei nei nei - margir bloggarar eru duglegir að hittast og hef ég hitt t.d. u.þ.b. helming af mínum bloggvinum og fyrir vikið á ég annarskonar samband við þá en aðra sem ég hef ekki hitt.

 

Hrafnhildur (Krumma) er ein af þessum bloggvinum mínum sem ég hef hitt og hefur mikla og jákvæða áru  og jafnvel gamla. Hún gæti verið dóttir mín vegna aldursins og hún gæti verið mamma mín vegna þessara sterku og þroskuðu áru.

Hún er yndisleg kona með hugann og starfsandann þar sem ég vildi helst vera - það er myndlistin.

  

Í dag átti ég gott símtal við Jennýju Önnu, hún er sú bloggvinkona mín sem ég þekkti áður en ég byrjaði að blogga. Við erum svokallaðir unglingavinir, áttum heima í sama hverfi og vorum yfirleitt þrjár til fjórar saman þegar við hittumst. En við höfum ekkert samneyti haft frá unglingsárunum og ekki vitað neitt af hvor annari fyrr en stuttu fyrir blogg.

Sömuleiðis átti ég líka langt og gott símtal við Kolgrímu sem hefur ekki bloggað lengi og þar bar hæst á góma fjölskylduleyndarmálin okkar beggja. ekki laust við að það hafi komið smá öfundarvottur yfir því að ein af okkar eðalbloggvinkonum getur svo til átakalaust skrifað um litla rasistann.

Allar eigum við leyndarmál og erum í misgóðri eða vondri aðstöðu til að opinbera þau en því miður þá verður að opinbera sum af þeim!

 


mbl.is Léttskýjað í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...söknuður...

DSC01608 Sandra María og Fylkir sonur minn sem var verkstjórinn hennar í unglingavinnunni.

Fylkir flytur til Aarhus 7. ágúst og þá verður stutt á milli þeirra Vejle-Aarhus. Fylkir flytur með kærustu sinni Alexöndru og bróður hennar og hans kærustu.

Þau eru öll að fara í nám, Fylkir í sálfræði, Alexandra í markaðsfræði, Bróðir hennar í tækninám og svo man ég ekki hvað kærasta hans ætlar, hún er búin að læra svo margt.

Næst kemur mynd af Emilíönu systur Söndru, hún var hérna líka með annan fótinn í þær þrjár vikur sæm þær dvöldu hér á landi.emelíana

Þær eru báðar yndislegar  og það var gott að hafa þær nálægt sér.

Það er fullt af fólki í fjölskyldu minni og fjölskyldu mannsins míns sem skoða bloggið mitt og finnst gaman af þessum myndbirtingum úr fjölskyldunni - en þau skrifa nánast aldrei í "athugasemdir eða gestabók" svo nú hvet ég þau til að gera það og koma með spurningar um hitt og þetta.

Að lokum er svo mynd af Alexöndru kærustu Fylkis frá því um jól með Magneu í fanginu.alex+magn


Sumarhúsakofar/gámar á lóðir í Reykjavík.

Það er dálítið fyndið að skoða þessa frétt af húsnæði í smíðum og einu tilbúnu af fjórum eða sex húsum sem setja á upp fyrir heimilislaust fólk eða "útigangsfólk"!

Hvaða reglugerðir eru allt í einu til sem leyfa byggingu á einhverjum sumarhúsakofum í Borginni sem hefur verið bannað með lögum frá því ég man eftir mér?

Ekki ætla ég að gera lítið úr þessum gámahúsum, en ég furða mig á því að það skuli ekki vera hægt að koma þessu fólki fyrir í venjulegum íbúðarhæfu húsnæði.

Það er gott til þess að vita þegar manns nánustu þurfa þessa aðstoð að þá verði það ekki tómir gámar, það  verður búið að fóðra þá að innan og setja upp óbrjótandi salerni og sturta sem þvær allt baðherbergið í leiðinni og húsgögn úr RFL vöruhúsinu, litrík rúmföt og snotrar rómantískar eftirlíkingar á veggina.

Takk fyrir umhyggjuna Reykvíkingar.


mbl.is Smáhýsi götufólksins bíða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Unglingavinnan

hrífaHér á Akranesi er unglingavinna eins og á flestum stöðum á landinu. Í sumar hafa synir mínir tveir verið verkstjórar í unglingavinnunni og Sandra María elsta barnabarnið mitt var að vinna í hálfan mánuð. Vinir hennar í Danmörku voru dálítið hissa á að hún skildi vinna í sumafríinu sínu og fannst það ekki flott - nú, sagði ég eins og fári, eftir að hafa spurt hana út í það hvort vinirnir væru ekki hissa og smá öfundsjúkir að hún hefði vinnu?

Nei. Þau voru það alls ekki, fannst það asnalegt og sögðust ekki vilja eyða fríinu sínu í vinnu.

Skólinn var ekki búin fyrr en 28. júní og svo er byrjað aftur fljótlega í ágústbyrjun.

Hér er ein mynd af Söndru við vinnuna, hún fór í morgun og er komin heim til sín í Vejle. Var að tala við hana á MSN.

 

Kæru bloggvinir, takk fyrir allar kveðjurnar - vona að ég geti farið að blogga aftur, kemur í ljós.


Næsta síða »

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband