Leita í fréttum mbl.is

Skólinn byrjaður með námskeiðum...

...í fyrradag. Námskeiðið sem ég sótti heitir Hamskipti og fjallaði m.a. um virðingu í starfi, þ.e.a.s. jákvæðni sem byggist á eigin hugsunum og hugsanabreytingum. Nálgunin er "sjálfið" hvernig líður mér persónulega og skilja á milli starfs og persónulegs lífs. Þetta var góð innlögn á skólastarfinu og ýmis verkefni unnin bæði í hóp og eistaklingslega. Ég ætla að halda áfram í Heimilisfræðinni og einnig að taka að mér skapandi vinnu með 2.bekkjar börnum. Ég hlakka til að takast á við verkefnin og vera með samstarfsfólkinu sem er frábær hópur í Brekkubæjarskóla.

 

Ég er að fara til Reykjavíkur núna og hitta mömmu mína sem langar að skoða yfirhafnir á Skólavörðustígnum og vill hafa mig með.Það verður spennandi að sjá það sem hún er búin að reka augun í og máta og ætlar að taka ákvörðun í dag.

untitled

Hér er komin mynd af fjórum barnabörnum mínum af fimm og sonur minn með sem á Magneu litlu. Allt tekið í stóra pottinum þeirra eldri og foreldra þeirra í Norsesund. Vatnið er svona brúnt hjá þeim vegna ofgnótts járns í því - það verður ekki lagað fyrr en 2008.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Það eru heppin börn sem fá þig sem kennara er ég viss um.  Það eru líka forréttindi að fá að vinna að þroskaferli barna.  Fallegar myndir Edda mín.  Njóttu dagsins.

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.8.2007 kl. 13:17

2 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Eigðu góðan dag

Marta B Helgadóttir, 16.8.2007 kl. 22:47

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Það ætti að vera skylda að setja börn á jákvæðni-námskeið fyrir 10 ára aldurinn.   

Flott hjá þér Edda.

Anna Einarsdóttir, 16.8.2007 kl. 22:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband