Leita í fréttum mbl.is

Innkaup í IKEA

Fór í innkaupaleiðangur IKEA með Frú Sigríði sem kennir á móti mér í heimilisfræði. Það var drifið í hlutunum og Frú Sigríður fékk ekki að ganga í gegn um IKEA, hún hafði aldrei komið þangað áður. Við borðuðum í teríunni og fórum svo í Rúmfatalagerinn.
Það er gaman að hreinsa svolítið til og fá nýtt dót í eldhúsið í skólanum.
Skrýtið hvað það er erfitt að tækla eitthvað sem er erfitt svona eins og umræðurnar um konuna sem lenti í þvagleggssýninu og eins þegar einhver bloggvinur eða bloggmeðlimur missir ástvin. Þetta tvennt hefur verið að minna mig á að hvað það er gott að vera í umhverfi sem gott er að leita til og eða skiptast á hugleiðingum um það sem miður fer hjá okkur. Ég finn fyrir svo miklum yl og skynsemi og ef skynsemin er ekki til staðar er svo auðvelt að leiða það hjá sér. Þeir sem verða fyrir áföllum í líifinu og deila því með okkur hjálpa svo mikið með því að vera með okkur í staðin fyrir að loka. En samt á hver einasta manneskja rétt á að loka.
Takk fyrir alla hlýjuna.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Elma Guðmundsdóttir

Er það ekki einmitt það sem gerir okkur að því sem við erum - samkendin. Hvað er betra en að leita huggunar hjá vini eða vandamanni eða veita slíka huggun - ekkert! Farðu vel með þig.

Hulda Elma Guðmundsdóttir, 23.8.2007 kl. 20:46

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Takk fyrir Hulda mín. Velkomin heim. Gott að sjá mynd af þér aftur.

Edda Agnarsdóttir, 23.8.2007 kl. 21:13

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk fyrir sjálf snúllan mín

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.8.2007 kl. 23:16

4 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Marta B Helgadóttir, 23.8.2007 kl. 23:39

5 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Æi, IKEA er búð sem ég fer helst ekki í nema þá í fylgd konunnar.  Hin búðin sem ég fer ekki í er Rúmfatalagerinn.

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 24.8.2007 kl. 00:21

6 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Gísli, finnst þér IKEA konubúð? Afhverju ferð þú aldrei í RL búðina? 

Edda Agnarsdóttir, 24.8.2007 kl. 13:17

7 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Hæ Edda.  Segi ekki endilega að IKEA sé konubúð en IKEA og Rúmfatalagerinn eru ekki mér að skapi.  IKEA er búðin sem aldrei ætlar að enda og RL er þannig að maður (kona) kaupir þar dót sem hægt er að henda.  Geri mér ekki ferð í þessar búðir einn.

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 24.8.2007 kl. 13:45

8 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Þá veit ég það, ég er alltaf að finna nýjar og nýjar leiðir til að stytta mér leið í Ikea og það er alltaf erfiðara og erfiðara. Mér finnst að þeir eigi að hafa hjólastóla eða hlauphjól fyrir kúnnann. Jú það er fullt af drasli í RL en ef þú ert klókur finnst ýmislegt sem akkur er í!

Edda Agnarsdóttir, 24.8.2007 kl. 16:49

9 Smámynd: Páll Jóhannesson

Hva fórstu í KEA ?

Páll Jóhannesson, 24.8.2007 kl. 17:31

10 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Alltaf er ég kom í borgina leit ég við í IKEA og fékk mér stundum að borða þar. Eitt sinn er maðurinn minn lá á Landspýtalanum fór ég ein þangað og fékk mér að borða. Kom þá til mín eldri kona og settist hjá mér og fór að spjalla .Við áttum saman góða stund yfir matnum kvöddumst svo og þökkuðum hvor annari fyrir stundina. Síðan hafa leiðir okkar ekki legið saman, en þetta er ein af góðu minningunum.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 24.8.2007 kl. 20:57

11 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Já það er alltaf gott að koma í I-KEA. Það er hægt að borða mjög ódýran og ágætan mat eins og ég og Frú Sigríður gerðum í gær. Svo er auðvitað margt að skoða.

En KEA sendir mér orðið bréf svona tvisvar þrisvar á ári um arðinn sem ég  fæ af því að vera í KEA hlýtur að vera. Ég fór að fá þetta fyrir einhverjum árum og skil hvorki upp né niður (jú jú ég fæ alltaf nokkra þúsundkalla á ári frá KEA)í þessu. Svo eru einhver afsláttakort í þessu líka. Ef þið Akureyringar vitið eitthvað um þetta, viljið þið ekki upplýsa aulana fyrir sunnan?

Edda Agnarsdóttir, 24.8.2007 kl. 21:52

12 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Takk sömuleiðis Edda mín. Það er sko ekki minnstu hlýjuna að finna hér skal ég segja þér.

Jóna Á. Gísladóttir, 25.8.2007 kl. 11:33

13 Smámynd: Arna Lára Jónsdóttir

Flott nýja lúkkið á síðunni - hvönnin kemur. 

Arna Lára Jónsdóttir, 25.8.2007 kl. 21:15

14 identicon

Þetta er svona ein af þessum færslum sem er svo gott að hafa með sér inn í daginn.  Takk Edda og takk líka fyrir öll fallegu kommentin í myndasafninu mínu  

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 26.8.2007 kl. 13:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband