Leita í fréttum mbl.is

Leikskólapláss (vöggustofu) og geðvernd.

Það eru tvær greinar í Morgunblaðinu í dag sem vekja athygli mína. Sú fyrri snýr að barnafjölskyldum og þrautargöngu þeirra fyrir þjónustu við börn þeirra eftir að barneignarleyfi lýkur og sú seinni fjallar um geðsýki ungs manns austan af héraði og þjónustuna við geðsjúka í dreifbýli.

Í fyrrasumar dvaldi ég í Kaupmannahöfn og vann á vöggustofum. Þar er tekið við börnum á vöggustofur 6 mánaða gömlum þótt það sé ekki algengt - flest koma inn um 1 árs aldurinn en mörg fyrr og mörg seinna. Úrræðin hér á landi eru dagmömmur og þær anna ekki eftirspurn í Reykjavík. Foreldrar verða því að leita sjálf leiða til að brúa bilið á milli  loka fæðingarorlofs og þangað til barnið hefur rétt á leikskólaplássi. Það gengur ekki árið 2007 að foreldrar séu enn í sömu sporum og ég var árið 1970.

Sveinn Snorri Sveinsson segir í ýtarlegu viðtali í dag að hann hafi barist við bæði neyslu og geðsjúkdóm í mörg ár sem endaði með andlegu áfalli og hafi aldrei komið til baka aftur en hann reyni ákaft að koma aftur til baka og muni halda því áfram. Þetta er lífsjátning og reynsla sem margir þekkja frá sjálfum sér og annara sem nálægir eru. Nú er hann formaður Geðhjálpar Austurlands, en batanum þakkar hann eimitt Geðhjálp og sjálfhjálparhópi á vegum Rauða kross Íslands. Niðurlag ljóðs eftir Svein, sem hefur gefið út nokkrar ljóðabækur og heitir Að veiða drauminn, er svona,

...

Afli skilinn eftir

ásamt veiðistöng á bakka

Eins og einhver hafi

brugðið sér frá

og snúi bráðum aftur

að vitja þessa draums.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég hef því miður ekki trú á að það hilli undir lausn í hvorugum þessara málaflokka.

Takk fyrir pistil.

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.8.2007 kl. 14:42

2 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Sæl. Nú er bókalistinn tilbúinn á síðunni minni.

Marta B Helgadóttir, 27.8.2007 kl. 02:20

3 Smámynd: Páll Jóhannesson

Bara hefðbundið Hæ og kvitt

Páll Jóhannesson, 27.8.2007 kl. 20:49

4 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Samfylkingin og félagsmálaráðherra hefur lofað frekari Samfélagsþjónustu.  Þai hljóta að standa við það, eða hvað?

Gísli í ruslinu

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 27.8.2007 kl. 22:03

5 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Gísli minn erum við ekki saman í ríksstjórn?

Edda Agnarsdóttir, 28.8.2007 kl. 13:44

6 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Fallegt ljóð Edda..... mjög.

Anna Einarsdóttir, 28.8.2007 kl. 23:24

7 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Segi eins og Anna. Mjög fallegt ljóð.

Jóna Á. Gísladóttir, 31.8.2007 kl. 16:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband