Leita í fréttum mbl.is

Krúttafrákast

Jenný bloggvinkona var með krúttafrákast í morgun og ég smitaðist - því miður er ekki hægt að hringja í mitt eða mín krútt og fá þau í heimsókn en ég birti bara myndir af þeim í staðin. 

studio mynd magnea

           Magnea mín í öllu sínu veldi

Í dag er Magnea nákvæmlega 13 mánaða 19 daga og 17 klukkustunda og 40 mínútna gömul.

Ég fer til hennar 20. október, eða eftir einn mánuð.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Eru þín í útlöndum eins og mín?

Ingibjörg Friðriksdóttir, 22.9.2007 kl. 19:39

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Svakalega falleg stelpa !  (pínulítið lík ömmunni).

Anna Einarsdóttir, 22.9.2007 kl. 20:33

3 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Kristjana. Já hún er falleg hún Magnea litla.

Ingibjörg. Ég á fimm barnabörn og þau búa öll í Sverige og DK.

Beta. Manni finnst svo stutt einn mánuður en svo þegar maður byrjar að bíða og telja daga þá er það langt.

Anna. Er hún ekki líkari Miðhraunsfólkinu?

Var að tala við pabba hennar í síma og magnea er óróleg og kveinkar sér mikið í klobbanum og fer að háskæla þegar hún pissar! Er einhver sem þekkir til þvagfærasýkingar/blöðrubólgu hjá svona litlum krílum?

Mínar stelpur fengu aldrei blöðrubólgu - svo ég þekki þetta ekki .

Edda Agnarsdóttir, 22.9.2007 kl. 23:07

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Elskan litla, gæti verið með þvagfærasýkingu eða bara auma húð.  Hafa þau athugað það?  Það kom stundum fyrir Jenný.

Elsku Edda ég veit að þetta er erfitt.  Knús á þig elskan.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.9.2007 kl. 00:34

5 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Takk Kristjana. Er þetta semsagt að koma fyrir hjá svona litlum krílum?

Edda Agnarsdóttir, 23.9.2007 kl. 00:35

6 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Takk fyrir Jenný mín. Þetta er allt í skoðun hér á kommentinu eins og þú sérð. Kristjana er leikskólakennari og vinnur með krílum svo hún er greinilega inni í þessu. Annars eru sumir  að segja aðþetta geti horfið af sjálfu sér? Að það þurfi ekki nein fúkkalyf? Þau eru samt alveg í startholunum að fara spítala/bráðamóttöku með hana á morgun.

Edda Agnarsdóttir, 23.9.2007 kl. 00:45

7 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Æi litla snúllan. Leiðinlegt að heyra að henni líði ekki vel. En þessi mynd er barasta ljósmynd af því sem fallegt er og saklaust. Yndislega fallegt barn.

Edda mín takk fyrir komment mín megin. Svo fallegt af þér.

Jóna Á. Gísladóttir, 23.9.2007 kl. 23:33

8 Smámynd: Hulda Elma Guðmundsdóttir

Fit genta! Ég þakka daglega fyrir Barnaland. Á barnabörn og langömmubörn í Hafnarfirði og á Akureyri, á heimasíðunum þeirra get ég fylgst með þeim.

Hulda Elma Guðmundsdóttir, 24.9.2007 kl. 12:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband