Leita í fréttum mbl.is

Kennaralaun

Víða hafa bæjar- og sveitastjórnir bætt kjör kennara með eingreiðslum  og lof um aðrar eða meira.

Kennarar á Akranesi sendu Bæjarstjórninni sinni bréf um ástand mála í skólunum hér, flótta úr stéttinni plús vandkvæði með forfallakennslu, ásamt því að aukning hefur aftur orðið á leiðbeinendum.

Það skemmst frá því að segja að bæjarstjórn Akraness tók  þetta fyrir í gær á fundi og sá enga ástæðu til að sinna þessu erindi, s.s sópað út af borðinu og ekki svaravert af því þeir hefðu ekki heyrt um þessi vandamál hjá stjórnendum skólanna.

Því er minn stjórnandi ekki sammála.  Hafa  kennarar ákveðið að ráða saman ráðum sínum og neita að taka forfallakennslu.

Mín laun eru fyrir 100% vinnu 247 þús brúttó 58 ára og kennt 17 ár. Útborgað fæ ég í kringum 180 þús.

 

PS. Verð að bæta þessu við. Eins og margir hafa orðið áskynja var viðtal við danska vændiskonu í Kastljósi í fyrradag og hefur verið gagnrýnt víða. Erla Sigurðardótir í Danmörku hefur skrifað góðan pistil um þetta viðtal sem hún kallar "að halda á hljóðnemanum" - ég set krækju á hennar blogg hér:

http://erlasig.blog.is/blog/erlasig/

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hneykslanleg laun.  Og flott hjá ykkur að bregðast við.  Lifi stéttarvitund og samstaða.

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.3.2008 kl. 13:43

2 identicon

Svæðasambönd kennara eru að vakna og þetta er ekki góður fyrirboði fyrir samningaferlið næstu vikurnar. Ef þetta verður ekki leiðrétt mun ég ekki mæla með nýjum samningum, ef þeir þá nást.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 12.3.2008 kl. 13:51

3 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Algjörlega sammála, launin eru hneykslanleg.  Í mínum skóla eru nemendur sendir heim, eða látnir hanga á göngum skólans, þegar kennarar eru veikir eða forfallaðir.    

Ingibjörg Friðriksdóttir, 12.3.2008 kl. 16:22

4 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Standið saman öll sem eitt.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 12.3.2008 kl. 16:55

5 Smámynd: Ásta Björk Hermannsdóttir

Foreldra félagið í skólanum hér var með fund í gærkvöldi um einmitt þessi mál og mér fannst bara ömurlegt að heyra þetta.

Bæjarstjóri var þarna ásamt þeim sem í bæjarstjórn sitja og þegar þeir voru inntir eftir því hvernig þeir ætla að bregðast við auknu álagi á kennarana þá var svarið "við ætlum að borga þeim með eingreiðslu"

Já..þeirra hugsun.......borga þeim peninga þá hverfur álagið!! Garg ég varð bara reið fyrir hönd kennara hér. Þetta finnst mér skammarlegt.

Ásta Björk Hermannsdóttir, 12.3.2008 kl. 19:04

6 identicon

Þú legir ekki flugvél hjá Hannesi Smárasyni á þessum launum.   Algjör hneisa.

Bloggið hennar Erlu er frábært.

Elisabet R (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 02:13

7 identicon

Las fundargerð bæjastjórnar Akraness. Fáráðleg rök gegn þessu erindi.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 09:10

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

kennarar eiga bara einfaldlega að vera vel launaðir, þeir eru með stórt verkefni á höndum sínum, framtíð landsins  Blow A Kiss

Ásdís Sigurðardóttir, 13.3.2008 kl. 15:11

9 identicon

Já sælllll!!! eigum við að ræða það eitthvað!!!!!

Heida Hannesdóttir (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 17:00

10 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Já umræðan í þessu tilfelli Heiða á að snúast um Akraneskaupstað.

Ásdís, þessi laun eru einkennileg, hér áður voru laun kennara fylgjandi þingmannslaunum.

Hallgerður. Þau eru ekki há og til merkis um það er að sumir kennarar sérstaklega þessir einstæðu treysta sér vart til  að sleppa því að taka aukakennslu sem býðst vegna efnahags.

Gísli, það er ekk hægt að segja annað en fáráðleg!

Elísabet, heldurðu að ég geti leigt íbúð fyrir peninginn?

Ásta Björk, það má svo sem segja það að svona eingreiðslur eru ekkert annað en smá snuð! En þetta snýst líka um stuðning og vilja sveitastjórna til að styðja við kjarabaráttu kennara. En hér á Akranesi hafa orð verið látin fall um það að kennarar geti bara sótt sér vinnu til Reykjavíkur, sem er vægast sagt með því ósmekklegra.

Já ólöf samstaðan skiptir máli.

Ingibjörg, þetta er það sem gerist, reiðileysi á hæðsta stigi og þolmörk kennara eru ekki endalaus.

Stéttarvitund er því miður ekki of mikil í dag - en sem betur fer hafa kennarar átt sterkt félag hingað til.

Edda Agnarsdóttir, 13.3.2008 kl. 18:57

11 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Það er rétt Erla, að verkfalltækið er útdautt að mínu mati.  Foreldrar hafa stutt leikskólakennara 100% í gegn um tíðina og það hefur m.a. annars orðið til þess að launin hafa hækkað. Þeirra laun eru orðin svo miklu hærri en okkar að ég veit ekki hvort við náum þeim nokkuð. Í það minnsta man ég aldrei eftir að samið hafi verið í einum samningi um þá upphæð sem vantar á til að við verðum til jafns við leikskólakennara. Það eru margir kennarar farnir inn á lekskólanna sem eru líka með leikskólakennararéttindi.

Edda Agnarsdóttir, 13.3.2008 kl. 19:04

12 identicon

Ég var að heyra í norðlesnkum fréttum að kennarar hér hefðu farið fram á álagsgreiðslur og/eða eingreiðslu. Ætli þeir fái sömu meðferð? Mér finnst sorglegt alemnnt séð ef bæjaryfirvöld sjá sér ekki hag í að vinna MEÐ kennurum.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 21:04

13 Smámynd: Brynja skordal

Hafðu ljúfa helgi

Brynja skordal, 15.3.2008 kl. 10:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband