Leita í fréttum mbl.is

Ekkert lát á barnavændi í heiminum.

verndÍ hádegisfréttum Útvarps mátti heyra þessa frétt þar sem börnum var bjargað úr klóm barnaníðinga sem selja börn í vændi.

Hér er brot úr fréttinni frá ruv.

"Nálega 400 manns hafa verið handteknir í Bandaríkjunum, síðustu 5 daga, grunaðir um að selja börn í vændi. 21 barni hefur verið bjargað úr kynferðislegri ánauð.

Þetta eru viðamestu aðgerðir bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, í slíku máli hingað til, og náðu þær til 16 borga. Undanfarin 5 ár hefur yfir fjögur hundruð börnum verið bjargað úr klóm glæpamanna. En yfirmaður FBI segir að Netið geri fólki auðveldara að ná börnum á sitt vald og einnig að selja þau öðrum ofbeldismönnum."

Ég ætla að setja inn hvern einasta óþverra um þessi mál í smá tíma - fá smá yfirsýn yfir það hvað þetta er stórt og mikið vandamál í heiminum.


mbl.is Stöðvuðu för „vændisbíls“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hreinasti hryllingur og ógeð, á eiginlega ekki orð.

Ásdís Sigurðardóttir, 26.6.2008 kl. 13:33

2 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

ég sá sjónvarpsmynd í fyrrakvöld um rannsókn á hvarfi drengs síðan 1976, það sem upp úr kafinu kom var hrikalegt...að það skuli vera svona mikið til að kynferðislega biluðu fólki er með ólíkindum, það verður að fara eyða fé til rannsókna á því hvað það er sem gerist í hausnum á þessu fólki og hvernig hægt sé að koma í veg fyrir það...refsingar virðast ekki hafa neinn fælingarmátt..

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 26.6.2008 kl. 13:34

3 Smámynd: Hulda Elma Guðmundsdóttir

Blessuð, þetta eru ógeðslegar fréttir en þær eiga ekki að koma okkur á óvart. Það er öllu verra að með nýjustu tækni, barnasíðum og öðru þá eykst barnaklám og barnavændi. Það væri kannski rétt að benda IG á aðrannsaka þetta frekar en gleymskuna.

Hulda Elma Guðmundsdóttir, 26.6.2008 kl. 13:48

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Flott framtak Edda.

Þetta er hreinn og beinn viðbjóður.

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.6.2008 kl. 14:20

5 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Sæl Edda.

Ég opna nánast aldrei blað án þess að sjá umfjöllun um þessi mál. Ég opna nánast aldrei blað sem fjallar um lausnir á þessum málum. Aðeins um eina hlið þessa máls, neytandans sem býr til eftirspurnina. Margir halda að barnavændi standi í beinu sambandi við aukin tilfelli manna sem eru haldnir barnagirnd, en svo er víst ekki. - Sem sagt, þetta er ekki afleiðing sálræns sjúkdóms. Almennt hömluleysi virðist ráða för frekar en nokkuð annað.

Hömluleysi er yfirleitt ekki fordæmt svo fremi sem það er löglegt en engu að síður teygir það sig auðveldlega inn á svið hins siðlausa. Þegar allar innri hömlur eru veiktar í skjóli þess að kynhegðun sé "persónuleg ákvörðun" án þess að mörk hennar séu skilgreind nema með lögum, er við því að búsast að fólk (aðallega karlmenn) láti óbeislaðar og ósiðvandaðar hvatir sínar ráða ferð, frekar en ekki.

Svanur Gísli Þorkelsson, 26.6.2008 kl. 18:36

6 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Svanur takk fyrir þitt innlegg, En hvað getum við eða samfélögin í heiminum gert við þessu hömluleysi?

Svo hrekk ég líka í kút yfir orðnotkuninni "neytandi" í þessu samhengi.

Hulda þú ert væntanlega að meina Erfðagreiningu?

Hvaða mynd er þetta Krumma?

Edda Agnarsdóttir, 27.6.2008 kl. 00:35

7 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Eftirfarandi er skrifað sem skoðun eins og ég mundi tjá hana ef við værum að tala saman. Þetta er ekki predikun :)

Edda reit: "En hvað getum við eða samfélögin í heiminum gert við þessu hömluleysi?"

Í eins stuttu máli og ég get; Það vita allir hvert ráðið er en treysta sér ekki til að kenna það eða fara eftir því. Það er orðið og hugtakið sem fær fólk virkilega til að hrökkva í kút að heyra. Andstæða hömluleysis er agi, í þessu tilfelli sjálfsagi og hann er "nó nó" allstaðar í dag.  Við erum að tala um aga þar sem verðlaunin eru ekki hól frá mömmu eða gullpeningur fyrir að vinna leikinn, heldur agi sem mótar karakterinn.  Agi sem verður til þegar þú neitar þér um að ljúga að öðrum og sjálfum þér. Agi sem verður til þess að þú tekst á við girndirnar frekar en að láta þær taka af þér ráðin.

Þetta byrjar í uppeldinu og endar þar líka. Þannig erum við annað hvort hluti af lausninni eða hluti af vandamálinu.

Lausnin er fyrir uppalendur að spyrna við fætinum í alvöru, sýn aga og boða aga byggðan á andlegum vexti frekar en verðlaunum eða velþóknun fólks.

Svanur Gísli Þorkelsson, 27.6.2008 kl. 01:10

8 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Edda mín þessi mynd var tekinn þegar barnabarnið fékk nafn..semsagt ég með ömmubarnið örþreytt á handlegg

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 27.6.2008 kl. 02:22

9 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Heyrði um daginn sögu af unglingi sem er í vistun vegna kynferðisglæpa,  mér fannst það óhuggulegst fyrir þær sakir að unglingurinn, vart kominn af barnsaldri (bara 13 ára) hvaði byrjað áður en hann varð kynþroska.

Ég kannaði örlítið söguna og hún var verri en svo að hægt sé að skrifa um hana hér, en ég get þó sagt ykkur að börn sem verða fyrri ofbeldi á unga aldri, missa eiginleikann sem gerir okkur fært að fara í spor annarra.  Þessi börn verða oft mjög sjálfhverf, reiðin, óttinn og sjálfsfyrirlitningin gerir þau blind þ.e. siðblind.  Svo verða þessi börn fullorðinn og þá fara fleiri að hata þau en þau sjálf.  Við hin, við bregðumst þannig við, að viljum helst sjá þau bak við lás og slá og mörg okkar værum til í að lúskra verulega á þeim.

Stöðvum ofbeldi!

Ingibjörg Friðriksdóttir, 27.6.2008 kl. 10:33

10 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Gott framtak.

Þetta er versta og viðurstyggilegasta tegund ofbeldis.

Marta B Helgadóttir, 27.6.2008 kl. 13:18

11 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Takk öll fyrir innlitið.

Svanur ég er sammála þér, en það vantar umræður-nar um lausnina. Mér finnst líka vanta umræður um það sem er jákvætt og fallegt um kynhegðun.

Ingibjörg, það er rétt að upplýsingaflæði er ekki of mikið um þau börn og unglinga sem eru gerendur og jafnframt fórnarlömb.

Krumma ég var klár á myndinni af þér og litlu snúllunni þinni! Ég var að meina bíómyndina!

Edda Agnarsdóttir, 27.6.2008 kl. 15:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband