Leita í fréttum mbl.is

...söknuður...

DSC01608 Sandra María og Fylkir sonur minn sem var verkstjórinn hennar í unglingavinnunni.

Fylkir flytur til Aarhus 7. ágúst og þá verður stutt á milli þeirra Vejle-Aarhus. Fylkir flytur með kærustu sinni Alexöndru og bróður hennar og hans kærustu.

Þau eru öll að fara í nám, Fylkir í sálfræði, Alexandra í markaðsfræði, Bróðir hennar í tækninám og svo man ég ekki hvað kærasta hans ætlar, hún er búin að læra svo margt.

Næst kemur mynd af Emilíönu systur Söndru, hún var hérna líka með annan fótinn í þær þrjár vikur sæm þær dvöldu hér á landi.emelíana

Þær eru báðar yndislegar  og það var gott að hafa þær nálægt sér.

Það er fullt af fólki í fjölskyldu minni og fjölskyldu mannsins míns sem skoða bloggið mitt og finnst gaman af þessum myndbirtingum úr fjölskyldunni - en þau skrifa nánast aldrei í "athugasemdir eða gestabók" svo nú hvet ég þau til að gera það og koma með spurningar um hitt og þetta.

Að lokum er svo mynd af Alexöndru kærustu Fylkis frá því um jól með Magneu í fanginu.alex+magn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Yndislegar myndir.

Ég get ekki orða bundist einn ganginn enn og minnst á hversu lík þér hún Sandra María er.  Hún er eins og spýtt út úr annarri nösinni á ömmu sinni.  Óvanlegt að sjá svona sláandi svip hjá "ömgum".

Knús.

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.7.2008 kl. 15:25

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Takk Jenný mín - hvað þýðir ömgum?

Edda Agnarsdóttir, 16.7.2008 kl. 16:47

3 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Flott fjölskylda. Eru ömgur ekki mæðgur í öðru veldi?

Helga Magnúsdóttir, 16.7.2008 kl. 18:23

4 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Það verður gott og gaman fyrir Söndru að hafa fleiri ættingja nálægt sér,

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 16.7.2008 kl. 20:10

5 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

svo er það ekki bara ættingjar sem hafa gaman af myndum, ég er myndasjúk....finnst ég kynnast fólki betur í gegnum myndir..

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 16.7.2008 kl. 20:12

6 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

lLklega er það svo Helga með ömgurnar! Takk fyrir kveðjuna.

Hún Sandra er samt svolítið fælin á allt það fólk sem tengist henni, hún vill hafa þröngan ramma í kringum sig vegna þess að hún hefur tengst svo mörgum fjölskyldum. Já það er voða gaman að skoða myndir af fólki sem  tengist fólki sem maður er í tengslum við.

Edda Agnarsdóttir, 16.7.2008 kl. 20:23

7 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Falleg fjölskylda ! bestu kveðjur til þín !

Sunna Dóra Möller, 16.7.2008 kl. 22:06

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ömgur eru örugglega amma og barnabarn, sniðugt orð hjá Jenný, fallegt fólkið þitt og erfitt að horfa á eftir þeim tíl útlanda, en þau eru að gera það sem þau langar og koma aftur þannig að meður getur glaðst yfir því. 

Ásdís Sigurðardóttir, 16.7.2008 kl. 22:24

9 Smámynd: Hulda Elma Guðmundsdóttir

Þú átt yndislega fjölskyldu Edda mín. Það er frábært fyrir ættingjana að geta skoðað myndir af sínum nánustu á netinu. Ég veit ekki hvernig ég hefði farið ef börnin mín og barnabarnið væru ekki með myndir og fleira af ungunum sínum á barnaland.is.

Hulda Elma Guðmundsdóttir, 17.7.2008 kl. 16:49

10 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Legg til að hér verði stofnað einskonar nýyrðablogg.  Ömgur er flott orð.  Við mæðgurnar og þegar þriðji ættliðurnn bætist við þá ömgur.  Frábært!

´Hún Sandra María er bara nákvæmlega eins og ég ímynda mér að þú hafir litið út fyrir ca þrjátíu til fjörutíu árum.  Dúllubínur

Ingibjörg Friðriksdóttir, 17.7.2008 kl. 23:30

11 identicon

Í fyrsta lagi - algjörlega frábær nýja myndin af þér  og í öðru lagi styð ég nýyrðið hennar Hrannar "ömgur"  - einstaklega vel orðað!!

Edda (IP-tala skráð) 18.7.2008 kl. 00:00

12 Smámynd: Heiða  Þórðar

Falleg börn og falleg ertu á nýju myndinni í höfundarglugganum, skvís.

Heiða Þórðar, 18.7.2008 kl. 01:15

13 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Flott nýja myndin af þér. Allt mjög fallegt fólkið þitt og þú frábær myndasmiður.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 18.7.2008 kl. 21:39

14 Smámynd: Kolgrima

Þetta eru yndislegar myndir

Kolgrima, 19.7.2008 kl. 06:44

15 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Takk öll sömul fyrir innlitið og kveðjurnar - þið eruð æðisleg!

Edda Agnarsdóttir, 19.7.2008 kl. 10:38

16 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Edda mín.  Rosalega góð nýja myndin.  Þú lítur sko EKKI út fyrir að vera amma. 

Anna Einarsdóttir, 20.7.2008 kl. 14:05

17 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Já Anna þakka þér fyrir - sérðu ekki að ég er að herma eftir þér!

Edda Agnarsdóttir, 20.7.2008 kl. 14:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband