Leita í fréttum mbl.is

ÞORLÁKUR...

...hinn helgi Þórhallsson biskup í Skálholti (1178 - 1193) var tekin í dýrlingatölu á Íslandi 1198. Eini Íslendingurinn sem útnefndur hefur verið verndardýrlingur Íslands frá páfastóli af Jóhannesi II árið 1985.

Dagurinn í dag er dánardægur Þorláks en Þorláksmessa að sumri er 20 júní og var lögleiddur tugum ára eftir lát hans og var einn mesti hátíðsdagur Íslendinga fyrir siðaskipti.

Skyldi nú skatan hafa orðið hefðarmatur Vestlendinga til höfuðs honum?

Jólakveðjur til allra bloggvina minna.

 Gleðileg jól

og farsælt 2009 eða þannig!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Elma Guðmundsdóttir

Blessuð. Mikið er ég búin að sakna bloggsins frá þér, gott að þú ert komin aftur. Ég óska þér og þínum gleðilegra jóla, farsældar og friðar á nýju ári.

Hulda Elma Guðmundsdóttir, 23.12.2008 kl. 14:19

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Sömuleiðis Elma mín. Takk fyrir peppið.

Edda Agnarsdóttir, 23.12.2008 kl. 15:24

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gleðileg jól elsku Edda.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.12.2008 kl. 15:55

4 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Gleðileg jó

Sunna Dóra Möller, 24.12.2008 kl. 14:16

5 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Jó á að sjálfsögðu að vera jól , var of fljót á mér að senda...

Sunna Dóra Möller, 24.12.2008 kl. 14:17

6 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Gleðilega jólahátíð Edda, Birgir og fjölskylda.

Takk fyrir skemmtilegar stundir. 

Anna Einarsdóttir, 24.12.2008 kl. 14:19

7 Smámynd: Brattur

Gleðilega hátíð... í nútíð og þátíð...

Brattur, 24.12.2008 kl. 14:20

8 identicon

Þrátt fyrir að skatan hafi alltaf verið á borðum heima hjá mér, sem sagt ég allist upp við þann sið þá hef ég aldrei getað fellt mig við hvorki lyktina né bragðið. Bóndinn þarf því að fara í annarra manna hús eða á veitingastað til að verða sér úti um hana. En nú er það hangikjötslyktin sem ræður ríkjum á heimilinu og konan að ærast úr löngun að þjófstarta og fá sér flís af heitu beint úr pottinum  Gleðileg jól mín kæra bloggvinkona og takk fyrir kveðjuna um daginn. Komst að því að bóndinn þinn og minn þekkjast víst frá fyrri tíð. Er það ekki rétt skilið hjá mér? Bestu kveðjur í bæinn úr norðrinu

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 25.12.2008 kl. 15:38

9 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Jú Anna mín, spiluðu saman í hljómsveit! Ég er alltaf með eina mynd í huga að senda þér sem er gullfalleg og skemmtileg heimild frá þessum tíma af hljómleikum í Laugardagshöll. Ég er bara framkvæmdalaus og þarf að skanna hana inn. Það kemur!

Jólaknús á ykkur öll.

Edda Agnarsdóttir, 25.12.2008 kl. 15:53

10 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Gleðileg jól

Marta B Helgadóttir, 25.12.2008 kl. 21:42

11 Smámynd: Kristinn Ásgrímsson

Gleðileg jól kæra frænka og bestu kveðjur til fjölskyldunnar.

Kristinn Ásgrímsson, 26.12.2008 kl. 00:33

12 Smámynd: Sverrir Einarsson

Gleðilega jólarest. Ég rakst inn á bloggsíðuna þína, ekki  slæmt það. Þetta með Láka vissi ég sumt annað ekki. En þetta með skötuna veit ég fyrir víst að er Vestfirðinga siður, hef aldrei heyrt þetta hafi verið Vestlendinga siður ( þú veist Vestfirðir og Vesturland ekki sami landshlutinn) en nú reynir á þig að upplýsa mig hvort þetta hafi verið siður til forna á Vesturlandi ekki bara Vestfjörðum.

Svo að öðru mér óviðkomandi, ég er nú kominn á þann aldur að öll sagnfræði vekur forvitni og drífðu þig nú að koma þessarri mynd af húsbandinu þínu á tölvutækt form og setja hér á netið......bara til að svala forvitni minni um hvort ég þekki einhvern í bandinu

Sverrir Einarsson, 26.12.2008 kl. 18:15

13 Smámynd: Huld S. Ringsted

Gleðileg jól Edda mín

Huld S. Ringsted, 28.12.2008 kl. 22:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband