Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2007

Magnea 8 mánaða barnabarn.

Myndir, 85 ára afmæli Sillu 098Meiningin var að setja inn margar myndir af henni Magneu minni þar sem m.a. sést í tennurnar hennar, en því miður gat amma ekki fundið út úr því.

Það bíður betri tíma þegar amma er búin að læra meira um blog.is!

Þessi mynd var tekin á jólunum og þarna er Magnea 6 mánaða. Hún býr annars í henni Danmörk og í henni Kaupmannahöfn.


Virðingin gagnvart heilabiluðum,

er hún einhver? þarf eitthvað að bera virðingu fyrir fólki sem er heilabilað? Heilabilaðir, minnislausir (alzheimer) er bara fólk sem er búið að vera eða hvað?

Þarf fólk sem veikist af minnisleysi ekki að hafa neitt fyrir stafni, er nóg ef að það fær að vakna, klæðast, borða, sofa og tala í gegn um aðra?

Faðir minn er minnisveikur og hefur verið það að öllum líkindum lengur en við aðstandendur hans vitum um. Fyrir u.þ.b. einu og hálfu ári var honum boðið að koma ásamt mömmu og systur minni að skoða sig um á dagvistun fyrir heilabilaða á Vitatorgi, þar fyrir var fólk að spila, horfa á sjónvarp og eflaust eitthvað fleira. Pabbi, mamma og systir mín fengu upplýsingar um starfsemina og gengu um með konu sem tók á móti þeim sem reyndi að tala við pabba um kosti þess sem þau höfðu upp á að bjóða. Það þarf ekki að orðlengja það að pabba leist ekki á aðstæður og reyndar var systir mín ekki mjög hrifin heldur.

Nokkru seinna var hringt í mig frá Fríðuhúsi (dagvist fyrir heilabilaða) og pabba boðið að koma þangað að skoða sig um með eitthvert okkar úr fjölskyldunni. Ég og konan sem ég talaði við komum okkur saman um að ég færi og talaði við pabba til að vita hvort hann vildi koma og svo mundi ég hringja aftur og láta vita. Ég fór að tala við pabba og hann hafði engan áhuga á að fara, hann sagðist ekki þurfa neitt á því að halda og vildi bara vera heima, punktur - basta. Ég hringi í konuna og segi henni að hann sé ekki tilbúin. "Þá tek ég hann bara af biðlista" Segir konan við mig með spurnartón. Ég segi við hana að hann vilji alls ekki fara núna og kannski hefur hann ekki þörf akkúrat núna fyrir þetta og hvort það þurfi að taka hann af biðlistanum. Konan lætur í ljós undrun á því að hann vilji ekki koma, svona eins og hann sé að missa af tækifæri lífs síns. Mín viðbrögð voru að minna hana á að ég gæti ekki þvingað hann til að koma og önnur  ráð væru ekki til taks í þetta skiptið. Samtalinu lauk með því að hann þyrfti lengri tíma og við mundum hafa samband aftur.

Í dag er pabbi orðin mun veikari og þarf virkilega á dagvist að halda, ekki bara sín vegna heldur líka vegna mömmu svo hún geti hvílt sig, hún er þreytt. Það eru komnir sex mánuðir síðan mamma og systir mín fóru í Fríðuhús að skoða en pabbi vildi ekki koma inn með þeim, það var tekið á móti þeim af velvilja og hugulsemi og þær gengu glaðar út með þá vitneskju að pabbi kæmist fljótlega að hjá þeim í Fríðuhúsi, þær búnar að fá leiðbeiningar um hvernig aðlögun heilabilaðar manneskjur fá og það yrði síðan hringt þegar pláss losnar. Í byrjun desember hringir systir mín til að athuga hvernig staðan er, hún fær þau svör að hann sé ekki á biðlista og í ljós kom að einhvers staðar í kerfinu hafi hann verið tekin út af honum!

Ferlið byrjaði upp á nýtt, hringingar í lækni, félagsráðgjafa, þann sem sér um biðlistana og Fríðuhús. Frá því um áramót hefur pabbi tvisvar verið fluttur á sjúkrahús vegna verkja sem hann getur ekki tjáð sig um, hann hefur gengið í gegn um rannsóknir sem aftur leiddu til þess að reynt var að ýta á eftir einhverjum úrbótum í hans málum.

Eftir margar hringingar, tölvusamskipti og fundi vegna niðurstaðna rannsókna eftir spítalainnlagnir erum við eflaust ekki verr stödd en hver annar sem á aðstandenda í þessari krísu með heilabilaðan einstakling. Reynsla okkar er auðvitað okkar reynsla og engin hefur sömu upplifun, virðing fyrir lifandi fólki sem hefur þarfir en getur ekki bjargað sér án aðstoðar virðist vera í lágmarki, ef þú þarft aðstoð skaltu þiggja hana strax og þér er boðið eitthvað, það er ekkert svigrúm til að undirbúa eða vinna á mannúðlegan hátt að breytingum á lífsmynstri hins sjúka.  

Að pabbi hafi dottið út af biðlista eru víst mistök! Við eru ekki búin að fá aðra skýringu, en á morgun er fjölskyldan að fara á fund með heilbrigðisteyminu á Landakoti.


Silla 85 ára í dag.

Sigurlaug Arndal StefánsdóttirSilla frænka, móðirsystir mín er 85 ára í dag. Hún hélt partý í gær á Blönduósi og voru nokkur hundruð manns í partýinu.

Sigurlaug Arndal Stefánsdóttir frænka er elst systra sinna sex  en á tvo bræður að auki einn eldri og annan yngri. Hún er grunnskólakennari með handmennt sem aðalgrein. Hún kenndi lengst af í Þorlákshöfn þar sem maður hennar Gunnar Markússon var skólastjóri. Þau eignuðust fjögur börn, Hildi, Þór Jens, Stefán og Ágústu. Gunnar lést fyrir tæpum tíu árum.

Nokkru eftir fráfall Gunnars kynntist Silla Torfa Jónssyni  frá Torfalæk í Austur Húnavatnssýslu og flutti hún til hans í íbúð fyrir aldraða á Blönduósi. Þau áttu nokkur mjög góð ár saman en Torfi hefur dvalið á Heilbrigðisstofnuninni Blönduósi á annað ár.

Til hamingju Silla mín með daginn og takk fyrir boðið í gær!


Kvennahreyfing Samfylkingarinnar er Feminístahreyfing!

Úps, þetta var svo skemmtilegt í gær. Þvílíkt dúndur. Nú eru jafnaðarkonur komnar svo um getur í eina sæng, engin spurning!

Stjórnafundur kvennahreyfingarinnar var á milli 14 og 17 og ég sat hann ekki. þar var að vísu kosin ný stjórn og er Steinunn Valdís hetjan okkar orðin formaður. Svo bara veit ég ekki um fleiri við hljótum að fá vitneskju í dag inn á netið hverjar eru með henni í stjórn.

Kl. 17 byrjaði fundurinn með innleggi Ingibjargar Sólrúnar þar sem hún lýsti m.a. því hvað hún hefði orðið ástfangin af kvennasamstöðunni og stofnun kvennaframboðsins fyrir 25 árum.

Næst kom Katrín þingkona sem fór á kostum, hún bæði vitnaði í æði mörg mál sem konur á þingi hafa lagt fyrir og eins fyrirspurnir um mál, þar að auki var reynsla hennar frá því hún byrjaði í pólitík rakin stuttlega með áherslum á hve hún hefði eflst sem jafnréttissinni, kona og feministi og fannst í rauninni að hún væri líka hluti af Kvennalistanum  þót hún hefði aldrei verið þar.

Þetta voru svo yndislegir þankar hjá henni.  

Þá kom Helga Vala undir fyrirsögninni "Ekkert hik" og hún hikar ekki, í það minnsta ekki lengur. Það er auðvitað ekki gott að segja frá svona, Helga Vala fór í gegn um þetta á ómótstæðilegum krafti og útgeislun, hún er leikkona og nýtti sér þá sérstöðu til að gefa fólki innspýtingu um framkomu og framsetningu. hennar mottó er m.a. verum skemmtileg og hafið það skemmtilegt. Enda voru allirí hláturskasti eftir hennar innlegg.

Takk fyrir það Helga.

  Sigríður Dögg Auðunsdóttir, ritstjóri Króniku hélt erindi undir heitinu "Kynlegir fjölmiðlar" þar kom margt athyglisvert fram. Engin kona hefur verið útvarpsstjóri, (nema Arnþrúður Karlsdóttir með sitt útvarp Saga) engin kona hefur verið sjónvarpsstjóri, engin kona hefur átt fjölmiðil (fyrr en nú) engin kona hefur verið ritstjóri dagblaðs, konur sem eru ritstjórar kvennatímarita eru öll í eigu karlmanna og svona má telja lengi í viðbót.

Vonandi verða þessi innlegg aðgengileg á netinu svo við getum fylgst með þessu. Eftir þetta komu ýmsar konur upp og sögðu örsögur úr lífinu og það var eitt nýtt fyrir mig sem ég hnaut um, það er að í 86 ára sögu stúdentaráðs hafa aðeins sex konur gegnt formannsembætti stúdentaráðs og er kosið á hverju ár!


Kvennahreyfing Samfylkingarinnar í dag. Allir velkomnir.

Konur í baráttuhug - Ársþing Kvennahreyfingarinnar

Ársþing Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar og opinn fundur undir yfirskriftinni "Konur í baráttuhug" fer fram á Hótel Loftleiðum næstkomandi laugardag. Þetta er annað ársþing Kvennahreyfingarinnar. Hreyfingin hefur vaxið mjög í fjölda á undanförnum árum og er mikill hugur í meðlimum hennar fyrir komandi Alþingiskosningar.  

Ársþingið hefst kl. 14.00, með hefðbundnum aðalfundarstörfum; skýrslu stjórnar, kosningu og afgreiðslu ályktana.

Kl. 17.00 hefst opinn fundur undir yfirskriftinni Konur í baráttuhug. Framsögur flytja þær Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar, Katrín Júlíusdóttir alþingismaður og Helga Vala Helgadóttir laganemi og frambjóðandi.

Þær Þórunn Sveinbjarnardóttir, Kristrún Heimisdóttir, Valgerður B. Eggertsdóttir og Guðný Hrund Karlsdóttir munu þar á eftir flytja örsögur úr baráttunni, úr eigin reynslubrunni.

Sigríður Dögg Auðunsdóttir ritstjóri Króníkunnar, nýs vikurits, mun að síðustu flytja erindið "Kynlegir fjölmiðlar".

Blásið verður til hátíðarkvöldverðar á Hótel Loftleiðum að lokinni dagskrá kl. 19.00

Afdráttarlausar áherslur Samfylkingarinnar

  • Skilyrðislaust jafnrétti karla og kvenna
  • Jafnréttismál verði færð undir forsætisráðuneytið
  • Afnám launaleyndar og kynbundins launamunar
  • Jafnréttismiðað nám í skólum landsins
  • Barátta gegn klámvæðingu og ofbeldi
  • Tafarlausar umbætur í réttarkerfinu í þágu fórnarlamba kynbundins ofbeldis

Brekkubæjarskóli/Heimilisfræði

Í vetur tók ég að mér að kenna Heimilisfræði en er annars myndmenntakennari. Heimilisfræðikennarinn er í námsorlofi í Kaupmannahöfn. Það er skemmtilegt að kenna krökkunum  og margt spaugilegt gerist hjá okkur en líka stundum eitthvað sem ekki á að gerast.

Fyrir nokkrum dögum kom upp eldur af olíu á pönnu, krakkarnir urðu dáldið hræddir og öskruðu á mig, ég var í hinum enda stofunnar og þegar ég leit upp var eldhafið næstum upp í loft og ummál bálsins ein steikarpanna. Ég gekk hljóðalaust að eldteppinu og kippti því niður með rykk og lagði yfir eldinn, það var dauðaþögn. Ég áminnti þau um að ekki mætti ekki setja fullan straum undir þegar nota á olíu, það var alveg klárt að þetta var besta kennslustundin í vetur. Það var ekki bara óhappið heldur meðtóku þau örugglega fyrir lífstíð hvernig meðhöndla á olíu í matseld.

En ekki er ég nú viss um að ég hefði gengið svo fumlaust til verks ef ekki hefði verið sýnikennsla ásamt verklegu með starfsfólki skólans strax eftir áramót í  brunabvörnum frá slökkviliði Akraness.

Hér kemur svo ein uppskrift af pestó sem notuð var á þemadögum í skólanum í janúar, hún er tekin bók Nönnu Rögnvaldsdóttur Matarást gott með brauði, pasta eða bar einhverju!

P E S T Ó

Upprunalega kemur pestósósan frá Persíu (Íran) en er tengd Ítalíu órjúfanlega í dag. Nafn sósunnar er komið frá ítalskri sögn pestare "að steyta" þannig var sósan eimitt búin til þ.e. í morteli og allt efnið steytt í hana. Í dag þykir mörgum steytt pestó betra og flottara en flestir búa hana þó til í blandara eða matvinnsluvél. Sósan er mest notuð með pasta á Ítalíu, aðallega þó með tagliatelle. Uppskriftin hér að neðan er algengasta pestósósan en hún er þó til í nokkrum fleiri útgáfum.  

Pestó bls. 442

 Hnefafylli af basillikublöðum

4 msk nýrifinn parmigiano- eða pecorino-ostur

2-3 hvítlauksgeirar

3 msk fururhnetur

Örlítið salt/pipar

1½ dl ólífuolía 

Allt nema olían sett í blandara eða matvinnsluvél. Stillt á meðalhraða og olíunni hellt út í í mjórri bunu. Hrært þar til sósan er slétt og jöfn. Ef þunnu olíulagi er hellt á yfirborðið á sósunni geymist hún í allt að tvær vikur í ísskáp, en þá er best að setja ostinn ekki út í fyrr en nota á sósuna.

Verði ykkur að góðu.

 


Nemendum fækkar í skóla á Íslandi en kennurum fjölgar?

Hér í fréttum morgunblaðsins á mbl.is í dag eru fréttir af mismuni nemenda og kennara í grunnskólum Íslands og eins meðalaldur kennara í dag! 
mbl.is Grunnskólanemendum fækkaði milli ára en kennurum fjölgaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flestir lúta fremur rökum, sem þeir finna sjálfir, en þeim sem aðrir færa fram.

Umræðan um stjörnur klámiðnaðarins sem eru á leið til Íslands eftir nokkra daga hér á blog.is hafa oftar snúist upp í heiftarlegt skítkast og vægast sagt óheflaðan málflutning. Engum er til góðs að hjakka í sama farinu og ætla ég að senda hér athugasemdarfærslu sem ég hef skrifað.

Pjetur Hafstein Lárusson skrifaði ágæta færslu á heimasíðu sína og hvet ég fólk til að lesa hana ásamt athugasemdum.

Nokkrir hafa einnig bloggað um skilningsleysi þeirra sem ekki vilja klámið til Íslands eins og t.d. þessi.

Að lokum birti ég athugasemd við athugasemd við skrifum Pjeturs.

 

"Binni og Tommi. Orðabókin segir að orðið KLÁM þýði: 1 grófgert, illa unnið verk  2 gróft orð, klúryrði (einkum um kynferðismál eða kynfæri) - málfar, mynd eða annað sem beinir athyglinni að kynlífi eða kynfærum án nauðsynjar í listrænu samhengi, fræðslu e.þ.h. (skammstöfunin hér undan þýðir EÐA ÞESS HÁTTAR)

Tvær setnigar frá ykkur herramenn hnaut ég um, sú fyrri er frá Binna: Er algerlega mótfallin ýmsum reglugerðum og lögum um þetta mál.

Eitt svar til umhugsunar, KLÁM er bannað samkvæmt lögum á Íslandi.

Sú seinni er frá Tomma:Helst ber þar að nefna barnaklám og eiturlyfjanotkun sem þú tengir á frekar hæpinn hátt við þetta fólk.

Staðreyndin er sú samkvæmt öllum rannsóknum sem gerðar hafa verið á klámi og klámvæðingu sama hvað þér finnst það líta sakleysislega út, að það er tengt miklu stærra neti sem stundar hryðjuverk (nýja orðið yfir þetta frá Alþingi) á borð við mansal, barnavændi og síðast en ekki síst eyturlyfjasölu.

Binni og Tommi, ekki veit ég hvaða aldur þið berið og vonandi eru þið ekki orðnir pabbar, en þegar þið verðið það þá hugsið um dætur ykkar, því ef ekki nú sem við spyrnum við ógeðinu sem fylgir kláminu, þá bið ég Guð að hjálpa ykkur.

Eitt enn, þetta hefur ekkert með það að gera að taka ekki á móti fólki eða einstaklingum til landsins (jafnvel þótt það hafi áhuga á klámi) þetta hér fjallar um skipulögð samtök í klámiðnaði sem eru að koma hingað í tugum manna og jafnvel hundruðum til að taka m.a. klámmyndir."

Læt þetta gott heita í bili - en ég er ekki hætt að berjast gegn klámi. Ég tek undir orð Önnu Láru við þurfum kröftuga umræðu um siðferði kynlífs.


Aftur klám

Það er óþægilegt að horfast í augu við þann viðurstyggilega sóðaskap sem sendur er út í nafni peninga og gerfiþarfa og troðið bæði beint og óbeint upp á manneskjuna. Ég hef ekki sent út færslu síðan í fyrradag  vegna depurðar sem stafar af allri umræðunni og vitneskjunni sem skapast hefur vegna fyrirhugaðrar klámráðstefnu eða leikstefnu 150 manna á gömlu Hótel Sögu í Reykjavík.

Vegna þessara umræðu hafa menn skipst á skoðunum í bloggheimi og fjölmiðlum. Það sem situr helst eftir af því sem ég hef fylgst með er að þeir sem eru fylgifiskar kláms (sem flestir af þeim segja að erfitt sé að skilgreina klám) hafa varið tilveru þessa hóps og væntanlega komu til landsins  með ferðafrelsi og einkalífi. Það sem þrengir þessa hugsun er að þetta eru ekki einstaklingar á ferð hver í sínu lagi heldur eru þetta hópur fólks á vegum skiplagðra samtaka í klámiðnaðinum og koma sem slíkir undir merkjum þess.

Það er líka uppgövun út af fyrir sig fyrir mig að hafa haft kjark til að fara á heimsíðu þessa klámhrings og vafra um heimasíðuna og lenda í hryllingi sem ég hélt að ekki væri til, allavega ekki opið fyrir hvern sem er. þar inni er sá mesti viðbjóður sem ég hef séð í misnotkun á kvenlíkamanum. Ef konurnar eru ekki drukknar, uppdópaðar eða hreinlega geðveikar að þá hljóta þær að vera þvingaðar. Það segir mér engin að klám sé gert með fullu samþykki viðkomandi nema þetta sem ég á undan sagði er í gangi.

Hvaða fyrirmyndir skyldu þessar stúlkur/konur hafa haft í sínum uppvexti? Það skyldi þó aldrei hafa verið karlmenn sem hafa rænt þær æskunni og heilbrigðu líferni og kynlífi?


Umræða klámsins nær til kirkjunnar manna.

Þar er hvatt til þess að við stöndum vörð um og stöndum saman um að landið okkar verði ekki leiksvið klámmynda.
mbl.is Þjóðkirkjan og prestafélag Íslands harma klámráðstefnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband