Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009

Jóhanna

Ég tek undir með Össuri, Jóhanna þarf að vera formaður flokksins hvort sem það verður í styttri eða lengri tíma.

Hún verður einfaldlega að taka við.

Ekkert meir um það að segja.


mbl.is Össur biðlar til Jóhönnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er erfitt

Auðvitað veit ég að maður kemur í manns stað - en sé engan sem sem mig langar virkilega að hafa í staðin fyrir Ingibjörgu!

 Kannski Dag, veit það ekki, Jóhanna er góð, en hún hefur sagt að hún sækist ekki eftir formanninum. Mig langar að hafa konu fyrir formann og ég gæti hugsað mér Steinunni Valdísi hún er yndi.

Hvað með Steinunni og Dag?

Ég sé mikið eftir Ingibjörgu en þetta er líka gott, ástandið er flókið, hún er einn af blórabögglum bankahrunsins og krafan er frekar fersleiki en reynsla. 

Múgurinn er með ofvirkni sem þýðir að það er ekki hægt að slaka á og líta til baka - það á allt að gerast strax, svona er Ísland í dag.


mbl.is Ingibjörg Sólrún hættir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ingibjörg Sólrún hefur þó gert eitthvað!

 Ástæða er til að vekja athygli á þessum vel skrifaða pistli Guðmundar Andra Thorssonar. Ingibjörg Sólrún komst í hann krappan að móðga þjóðina, en umburðarlyndið sem hún fær fyrir allt það góða sem hún hefur gert fyrir þjóðina er grafið og gleymt á svona stundum. Ágætt að láta minna sig á og draga fram kosti fólks í allri neikvæðninni sem hefur tröllriðið samfélaginu.

 Fréttablaðið, 02. mar. 2009 06:00

Gangan langa

mynd

Guðmundur Andri Thorsson. skrifar:

Ógleymanleg verður manni myndin af Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur þar sem hún er studd út af heimili Geirs Haarde af Össuri Skarphéðinssyni, sínum nánasta samverkamanni - og hafði risið af sjúkrabeði sínum til að bregðast við kröfu kjósenda um nýja ríkisstjórn, nýja forystu í landsmálum, ný úrræði. Að fara nú að gera eitthvað og hætta þessu ráðleysi.

Þetta er ein af myndum hrunsins. Þetta er eitt af augnablikunum. Eftir á er eins og ráðherrarnir hafi verið í miðju taugaáfalli - ekki síst Geir Haarde sem öllum spurningum svaraði með: „nei nei, alls ekki, auðvitað ekki, nei nei, við viljum bara fá vinnufrið."

Þetta er sterk mynd: Gangan langa. Maður sér hana fyrir sér þar sem hún gekk hægt og hetjulega skref fyrir skref út úr þessari ríkisstjórn á vit óvissunnar og studdist við styrkan arm Össurar og eigin vilja og ekki fór á milli mála hversu brothætt hún var og sterk - útkeyrð og einbeitt.
Þessa daga var djarft teflt og vel. Og Ingibjörgu Sólrúnu og samverkafólki hennar tókst að skapa nýja stjórn og leiða til öndvegis Jóhönnu Sigurðardóttur, sem á það öðrum fremur skilið að verða fyrsta konan til að sitja í stóli forsætisráðherra og blómstrar í starfinu - og virkja til starfa Vinstri græn, spriklandi af fjöri og athafnaþrá.

Sagt er að Ingibjörg Sólrún hafi ekki axlað sína ábyrgð. Jafnvel heyrast raddir - til dæmis frá síðbúnum Samfylkingarmönnum - sem tala eins og hún hafi fyrirgert kjörgengi sínu, megi ekki bjóða sig fram í annað sæti á lista Samfylkingar eða til formanns. Ég veit það ekki.

Brást hún? Henni voru vissulega mislagðar hendur í utanríkisráðherratíð sinni; gerði að sinni vonlausa oflátungsbaráttu Halldórs Ásgrímssonar fyrir sæti í Öryggisráðinu, gekk of langt í að leggja nafn sitt og þjóðarinnar við athafnir íslenskra fjárglæframanna þegar hún sat með þeim á örvæntingarfullum blaðamannafundi í Danmörku. Og átti víst fundi með Davíð Oddssyni og Geir Haarde í aðdraganda hrunsins þar sem Davíð virðist nánast hafa verið í hlutverki Kassöndru úr grísku goðafræðinni, en sú bölvun hvíldi á Kassöndru að hún sá allt fyrir en enginn trúði spádómum hennar (sem sýnir aftur hversu rangur maður Davíð var sem Seðlabankastjóri).

En Ingibjörg Sólrún gerði líka ýmislegt vel í ráðherratíð sinni, stöðvaði smánarlegan stuðning Íslendinga við Íraksstríð Bushstjórnarinnar, fordæmdi framferði Ísraelsmanna, beindi utanríkisstefnu landsins frá áralangri fylgispekt við Bandaríkjamenn og leitaði samhljóms við frændþjóðir.

(Reyndar er það ráðgáta hvers vegna svo mikil fremd þykir að vera utanríkisráðherra - er það ekki leif frá þeirri tíð þegar stórkostleg upphefð þótti að geta farið til útlanda og fengið bjór og Toblerone?)

Brást Ingibjörg Sólrún? Hefur hún fyrirgert foringjahlutverki sínu? Sjálfum finnst mér full snemmt að skera úr um um það.

Fyrri ríkisstjórn var ekki snjallræði þó að svo kunni að hafa virst að hún væri sú eina sem staðan bauð upp á eftir óljós úrslit síðustu kosninga, og flestum hafi virst þá sem þau Geir Haarde og ISG sýndu þroska og stjórnvisku að gera hið besta úr snúinni stöðu. En þetta var pattstjórn. Ákvörðunum var slegið á frest í uppgerðarsamlæti afla sem eiga að takast á og vera okkur kjósendum andstæðir valkostir. Hafi stjórnin haft eitt sögulegt hlutverk var það að koma Íslandi í ESB og leiða okkur frá Laissez-faire-stefnu Davíðstímans - frjáls-æðinu - en það var greinilega til of mikils mælst.

Sjálfstæðismenn voru ekki tilbúnir. Ekki heldur að halda áfram á Davíðsbraut. Það var eins og þeir segðu í sífellu: Æ getum við ekki talað um þetta á morgun…

Einna jákvæðast við næstu kosningar er að flokkarnir komast ekki lengur upp með þann dónaskap við okkur kjósendur að „ganga óbundnir til kosninga". Skýrir valkostir eru nú í fyrsta sinn síðan 1956: Annaðhvort vinstri stjórn Samfylkingar og VG eða hægri stjórn Sjálfstæðis-flokks og Framsóknarflokks. Þegar Höskuldur hugðist sýna Sigmundi Davíð hver væri sterki maðurinn í litla hægriflokknum var útkoman að sjálfsögðu sú að Framsókn verður ekki treyst til annars en gamalkunnra refja.

Brást Ingibjörg Sólrún? Hún brást að minnsta kosti við. Hún sagði af sér ráðherradómi og skapaði nýja stjórn áður en hún fór heim að sofa. Hún reyndi að starfa af heilindum í vonlausri ríkisstjórn en tók af skarið um síðir og sýndi hvers konar leiðtogi hún er: leiðtogi sem hlustar - og bregst við.
Slíkur leiðtogi á að minnsta kosti rétt á því að bera það undir kjósendur hvort þeir vilja veita henni brautargengi.


En eitt dæmið um hvernig konur hafa vitið fram yfir karla!

Ásta er kona og vonandi getur hún eða hefur hún fundið leiðina að hjarta sjálfstæðisflokksins til kæfa niður þann risarembing sem átt hefur sér stað í röðum karlanna innan flokksins.

Hún fær prik hjá mér fyrir þetta.

Vonandi taka fleiri konur hana til fyrirmyndar og vaði ekki áfram í blindgötum karla sem konur þurfa alltaf að endurreisa og leggja á brjóst.


mbl.is Baðst afsökunar á mistökum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband