Leita í fréttum mbl.is

Skáldsögur, leshringir skákmót og (sn)illingar á blogginu.

Hún Jóna er komin með þriðja hlutann af sögunni og ég get andað léttar, hún er ekki alveg búin að fatta að ég er ekkert unglamb lengur og verð að fara sofa á skikk tíma.

Leshringurinn sem Marta er búin stofna eða nánast, lofar góðu og eru margir spennandi bókatitlar tilnefndir en fáir útvaldir.

Anna heitir kona sem semur ljóð, teflir, (ekki bara við páfann), fer í river ravting eða hvað þetta heitir og bullar. Hún er komin með skákfélaga á blogginu!

Jenný bloggar i dag um frétt á mbl.is og vekur upp viðbrögð hjá ýmsum snillingum og líka illingum.

Jenný er feministi og oft þegar sérstaklega karlmönnum mislíkar bloggið hennar að þá eiga þeir það til að klína á hana FEMINISTA stimpli svona eins og helvítis homminn þinn við homma - já það er oft grunnt á því. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég hef áhuga á þessum leshring.  Elska leshringi.  Kynni mér það nánar.

Jóna er frábær rithöfundur og ég veit að þess verður ekki langt að bíða að hún verður til sölu (sko bækurnar hennar vona ég muhahaha) í öll BETRI bókabúðum.

Anna er alveg stórskemmtilegur bloggari.

Ég er auðvitað æðisleg.  Segi svona.  Ég var eimitt að hugsa um það Edda hvort umræðan um þvagleggsmálið hefði verið tengd inn á feminisma ef ekki stæði í höfundarboxinu að ég aðhylltist þá pólitík.

Svo ertu bara frábær sjálf

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.8.2007 kl. 13:39

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ég hef ALDREI teflt við páfann !    Held samt ég myndi vinna hann.

Manni hlýnar um ræturnar að vera þulin upp með ekki ómerkari bloggurum en Mörtu, nýkrýndum sigurvegara í sögusamkeppni, Jónu snillingi... sem pottþétt verður fræg mjög fljótlega fyrir bækurnar sínar og Jenný, súperbloggara sem vermir alltaf topp 10 listann.

Ég verð feimin.   

Anna Einarsdóttir, 21.8.2007 kl. 17:48

3 Smámynd: Marta B Helgadóttir

... og svo ertu ekki sem verst sjálf Edda

Marta B Helgadóttir, 21.8.2007 kl. 20:54

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Það er aldrei leiðinlegt að fá svona kynningu . Þú ert nú meira krúttið Edda mín. Alltaf gaman að heimsækja þig, þessar dömur hér að ofan og ótal aðra blogg-snillinga. 

Edda getur verið að við höfum þekkst í fyrra lífi, fyrr í þessu lífi eða í öðru lífi?

Jóna Á. Gísladóttir, 21.8.2007 kl. 21:32

5 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Allar búnar að skila sér. Það var nú gott.

Jenný mín þú verður að haska þér í að senda henni Mörtu mail sem hefur veg og vanda á þessum leshring. Jú ég er klár á því að kynningin á þér í höfundarboxinu hefur áhrif á kommentin þvagleggsmálið, það eru karlmenn á blogginu sem eru í svona andfeminískum leik og þefa upp alla feminísta.

Já Anna mín, þetta er nú eitthvað skrýtið með páfann - en við tölum um það í skákkeppninni.

Marta mín, ég bara man ekki hvort ég var búin að senda þér hamingjuóskir með 1. sæti - geri það hér með. Hlakka til leshringsins, get varla beðið.

Jóna króna, ertu farin að slappast í minninu? Manstu ekki eftir mér þegar við vorum saman árið 1883 á leiðinni til New York?

Ég fékk blóðeitrun um borð í póstferðaskipinu sem við fórum með til Noregs og svo þegar við fórum í stóra skipið varð ég veik og ég minntist þess þá að hafa fengið sárskeinu á fótinn í skútunni á ryðgari járnlíningu stjórnborðsmegin. Þú ætlaðir að verða hjúkka og fékkst dágóða æfingu við hjúkrun, aðallega að hreinsa ígerð og sárið - en það dugði ekki til engin fúkkalyf til á þessum tíma og engin njólablöð að fá úti á rúmsjó. Ég var jarðsett í kirkjugarði á Manhattan og ég man alltaf eftir því að það þurfti ódýra kistu og hún var keypt af Kínverja sem seldi tágakistur - hún var mjög falleg. Þú fórst að vinna á spítala dáldið norðarlega í Bandríkjunum, ég held að staðurinn heiti Ann Arbor, þú vannst þar í heilt ár og þaðan fórstu til Kanada í einhverja borg sem ég man ekki nafnið á, þar lærðir þú hjúkrun. Þú barst auðvitað annað nafn þá, það var Olga ég man ekki hvers dóttir. Ég hét aftur á móti Ólöf Indriðadóttir og var kölluð Lóa.

Edda Agnarsdóttir, 21.8.2007 kl. 23:36

6 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Lóa !  Ert þetta virkilega þú ? 

Anna Einarsdóttir, 21.8.2007 kl. 23:51

7 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Mikið afskaplega var þetta skemmtileg saga Edda . Og ekki síst vegna þess að mamma (sem dó 1973) hét Ólöf og var Indriðadóttir. Skemmtilegar þessar tilviljanir ekki satt

Jóna Á. Gísladóttir, 22.8.2007 kl. 00:15

8 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Mér fannst Anna freeeeeeeeeeeekar fyndin núna

Jóna Á. Gísladóttir, 22.8.2007 kl. 00:16

9 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Jóna ertu ekki að ljúga eða grínast ?

Edda Agnarsdóttir, 22.8.2007 kl. 12:20

10 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Já Anna hún er alltaf fyndin blessuð manneskjan.

Edda Agnarsdóttir, 22.8.2007 kl. 12:21

11 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Mér er fúlasta alvara. Finnst þér þetta ekki sniðugt? Kom þetta nafn til þín frá skógarálfinum eða...?

Jóna Á. Gísladóttir, 22.8.2007 kl. 13:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband