17.12.2007 | 22:32
Stormviðvörun Stormviðvörun Stormviðvörun Stormviðvörun Stormviðvörun Stormviðvörun
Er engin þreyta í mönnum á þessu orði "stormviðvörun" eða kannski veðri?
Ég er alveg búin að fá upp í kok á þessu. Þeir sem búa úti á landi og þurfa að sækja margt til Reykjavíkur þá er þetta orðið ansi þreytt.
Gátu þeir ekki beðið með þetta þangað til í janúar?
Hvað finnst ykkur? Eruð þið sátt?
Hafið þið einhverjar tillögur/lausnir?
Stormviðvörun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Feminístar
Grá Gautaborg og víðar
- Feminístar Steinunn frænka og fl.
Stjórnmálin
Alþingismenn, bæjar-og sveitarstjórnarmenn og áhugafólk
- Össur Varaformaður Samfylkingarinnar
- Oddný Sturludóttir Oddný er borgastjórnarfulltrúi Samfylkingarinnar
- Ásta R. Jóhannesdóttir Samflokksmaður og gamall vinur
- Annna Kristín Gunnarsdóttir Skipar 3. sæti NV-landi fyrir X-S
- STEINUNN VALDÍS Feministi og pólitískur vinur
- http://
Fjölskylda
Börn, tengdabörn og barnabörn.
- Þór Birgisson Örverpið mitt.
- Sindri Birgisson Sonur minn, leiklistarneminn.
Bloggvinir
- jenfo
- jonaa
- kolgrima
- annaeinars
- krummasnill
- draumur
- heg
- ringarinn
- olapals
- christinemarie
- gudrunkatrin
- sunnadora
- helgamagg
- gisgis
- svanurg
- pallijoh
- olinathorv
- skordalsbrynja
- lillagud
- hlynurh
- siba
- fridust
- gurrihar
- rosa
- annriki
- heidathord
- ingolfurasgeirjohannesson
- ragnhildur
- gisliivars
- stormur
- ragnarfreyr
- jakobk
- hjolaferd
- ingasig
- reni
- arnalara
- alfholl
- fridaeyland
- soley
- toshiki
- korntop
- kallimatt
- saxi
- bryndisfridgeirs
- hugsadu
- astabjork
- kiddip
- skaftie
- thor
- huldam
- annaragna
- fjola
- kloi
- hronnrik
- manisvans
- brandarar
- truno
- vefritid
- samfo-kop
- para
- gattin
- adhdblogg
- tryggvigunnarhansen
Athugasemdir
Ég vil fá lögbann á þetta endalaus hvassviðri, veit sem ekki hversu líklegt það er að það muni virka. Þótt við hér á Akureyri höfum sloppi vel sem komið er þá er þetta orðið ansi hvimleitt.
Páll Jóhannesson, 17.12.2007 kl. 22:45
Tek undir það Edda, það hefði mátt fresta þessum látum fram yfir áramótin. Þetta spillir notalegri aðventustemningunni
Marta B Helgadóttir, 17.12.2007 kl. 23:01
Senda Sigga Storm til Kanarý. Annars er bara gott veður hjá mér.
Ásdís Sigurðardóttir, 17.12.2007 kl. 23:19
Stomviðvörun er orðið daglegt brauð. Hvenær fáum við eiginlega jólasnjóinn?
Heldur myndi ég vilja hvíta jörð, frost og stillu. Væri það ekki betra?
Gísli Bergsveinn Ívarsson, 17.12.2007 kl. 23:37
Var einmitt hugsað til ykkar sem búa á Suðurlandinu þegar ég sá veðurfréttir í kvöld, er feginn að þurfa ekki að vera á ferðinni. Bestu kveðjur í rokið.
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 18.12.2007 kl. 00:03
Við hér í Engihjallanum í Kópavogi erum að verða vitlaus á þessu. Ég bý áveðursmegin þessa stundina þegar það eru endalausar sunnan eða suðaustan og suðvestan áttir allir gluggar lokaðir og ekkert súrefni. Alveg til í að setja þetta í nefnd og biðja um hvíta jörð, frost og stillu löngu tímabært.
Ingigerður Friðgeirsdóttir, 18.12.2007 kl. 00:26
stormur ormur.. hnuss.. þetta eru bara í kringum 9 vindstig.. peace of cake ... Er þetta það besta sem Herra Veður getur gert ?? hann er greinilega að slappast og snjórinn kemur á aðfangadag.. fallegur og mildur.. sannaðu til
Björg F (IP-tala skráð) 18.12.2007 kl. 00:32
Þetta er að verða ansi þreytandi, mig langar í jólansnjó og alveg stafalogn og svona stór snjókorn sem falla til jarðar !
Það er spurning að reyna að semja eitthvað við almættið !
Sunna Dóra Möller, 18.12.2007 kl. 08:28
Meira segja ég, veðurperrinn, er að fá nægju mína og vel það.
Lausn: Flytja á suðlægari slóðir. Vonandi týmir þú því þó ekki.
Eru krútt komin í hús?
Jenný Anna Baldursdóttir, 18.12.2007 kl. 09:12
Jenný mín. Mar var eitt stressbúnt í gær út af þessu veðri en þau eru komin þessar elskur. Steinsofnuðu á leiðinni í bílnum og pabbinn rétt kom sér inn í rúm með barnið og þar lágu þau dauðþreytt. Sé eftir að hafa ekki tekið mynd af þeim!
Já Sunna dauðþreytt og Björg ég vona það líka!
Ingigerður ég get rétt ímyndað mér það að það sé erfitt og þreytandi að hlusta á gnauðið alla daga!
Hrafnhildur og Jón þið eruð heppin að vera á Akureyri um þessar...mm namm namm Akureyri!
Gunnar og Beta, ég vildi að ég gæti bæði hætt að heyra og spá! Hvernig yrði það annars?
Ásdís Marta og Gísli, eigum við ekki fara næst út og athug í storminum hvort við getum ýtt landinu með hjálp stormsins suður á bóginn?
Edda Agnarsdóttir, 18.12.2007 kl. 10:05
Það jákvæða við þetta er að mengunin sem kemur frá okkur fýkur til annarra
Þorsteinn Ingimarsson (IP-tala skráð) 18.12.2007 kl. 10:07
Ingigerður við sem búum hinum megin í húsunum í Engihjallanum finnum ekki fyrir neinu
Þorsteinn Ingimarsson (IP-tala skráð) 18.12.2007 kl. 10:09
Hér í Nesk. er bongóblíða dag eftir dag. Ef það vindar og rignir þá er það á nóttinni. Tek undir að það væri frábært að fá smá frost, stillu og snjó.
Hulda Elma Guðmundsdóttir, 18.12.2007 kl. 12:53
Jú, ég er búin að fá algjörlega nóg af þessu veðri, þrátt fyrir að ég búi í sjálfum höfuðstaðnum. Lægðunum fylgir þreyta og óútskýranlegur doði, andlegt tómlæti, já og kannski bloggleti.
Ingibjörg Friðriksdóttir, 18.12.2007 kl. 13:59
Það er víst að við hérna á Fróni getum alltaf rætt um veðrið. Hugsið ykkur ef alltaf væri logn og blíða, þá gætum við lítið rætt um það. Ég er hrædd um að einhverjir þarna fyrir sunnan séu alltaf að dansa rigningardansinn ! Við hér fyrir norðan þurfum lítið að kvarta,hálkan búin og allt að verða autt.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 18.12.2007 kl. 16:17
það er einsog í hárblásara hérna á Hólum - sunnanvindurinn búinn að vera þvílíkur að ég trúi því alveg að dómkirkjan hafi fokið þarna um árið.
Guðrún Helgadóttir, 18.12.2007 kl. 17:05
Sjö, níu, þrettán og allt það en við hérna í Eyjafirðinum höfum sloppið furðuvel. Eins gott, í það minnsta fyrir mig því að ég er alveg skíthrædd í miklu roki En spurning með tímasetninguna, kannski er bara gott að klára þetta á þessu ári - smá-Pollíanna hér
Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 18.12.2007 kl. 22:47
Vúhúúú.... það er líklegt að snjói á sjálfan aðfangadag.
Svakaleg stemming yrði það nú !
Anna Einarsdóttir, 19.12.2007 kl. 19:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.