Aldís tengdadóttir mín og Magnea litla rúsína komu á fimmtudagskvöldið til Íslands. Mamman kom til að gæsa vinkonu sína á mótorhjólum, flugvél, spa og út að borða á laugardaginn. Á meðan var Magnea litla hjá ömmu Signý og afa Páli í Laxakvíslinni. Ég og afi Birgir fórum í bæinn á laugardagsmorgunin til að hitta hana og aftur í gær.
Hér er Magnea heima hjá ömmu Signý og afa Páli.
Í gær komu þær mæðgur í afmælisboð til Eyrúnar Aradóttur bróðurdóttur minnar sem verður 11 á morgun. Ég fékk hana s.s. í afmælisgjöf fyrir ellefu árum. Þar var margt um manninn eins og venjulega heima hjá bróður mínum og mágkonu, Védísi sem búa á Melhaganum og eiga þrjú börn. Ari er litli bróðir minn, samt bara tíu árum yngri og fór dáldið á seinni skipunum í barneign þannig að börnin hans eru af kynslóð barnnabarna minna.
Hér eru börnin hans Ara bróður: Eyrún 11 ára, Egill 9 ára og Hrafn (Krummi) 5 ára.
Við komum við hjá pabba í lok dags til að leyfa honum að berja Magneu augum , en Magnea var feimin við hann og pínulítið skelkuð. Pabbi er líka skrýtinn útlits í veikindunum og getur ekki talað. Samt náðist ágætis mynd af honum og er Aldís og Magnea með á myndinni en litla mús hjúfrar sig að mömmu sinni.
Að síðustu er það mynd af okkur þremur á kveðju stund fyrir utan spítalann í gær. Íslenskt rok mjög viðeigandi og þær komnar heim í sumarhitann eða 30 stiga hita.
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Feminístar
Grá Gautaborg og víðar
- Feminístar Steinunn frænka og fl.
Stjórnmálin
Alþingismenn, bæjar-og sveitarstjórnarmenn og áhugafólk
- Össur Varaformaður Samfylkingarinnar
- Oddný Sturludóttir Oddný er borgastjórnarfulltrúi Samfylkingarinnar
- Ásta R. Jóhannesdóttir Samflokksmaður og gamall vinur
- Annna Kristín Gunnarsdóttir Skipar 3. sæti NV-landi fyrir X-S
- STEINUNN VALDÍS Feministi og pólitískur vinur
- http://
Fjölskylda
Börn, tengdabörn og barnabörn.
- Þór Birgisson Örverpið mitt.
- Sindri Birgisson Sonur minn, leiklistarneminn.
Bloggvinir
- jenfo
- jonaa
- kolgrima
- annaeinars
- krummasnill
- draumur
- heg
- ringarinn
- olapals
- christinemarie
- gudrunkatrin
- sunnadora
- helgamagg
- gisgis
- svanurg
- pallijoh
- olinathorv
- skordalsbrynja
- lillagud
- hlynurh
- siba
- fridust
- gurrihar
- rosa
- annriki
- heidathord
- ingolfurasgeirjohannesson
- ragnhildur
- gisliivars
- stormur
- ragnarfreyr
- jakobk
- hjolaferd
- ingasig
- reni
- arnalara
- alfholl
- fridaeyland
- soley
- toshiki
- korntop
- kallimatt
- saxi
- bryndisfridgeirs
- hugsadu
- astabjork
- kiddip
- skaftie
- thor
- huldam
- annaragna
- fjola
- kloi
- hronnrik
- manisvans
- brandarar
- truno
- vefritid
- samfo-kop
- para
- gattin
- adhdblogg
- tryggvigunnarhansen
Athugasemdir
Yndislegar myndir. Innilega til hamingju með afmælið elsku Edda mín. Alltaf gaman að hitta fólkið sitt þótt stutt sé. Knús
Ásdís Sigurðardóttir, 12.5.2008 kl. 18:36
Yndislega falleg börn.....maður er svo ríkur að eiga afkomendur...
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 12.5.2008 kl. 20:29
Takk fyrir samveruna :o)
Við erum komnar heilar heim, og Magnea fór beint út á róló með pabba sínum.. rosalega glöð að sjá hann !!
Svo sötruðum við súpu í kvöldmatinn, og magnaða litla sofnaði bara ofaní skálina sína !
- alveg búin á´ðí, eftir allt ferðalagið ;o)
Biðjum kærlega að heilsa heim *mwa*
Aldís og Magnea (IP-tala skráð) 12.5.2008 kl. 20:55
Flottar myndir
Ingibjörg Friðriksdóttir, 12.5.2008 kl. 21:24
Takk kærlega fyrir afmæliskveðjurnar Ásdís mín - ég á samt ekki ammæli fyrr en á morgun!
Krumma mín nú öfunda ég þig kéddling, með útskriftasýninguna og barnabarnið nýja! Var ég annars búin að segja til hamingju ? Ég man það ekki en geri það núna!
Aldís, gott að heyra frá ykkur - mikið hefur litla músin verið orðin þreytt - knús!
Takk fyrir innlitið Ingibjörg - þær mega líka vera flottar ég er búin að eyða miklum tíma í þær við lagfæringar og innsetningu á bloggið. Ég tók þær allar sjálf nema síðustu og er nokkuð stolt af þeim.
Edda Agnarsdóttir, 12.5.2008 kl. 22:28
Til hamingju með afmælið Edda mín.
Þau eru öll sæt þessi börn. Enda eiga þau ekki langt að sækja í brunninn.
Jenný Anna Baldursdóttir, 12.5.2008 kl. 22:42
Takk fyrir afmæliskveðjurnar Jenný mín - og falleg komment á börnin.
Edda Agnarsdóttir, 12.5.2008 kl. 23:45
Flottar myndir Edda.
Marta B Helgadóttir, 13.5.2008 kl. 09:10
Til hamingju með afmælið Edda ;o) Gaman að sjá Magneu þótt hvítasunnuhnúturinn sé að leysast upp á annars mjög fínum myndum hjá þér. Gott að þau koma öll bráðum aftur. Kv. Signý
Signý Kjartansdóttir (IP-tala skráð) 13.5.2008 kl. 09:36
Til hamingju með að vera maí stjarna eins og sumir hverjir aðrir góðir menn og konur
Ingibjörg Friðriksdóttir, 13.5.2008 kl. 09:57
Takk Marta!
Signý, takk fyrir afmæliskveðjuna og þú sérð hér að ofan kommentið frá Aldísi! Ég held bara að myndirnar séu nokkuð góðar!
Takk Ingibjörg, þetta er splunkunýtt fyrir mig að vera maístjarna - takk!
Edda Agnarsdóttir, 13.5.2008 kl. 10:25
Til hamingju með daginn og flottu myndirnar.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 13.5.2008 kl. 16:33
Til hamingju með afmælið Þetta eru geggjaðar myndir af yndislegu fólki
Kolgrima, 13.5.2008 kl. 19:46
Til Lukku með Daginn !!! :o)
Vona að þú hafir gúffað í þig köku og sælgæti :o)
..namm namm !!
- og kannski Bigga ís, sem er n.b. BEZTI ÍS í HEIMI !!
Aldís (IP-tala skráð) 13.5.2008 kl. 21:21
Takk fyrir innlitið, Ægir, Aldís, Hallgerður, Ragnhildur og Ólöf. Takk fyrir afmæliskveðjurnar líka.
Edda Agnarsdóttir, 14.5.2008 kl. 13:00
Þetta eru nú meiri sætulingarnir sem þú átt Edda
Ingibjörg Friðriksdóttir, 15.5.2008 kl. 14:32
Æ, hvað hún er sæt. - Ó, finnst þér ekki erfitt að hafa hana svona langt í burtu?
Man svo vel eftir honum pabba þínum. Hann hefur verið veikur er það ekki?- Hann var alltaf svo glaður og hress.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 17.5.2008 kl. 02:04
Til hamingju með Afmælið þó seint sé hafðu ljúfan sunnudag Elskuleg
Brynja skordal, 18.5.2008 kl. 00:38
Síðbúnar afmæliskveðjur til þín Edda mín
Ari bróðir er náttúrlega forríkur maður og þú efnuð kona. Falleg fjölskyldan þín. Ómetanlegt að eiga þau. En það veistu nú þegar.
Jóna Á. Gísladóttir, 18.5.2008 kl. 13:49
Til hamingju með afmælið Edda og mergjaðar myndir af börnunum,já að eiga Ara sem bróður er alveg geggjað,enda hefur hann kennt mér söng og verið í hljómsveit með mér í Fjölmennt í bráðum 10 frábær ár.
Magnús Paul Korntop, 18.5.2008 kl. 15:36
Gaman að sjá krakkana hans Ara, við vorum ágætis vinir þegar við vorum krakkar Takk fyrir að taka við mér sem bloggvin, ætlaði að vera búin að senda óskina fyrir löngu síðan.
Huld S. Ringsted, 18.5.2008 kl. 16:32
Nú á ég ekki orð! Hvar varst þú Hrund að leika við Ara?
Magnús, ertu að segja satt? Það er aldrei að fólk hér á bloggi þekkir til minna! Takk fyrir innlitið og afmæliskveðjur.
Jóna mín, ég var farin að sakna þín - hélt að þú værir búin að yfirgefa mig! En fór alltaf í Pollýönnu og sagði mér sjálf, hún hefur svo mikið að gera!
Takk fyrir Brynja og sömuleiðis.
Jú það er oft erfitt að hafa sætulingana í burtu - en kannski finnast líkar plúsar í því, þ.e.a.s. ef þau væru öll hér þá ætti ég kannski erfitt með að uppfylla ömmuskyldur, því þessi amma er í 100% vinnu og ég hugsa oft um það að það væri bara ekki hægt ef þau væru öll í n´lægð við mig. Ég á eina vinkonu sem er alltaf með ömmudag einu sinni í viku, á miðvikudögum er opið hús fyrir öll barnabörn!
takk fyrir innlitið Guðrún og Ingibjörg.
Edda Agnarsdóttir, 18.5.2008 kl. 16:50
Það er ekki hægt að segja að við höfum leikið okkur saman en það kannski segir þér eitthvað að mömmur okkar eru saman á Spáni núna
Huld S. Ringsted, 18.5.2008 kl. 16:55
Ja hérna nú er ég svo aldeilis hlessa! Ég hef meira segja heilsað upp á hana mömmu þína á Svalbarðsströndinni! Er hún ekki búandi þar ennþá?
En ég man aldrei eftir að hafa þekkt börnin hennar - samt kom ég oft til Akureyrar barn að aldri og eitt sumar var ég á Rifkelsstöðum í sveit.
Þær kellurnar voru í fínu formi í dag - Gyða systir mín hringdi í mömmu og þær voru þá saman í leigubíl og allt í góðu lagi.
Edda Agnarsdóttir, 18.5.2008 kl. 17:48
Jú þau búa ennþá á Svalbarðsströnd. Ari og tvíburarnir eru þau einu af ykkur sem ég hef hitt. Gaman að fá fréttir af kellum þarna úti, þær eru örugglega flottar saman
Huld S. Ringsted, 18.5.2008 kl. 19:04
býð þér og Bigga á stofutónleika að Gljúfrasteini með Laufeyju og Páli, sunnudaginn 1.júní nk. kl. 15:00. Kv. Signý
Signý Kjartansdóttir (IP-tala skráð) 20.5.2008 kl. 12:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.