10.8.2008 | 13:07
Rólegheit og sjálfsvorkun
Skrapp í sumarbústað að Álftavatni í gærkvöld í dýrindis matarboð hjá Ingu vinkonu. Nær allir úr fjölskyldunni hennar voru í mat þótt ég sé alltaf jafn spæld yfir að vera ekki meira skyld henni en í 7. til 9. lið er ég meðlimur í ættarmótinu.
Í boðinu voru: Dúa mamma, amma og langamma, Lóa og Raggi, Tinna, Hrafnhildur, Bergljót og Steinþór með litluna sína Hrafnhildi Lóu.
Inga og Helgi, Sigrún og Tobbi með Bergþór og Heiðu, Þuríður tengdadóttir Ingu og Helga með litluna sína hana Heklu.
Ingólfur og Inga með Benna sinn og tvíburana Ingvar og Vöku.
Erla systir Helga.
Ég og Birgir.
Það vantaði þrjá afkomendur Dúu og við og Erla fylltum upp í það.
Hópmyndina vantar, hún kemur síðar.
Það var yndislegt að fara þennan bíltúr í gær, tókum Þingvallaleiðina, Grafning/Grímsnes - svo fallegt.
Annars er verið að mála þakið hérna á Bjarkagrundinni og erum ekki sérlega spennt fyrir vætunni sem er spáð í dag, vona þara að það sleppi. Mannurinn er stanslaust að, bændaeðlið er sterkt í honum. Næst á að fara flísaleggja, setja upp innréttingu í eldhúsið og fleira. Þetta gerir mannurinn allt sjálfur og svo fær hann verulega góða astoð frá syninum sem hættur er í vinnunni til að vinna heima.
Það er mikill söknuður í mér, ég sakna krakkanna minna, barnabarna og fallega sumarsins sem ég merki að er á förum.
Sólin skýn hér úti og ég get legið í sólbaði á milli þess sem ský dregur fyrir sólu.
En hvað, það er alltaf eitthvað á hreyfingu, það er skammt í komu Sindra og Magneu litlu eða 20. ágúst - og þá verður gaman.
Líkur á síðdegisskúrum vestanlands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Feminístar
Grá Gautaborg og víðar
- Feminístar Steinunn frænka og fl.
Stjórnmálin
Alþingismenn, bæjar-og sveitarstjórnarmenn og áhugafólk
- Össur Varaformaður Samfylkingarinnar
- Oddný Sturludóttir Oddný er borgastjórnarfulltrúi Samfylkingarinnar
- Ásta R. Jóhannesdóttir Samflokksmaður og gamall vinur
- Annna Kristín Gunnarsdóttir Skipar 3. sæti NV-landi fyrir X-S
- STEINUNN VALDÍS Feministi og pólitískur vinur
- http://
Fjölskylda
Börn, tengdabörn og barnabörn.
- Þór Birgisson Örverpið mitt.
- Sindri Birgisson Sonur minn, leiklistarneminn.
Bloggvinir
- jenfo
- jonaa
- kolgrima
- annaeinars
- krummasnill
- draumur
- heg
- ringarinn
- olapals
- christinemarie
- gudrunkatrin
- sunnadora
- helgamagg
- gisgis
- svanurg
- pallijoh
- olinathorv
- skordalsbrynja
- lillagud
- hlynurh
- siba
- fridust
- gurrihar
- rosa
- annriki
- heidathord
- ingolfurasgeirjohannesson
- ragnhildur
- gisliivars
- stormur
- ragnarfreyr
- jakobk
- hjolaferd
- ingasig
- reni
- arnalara
- alfholl
- fridaeyland
- soley
- toshiki
- korntop
- kallimatt
- saxi
- bryndisfridgeirs
- hugsadu
- astabjork
- kiddip
- skaftie
- thor
- huldam
- annaragna
- fjola
- kloi
- hronnrik
- manisvans
- brandarar
- truno
- vefritid
- samfo-kop
- para
- gattin
- adhdblogg
- tryggvigunnarhansen
Athugasemdir
Vá bara hele familien. Mynd takk.
Knús.
Jenný Anna Baldursdóttir, 10.8.2008 kl. 13:18
Sjálfsvorkunin er ríkasta tilfinningin sem við höfum. Það er ekki alltaf gott að bregðast við henni, en ég segi oft við sjálfa mig þegar ég dett í þessa tilfinningu: þetta er gott, þetta segir mér að ég hef tilfinningar, en það er vont að hafa hana lengi og oft. Vertu góð við sjálfa þig. Elma
Hulda Elma Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 10.8.2008 kl. 14:22
Get ég fengið mannurinn þinn lánaðan? Það vantar eitt svona framkvæmdarglatt stykki á þetta heimili.
Gott að þú áttir góða stund með fjölskyldunni. Það er svipað með fjölskyldur og menn... can't live with them, cant live without them..
Jóna Á. Gísladóttir, 10.8.2008 kl. 14:52
Skemmtileg helgin þín, það er gott. Eigðu ljúfa vinnuviku, þ.e.a.s. ef þú vinnur, auðvitað vinnurðu, annaðhvort útivinnandi eða heimavinnandi, hvurslags bull er þetta í mér
Ásdís Sigurðardóttir, 10.8.2008 kl. 15:47
Það er ekki að spyrja að því..... eintómt dugnaðarfólk úr Miklaholtshreppnum.
Anna Einarsdóttir, 10.8.2008 kl. 17:33
Já Anna mín, svo er nafnið Miklaholtshreppur fallegasta hreppanafn á Íslandi.
Ásdís, ég vinn aldrei neitt, hundlöt og þunglynd, baka þó pönnsur ef einhver lítur inn eins og gerðist áðan, það segir mér að það sé eitthvað líf í mér.
Jóna þú verður að koma í heimsókn og spyrja hann, þú mátt það mín vegna. I can't live wthout him, en það má fá lánað
Hm Hulda Elma, þá er það bara hugræna atferlismeðferðin.
Jenný mín ég er ekki alveg klár á myndinni, það er eitthvað erfitt að fá hana eða allavega er hún ekki komin til mín. Ég gleymdi nebbilega myndavélinni heima.
Edda Agnarsdóttir, 10.8.2008 kl. 19:30
Oh hvað ég skil þig, þekki þessa tilfinningu þegar barnið flytur til útlanda, og maður getur bara glaðst og verið stolt yfir dugnaðinum og kraftinum í "barninu", en söknuðurinn er alveg ólýsanlegur. -
Svo venst það eins og annað, og maður lærir að lifa með því, - á milli þess sem maður saknar.
En ég vildi að ég hefði svona "mannur" sem afrekar að klára svona verk eins og þú lýsir.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 10.8.2008 kl. 21:30
Hey....ég fór og kíkti í Íslendingabók og heldurðu ekki að við séum "náskyldar".
Við eigum sem sagt sömu langa-langa-langa-langa afa og ömmu sem hétu þórður Jónsson (f. 1765) og Ingibjörg Sigurðardóttir (f.1768).
Eftirleiðis mun ég því að sjálfsögðu kalla þig frænku.
Anna Þóra Jónsdóttir, 11.8.2008 kl. 00:31
Alltaf svo gaman á ættar- og fjölskyldumótum - fólk hefur svo líkan húmor! En ég skil vel að þú saknir krakkanna
Kolgrima, 11.8.2008 kl. 01:21
Elsku Edda: Mér líst vel á þig. Nú er líka um að gera fyrir þig að njóta daganna fram að skólabyrjun. Skil líka vel söknuðinn. Kveðja úr norðrinu
Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 11.8.2008 kl. 18:53
Dugnaður er þetta kona!!!! Skil vel að þú saknir barnanna. Sendi þér því gommu af orku og hlýjum kveðjum
Tína, 12.8.2008 kl. 13:06
Sunna Dóra Möller, 12.8.2008 kl. 22:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.