Leita í fréttum mbl.is

Held áfram að rúnta á blogginu

Ég á svo frábæra bloggvini sem skrifa svo vel að það er óþarfi að finna upp hjólið þegar ég get vonandi gefið fleirum forsmekkin af mínum bloggvinum.

Bloggið og skrifin hennar Jennýjar Baldursdóttur koma oftar en ekki út hláturgusunum þrátt fyrir að hún skrifi um háalvarleg mál. Í dag gerir hún sérkennilegu máli Bæjarstjórnar Kópavogs skil, en þau í Bæjarstjórninni hafa töluvert verið í sviðsljósinu undanfarið og þá helst vegna mála sem fram hafa komið um staðinn Gullputta.

Ólína Torfadóttir ritar pistil á sínu bloggi undir titlinum "Hverskonar vettvangur er bloggið?" þar veltir hún upp hugmyndum annara um blogg og fordóma gegn því. Nauðsynleg lesning fyrir bloggara.

Páll Jóhannesson er Akureyringur, Þórsari og jafnaðarmaður. Hann skrifar um pólitík, fótbolta og dægurmál. Hann er góður sögumaður og endar alltaf bloggin sín á fróðleiksmolum. Fróðleiksmolar hans í gær voru: Fullnæging svína varir í u.þ.b. 30 mínútur.

Fyrrverandi talskona feminista sem er eðalbloggari og búin að standa vaktina lengi bæði sem talskona og bloggari er með ágætan pistil í dag um firringuna sem á sér stað í samfélaginu á sama tíma og við göngum gegn umferðaslysum að þá er sýning á hraðakstri í Smáralind og klikt út með kökuklessu!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk Edda mín, gott að við getum hlegið saman kjéddlurnar þótt á blogginu sé.  Þá er bara að endurtaka það í raunheimum fljótlega.

Ég vil svo taka fram að mér er heiður að því að vera nefnd með hinum bloggurunum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.6.2007 kl. 12:21

2 Smámynd: Páll Jóhannesson

Sæl! gaman að sjá að þú hafir gaman að bloggrausinu mínu - ertu búinn að kíkja á fróðleiksmola dagsins? hann er þokkalegur í dag

Páll Jóhannesson, 28.6.2007 kl. 21:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband