1.8.2007 | 23:01
Nýtt útlit
Magnea 1 árs með mömmu og pabba á Spáni í sumar. Nú er ég búin að fá nýtt útlit á heimasíðuna mína og það gerist hér í Kaupmannahöfn. Snillingurinn á bak við þetta nýja útlit er Aldís tengdadóttir mín, hún hefur jafnframt tekið myndirnar af Magneu litlu og foreldrum hennar. Hún á líka myndina í hausnum af íslenskri náttúru enda nýkomin að heiman.
Aldís er að vinna núna hjá þekktum ljósmyndara í Danmörku sem heitir Steen Evald og hefur verið ljósmyndari konungsfjölskyldunnar og frægur tískuljósmyndari. Skoðið heimasíðu hans, það er þess virði.
Maður er svo upptekin af sjálfum sér hér í fríinu að ég gleymdi að senda afmæliskveðju til yngsta barnsins míns sem er heima á Íslandi. Að vísu er búið að senda sms og hringja en það er ekki nóg þegar litla barnið mitt á í hlut, svo hér með bæti ég úr því.
Þór varð 19 ára í gær 31 júlí 2007 - til hamingju elsku kúturinn!
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Feminístar
Grá Gautaborg og víðar
- Feminístar Steinunn frænka og fl.
Stjórnmálin
Alþingismenn, bæjar-og sveitarstjórnarmenn og áhugafólk
- Össur Varaformaður Samfylkingarinnar
- Oddný Sturludóttir Oddný er borgastjórnarfulltrúi Samfylkingarinnar
- Ásta R. Jóhannesdóttir Samflokksmaður og gamall vinur
- Annna Kristín Gunnarsdóttir Skipar 3. sæti NV-landi fyrir X-S
- STEINUNN VALDÍS Feministi og pólitískur vinur
- http://
Fjölskylda
Börn, tengdabörn og barnabörn.
- Þór Birgisson Örverpið mitt.
- Sindri Birgisson Sonur minn, leiklistarneminn.
Bloggvinir
-
jenfo
-
jonaa
-
kolgrima
-
annaeinars
-
krummasnill
-
draumur
-
heg
-
ringarinn
-
olapals
-
christinemarie
-
gudrunkatrin
-
sunnadora
-
helgamagg
-
gisgis
-
svanurg
-
pallijoh
-
olinathorv
-
skordalsbrynja
-
lillagud
-
hlynurh
-
siba
-
fridust
-
gurrihar
-
rosa
-
annriki
-
heidathord
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
ragnhildur
-
gisliivars
-
stormur
-
ragnarfreyr
-
jakobk
-
hjolaferd
-
ingasig
-
reni
-
arnalara
-
alfholl
-
fridaeyland
-
soley
-
toshiki
-
korntop
-
kallimatt
-
saxi
-
bryndisfridgeirs
-
hugsadu
-
astabjork
-
kiddip
-
skaftie
-
thor
-
huldam
-
annaragna
-
fjola
-
kloi
-
hronnrik
-
manisvans
-
brandarar
-
truno
-
vefritid
-
samfo-kop
-
para
-
gattin
-
adhdblogg
-
tryggvigunnarhansen
Athugasemdir
Til hamingju með drenginn. Flottur strákur.
Marta B Helgadóttir, 1.8.2007 kl. 23:09
Til hamingju með nýja fallega útlitið - ég ætla að fá dóttur mína til að hjálpa mér með að flikka upp á mína!
María Kristjánsdóttir, 1.8.2007 kl. 23:19
Þór er líkur foreldrum sínum.... skemmtileg blanda.
Og Magnea.... úúúúú..... svo falleg. Af hverju eru börn svona falleg !
Anna Einarsdóttir, 1.8.2007 kl. 23:23
Verð að segja það að þetta er allt annað að horfa á síðuna svona og litirnir í myndinni efst eru frábærir. Getur þú ekki sett inn hlaupandi banner með fleiri flottum myndum?????? Bleiki liturinn er flottur, enda grænt og bleikt flottast. Að lokum til hamingju með litla drenginn.
Við vorum að koma úr Kópavoginum, Vincy ein af "stóru" systrum hans Sveins er 70 ára í dag 1. ágúst ( er kannski kominn 2. ágúst?) Samúel Örn bauð öllum sem hann náði í í mat. Við fórum saman í IKEA hjónin og síðan kom Vésteinn litli drengurinn okkar (næstum 2 metrar) með strætó. Mjög gaman og góður matur. Vésteinn er svo að drífa sig á Selfoss eftir helgina og þá er hann farinn og vetrarstarfið byrjað hjá honum. Þá verðum við bara tvö í kotinu þar til að Bergþóra kemur heim af Alþjóðaskátamótinu 12. ágúst.
Kveðja af Skaganum
Borghildur Jósúadóttir (IP-tala skráð) 2.8.2007 kl. 00:12
Flottur strákur, til hamingju með hann og líka þetta fína útlit - Smjúts
Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 2.8.2007 kl. 00:39
Flott síða og ó mæ gúddness.. .FLOTTUR DRENGUR. Það hlýtur að liggja slóð af krömdum hjörtum eftir hann.
Jóna Á. Gísladóttir, 2.8.2007 kl. 01:36
Sammála Jónu, what a "hunk of a men" ef maður má segja sollis orðinn svona aldraður eins og við erum. Lillan hún Magena líka yndislegt.
Jenný Anna Baldursdóttir, 2.8.2007 kl. 20:17
Takk fyrir allar kveðjurnar og kommentin hérna. Ég er glöð með síðuna og sérstaklega hjálpina frá Aldísi ljósmyndara.
Edda Agnarsdóttir, 2.8.2007 kl. 20:41
já, þetta er alveg einstaklega vel heppnað hjá okkur frú Edda !! ;)
Gaman að breyta til..
..vonandi skemmtið þið ykkur konunglega í Sverige, ekki við öðru að búast!
Biðjum auðvitað kærlega að heilsa !!
p.s.
Það er búið að rigna mest allan daginn.
Aldís ljósmyndari (IP-tala skráð) 3.8.2007 kl. 02:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.