Leita í fréttum mbl.is

Danirnir sem búa í Svíþjóð.

Það er í tísku að nokkru leyti að búa í Malmö og vinna í Kaupmannahöfn. Þessi tíska er líka vegna hagræðis, allt húsnæði er ódýrara í Malmö en á Stór-Kaupmannahafnarsvæðinu. Ég hitti stúlku í fyrra á lestarstöð langt norður af Kaupmannahöfn og var að spyrja hana um lestarferðir og þegar við vorum búin að eiga nokkur orðaskipti spurði hún mig hvort ég væri Íslendingur. Eftir það töluðum við saman á íslensku.

En hún var ekki íslensk, hún var frá Rúmeníu en hafði verið á Íslandi og fengið íslenskan ríkisborgararétt. Hún kom til Íslands 16 ára og kynntist íslenskum manni nokkrum árum seinna og eignaðist barn með honum. Þeirra leiðir skildu en hún hitti samlanda sinn á Íslandi og þau fluttu til DK. Í DK var erfitt að fá húsnæði og dýrt í Kaupmannahöfn svo þau fluttu til Malmö og festu sér íbúð þar. Hún vann hjá snyrtivörufyrirtæki lengst norður af Kaupmannahöfn og hann vann á Kastrupflugvelli. Þau ferðuðust s.s. á milli landa á hverjum degi í vinnu.

Þau eru ekki ein um þetta. Það hefur aukist gífurlega búseta Dana í Svíþjóð og mest í Malmö og nágrenni hennar. Árið 2005 borguðu 8000 Danir skatt í sínu landi með búsetu í Svíþjóð, en í dag eru þeir komnir upp í 21000 sem búa þar og borga skatt í sínu heimalandi - það er 300% aukning. Þetta þýðir bara eitt að Malmö og Kaupmannahöfn eiga eftir að renna saman í eitt þegar fram líða stundir.

Það er allt ódýrara í Svíþjóð nema kjötið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ein af mínum elstu æskuvinkonum (Berta mannstu eftir henni?) Býr í Helsingborg og vinnur fyrir utan Helsingör.  Það þykir ekki mikið mál.  Hún gerði það reyndar fyrir tilkomu brúar og finnst þetta pís off keik.

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.8.2007 kl. 22:03

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Þetta er merkilegt, ég vissi ekki af þessu. Annars var mér oft hugsað til þín þessa daga sem ég var í Kaupmannahöfn og sérstaklega þegar ég dró hana Gyðu systur mína á Austurbrú í innkaupaleiðangur og við keyptum náttúrlega fullt af fötum í PINK (sko verslun).

Edda Agnarsdóttir, 11.8.2007 kl. 10:11

3 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Hvað segirðu var afmælið hans í DK Hjá Hunnu Grön? Þú ert væntanlega að tala um Manga?

Edda Agnarsdóttir, 11.8.2007 kl. 23:05

4 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Gunnu Grön, átti þetta að vera!

Edda Agnarsdóttir, 11.8.2007 kl. 23:06

5 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Skemmtileg færsla Edda. Tilviljun að rekast á þessa ungu stúlku; frá Rúmeníu, íslenskur ríkisborgari, búsett í Svíþjóð, starfar í Danmörku.

Jóna Á. Gísladóttir, 12.8.2007 kl. 10:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband