Leita í fréttum mbl.is

Skákklúbbur bloggfélaga

Það er ótrúlega spennandi að hitta bloggfélaga sína eins og ég gerði í fyrrakvöld. Vinkona mín sem sem ók mér heim til Ægis spurði mig hvort ég væri virkilega að fara hitta fólk sem ég hefði aldrei séð og hvort ég væri búin að athuga hvort það væri í lagi þann sem héldi boðið eða Ægi sem  lánaði húsið sitt undir boðið?

Ég finn fyrir ákveðinni hræðslu hjá fólki gagnvart svona afhjúpun og mín tilfinning er sú að konur eru meira að spegulera í því en karlar. En þetta eru líka konur sem ekki blogga og þekkja ekki þetta samfélag, þær setja bara samasem merki milli þess að að vera á netinu og hitta einhvern karl þar.

Við vorum níu, fjórir karlar og fimm konur, allir komu með verðlaun með sér sem mátti ekki kaupa. fimm komu með myndverk eftir sjálfan sig og einn kom með útsaum, annar kom með silfur - plast diplóma, þriðji með blóm og sá síðasti kom með heimilisiðnað á geisladiski.

Það er skemmst frá því að segja að ákveðið var að halda annað mót í spilamennsku og verður það Norskt Rommy.W00t


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

og voru kallarnir siðsamlegir?

Þorsteinn Ingimarsson (IP-tala skráð) 9.9.2007 kl. 16:44

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Takk fyrir síðast Edda.    Hér er allt í blóma.

Anna Einarsdóttir, 9.9.2007 kl. 18:00

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Enn gaman hjá ykkur. Hvernig er norskt rommy?, kann bara venjulegt.

Ásdís Sigurðardóttir, 9.9.2007 kl. 19:58

4 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ég er að æfa mig í norsku... svo mala ég ykkur. 

Anna Einarsdóttir, 9.9.2007 kl. 22:00

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Til hamingju með þetta.

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.9.2007 kl. 23:42

6 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Takk fyrir kvöldið Edda. Þetta var frábær kvöldstund og öllum til mikils sóma sem mættu. Spennandi að sjá hvað "formanninum" dettur næst í hug. 

Halldór Egill Guðnason, 10.9.2007 kl. 09:12

7 Smámynd: Arnfinnur Bragason

Takk fyrir kvöldið Edda. Eins og allir hafa marg sagt þá var þetta frábært í alla staði..... já Halldór, gaman væri að vita hvað formaðurinn er að hugsa núna (þ.e. varðandi næsta mót)

Arnfinnur Bragason, 10.9.2007 kl. 11:35

8 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Já, takk kærlega fyrir síðast.

Það er betra að hafa varan á þegar formaðurinn er annarsvegar.

Hún er ólíkindatól, og hefur með áræði sínu og húmor, hrundið af stað félagsskap sem ómögulegt er segja hvaða endi fær. Heimsyfirráð eða dauði.

Hlakka til næsta móts, hvort sem það verður, spilað, teflt, dansað, já eða bara djammað og djúsað

Ingibjörg Friðriksdóttir, 10.9.2007 kl. 12:16

9 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

þurftu allir að sýna tattooið sitt?

Til hamingju með hittinginn. Frábært framtak. Hvað er norskt rommý?

Jóna Á. Gísladóttir, 12.9.2007 kl. 21:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband