Leita í fréttum mbl.is

Hundar og konur

Það er svolítið merkilegt að ég hef heyrt svona áður um hunda sem ráðast bara á konur. Einn hund þekkti ég sem réðist bara á konur yfir fertugt, það endaði með svo miklu biti í læri einnar konu að sundur fór slagæð og konan lagðist að sjálfsögðu undir hnífinn í aðgerð. Þessi hundur var ekki sömu tegundar og þessi á Skaga en kannski næsti bær við, allavega mjög stór. En auðvitað geta hundar verið veikir á geði eins og manneskjan.

Ég er allavega hundbitlaus og að öllum líkindum konan í himnaríki enda hefur hún tvo öðlinga sér til varnar.


mbl.is Grimmum hundi lógað á Akranesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Og trúa menn bara si svona orðum einhvers drullusokks sem hefur hótað mönnum hægri/vinstri? Eða er það bara þægilegt fyrir lögguna á Akranesi að trúa þessu svo þeir þurfi ekki að gera neitt í málinu.

Aron (IP-tala skráð) 2.10.2007 kl. 18:34

2 identicon

Ég ætla svo sem ekki að vera að fullyrða neitt um skagalögguna, en ég þekki þá í persónu og veit, að þeir eru að _mínu_ mati algjörir heiglar þegar kemur að einhverju sem er alvarlegra en unglingur nýkominn með bílpróf að keyra 5km yfir hámarkshraða.

Varðandi hundinn, nú er ég ekki viss hvers hund er verið að tala um, en ætli hún sé ekki bara alin upp í honum vitfirran.

Virðingarfyllst, S. Úlfur

Úlfur (IP-tala skráð) 2.10.2007 kl. 18:41

3 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Hvað skyldi pabbi hafa átt við, þegar hann sagði að ég hefði staðið við hliðina á Guði þegar hann var að útbýtta hundseðlinu.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 2.10.2007 kl. 18:43

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Læti á Skaganum?  OMG

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.10.2007 kl. 19:17

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hæ Edda og kærar þakkir fyrir góðar kveðjur. Er að byrja að blogga að einhverju viti. Hlakka til að komast í umferð aftur :):) knús til þín.

Ásdís Sigurðardóttir, 2.10.2007 kl. 21:30

6 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Þetta skyldi þó ekki hafa verið hundurinn sem ég sá barinn í klessu af eiganda sínum fyrir nokkrum vikum ... heill strætisvagn af fólki sjokkeraðist og löggan var látin vita. Besta leiðin til að gera hunda grimma er að vera vondur við þá. Kettirnir, erfðaprinsinn og ryksuguprinsinn vernda mömmusín!

Guðríður Haraldsdóttir, 2.10.2007 kl. 22:26

7 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Ef hundur er veikur á geði á eigandinn ekki að þrjóskast við og bíða eftir að eitthvað gerist.  Þessi á Skaganum held ég að hafi sjálfur verið eitthvað truflaður á geði, ekki hundurinn.

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 4.10.2007 kl. 17:18

8 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Sammála Gísla

Jóna Á. Gísladóttir, 5.10.2007 kl. 00:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband