Leita í fréttum mbl.is

Doris Lessing

 

 442580A

Jamm þar kom að því, Doris komin með nóbelinn ekki bara elst allra kvenna sem hlotið hefur hann heldur elst allra. Nú fer maður á stúfana og skoðar eitthvað til að lesa eftir hana, hef aðeins lesið "Grasið syngur" held ég. Það eru til sjö bækur eftir hana í íslenskri þýðingu. kerlingin er rosa töffari og kann að rífa kjaft og svo er hún ansi krakkaleg á myndinni sem tekin var í morgun þótt hún sé orðin 87 ára.


mbl.is Lessing segist hafa fengið „verðlaunalitaröð"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Ég hef ekki lesið neitt eftir þessa skáldkonu en nú fer maður á stúfana að finna sér lesefni. Sæt þessi aldraða kona, glettin og greindarleg á svip.

Marta B Helgadóttir, 11.10.2007 kl. 17:44

2 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Ég las Dagbók góðrar grannkonu í þýðingu Þuríðar Baxter.

Kerlingin er vel að þessu komin og hún var frábær í sjónvarpinu áðan 

Ingibjörg Friðriksdóttir, 11.10.2007 kl. 19:46

3 Smámynd: Ingigerður Friðgeirsdóttir

Já það eru sko sannarlega töggur í þessari konu frábært að sjá hana í sjónvarpinu!Hef ekkert lesið eftir hana en komin tími til!

Ingigerður Friðgeirsdóttir, 11.10.2007 kl. 20:38

4 Smámynd: Kolgrima

Doris Lessing er bara flott

Kolgrima, 11.10.2007 kl. 21:49

5 Smámynd: Hulda Elma Guðmundsdóttir

Hún er prakkaraleg á svipinn kerlingin. Held að ég hafi lesið allar bækurnar hennar sem komið hafa út hér á landi og satt að segja hef ég aldrei verið mjög hrifin af henni.

Hulda Elma Guðmundsdóttir, 11.10.2007 kl. 22:13

6 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ég hef ekki lesið neitt eftir hana heldur en á örugglega eftir að leita eitthvað uppi ! Ég er sammála ykkur að hún er mjög flott og virkar algjör töffari ! Takk fyrir að samþykkja mig í bloggvinahópinn, hef lesið hér lengi en aldrei kvittað fyrr en nú! Takk fyrir mig !

Sunna Dóra Möller, 11.10.2007 kl. 22:36

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hef lesið margar bóka hennar á sænsku, kynntist henni þar, svo að segja.  Hún er vel að þessu komin og það var ekki lítið krúttlegt hvað hún var kúl þegar henni var tilkynnt um verðlaunin.  Royal Flush, OMG - krúttkast

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.10.2007 kl. 23:59

8 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Ég hef ekki lesið neitt eftir hana en hún heillaði mig upp úr skónum í fréttum í gærkvöldi....

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 12.10.2007 kl. 11:25

9 Smámynd: Páll Jóhannesson

Veit nákvæmlega ekkert um þessa annars glæsilegu fullorðnu konu, en flott samt.

Páll Jóhannesson, 12.10.2007 kl. 15:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband