Leita í fréttum mbl.is

Íslenskir krakkar/unglingar drekka ekki meira en jafnaldrar þeirra í öðrum löndum.

Samkvæmt niðurstöðum alþjóðlegrar könnunar sem gerð hefur verið á lífskjörum og heilsu skólabarna á þremur aldurstigum eða 11 ára, 13 ára, og 15 ára í tvöhundruðmanna úrtaki, þá drekka 15 ára krakkar sjaldnar og eru í miðjum hópi við spurningunni um hvað oft þú hefur verið fullur.

Annað sem kemur fram í þessari könnun sem mér finnst persónulega sigur fyrir okkur skólafólk á Íslandi, er að krökkum hér líður betur í skólanum en krökkum frá öðrum löndum. Sérstaklega eru Finnar nefndir til sögunnar af því við höfum oft borið okkur saman við þá í gæðum á skólastarfi og kemur í ljós að nemendum í Finnlandi líður illa í skólanum.

Þess má geta að vellíðanin er ekki eingöngu skólans heldur líka sterk tengsl við foreldra og sérstaklega áberandi að nemendur í yngsta flokknum í könnuninni voru með sterkustu tengslin við föður, hér á landi.

Skoðið þessa frétt á mbl - gaman væri að vita meir um þetta - Anna Ólafsdóttir hlýtur að vita heilmikið um þetta.


mbl.is Há slysatíðni íslenskra barna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Harðardóttir

Já mér fannst áhugavert að lesa þetta.  Og þá sérstaklega með vellíðan íslenskra skólabarna vs finnskra.  Við viljum jú líkjast þeim.

Rósa Harðardóttir, 18.6.2008 kl. 12:17

2 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Athyglisvert. drekka sjaldnar en meira í hvert skipti.  Algjörlega í takt við það sem fyrir þeim er haft.

Ég, gæti komið með langa tölu um hvað mér finnst, afhverju, hvernig og hvað.  en læt það vera.  Er að fara í nám í haust, sem kannski mun upplýsa mig betur um hversvegna stöðumat á unglingum er með þessum hætti.

Allavega finnst mér þetta mjög áhugavert að spá í og spekulera.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 18.6.2008 kl. 12:26

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég tek þessu með fyrirvara.

Reyndar mælist áfengisneysla Íslendinga lægri en hjá nágrannaþjóðunum.  Eða gerði amk.  Kannski hefur það breyst.

En það er gott að vera ekki á botninum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.6.2008 kl. 12:44

4 identicon

Ég átti þess kost fyrir einu ári að fara í heimsókn í finnska skóla og sitja fyrirlestra á vegum finnska menntamálaráðuneytisins um skólakerfið í Finnlandi. Það verður að koma fram hér að árangur finnska kerfisins og þess íslenska er á engan hátt sambærilegur. Benda má á þetta hér:

http://eyjan.is/blog/2007/11/29/ny-pisa-rannsokn-island-i-27-s%C3%A6ti-af-57-%C3%BEjo%C3%B0um-i-raunvisinda%C3%BEekkingu-15-ara/ 

Gott er samt til afspurnar að íslenskum börnum skuli líða vel í skólanum. 

sleggjudómarinn (IP-tala skráð) 18.6.2008 kl. 12:45

5 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Hmm, það er að minnsta kosti ekki ástæða til að slaka á. Takk fyrir innlitið á mína síðu, Edda.

Bestu kveðjur að norðan

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 18.6.2008 kl. 13:51

6 Smámynd: Kolgrima

Mér finnst svona kannanir alltaf svo merkilegar. Ég tel mig vita að það sé rétt að íslenskir unglingar drekki ekki meira en unglingar í SKandinavíu og Bretlandi en er hreint ekki viss - hvað sem könnunum líður.

Hitt finnst mér fagnaðarefni að krökkum líði vel í skólanum,  það er í mínum huga langmikilvægast í skólastarfi. Að krökkunum líði vel og komi úr grunnskólanum með sjálfstraust og góða sjálfsmynd.

E.t.v. mætti nýta tímann betur í þessi tíu ár, sbr. það sem sleggjudómarinn bendir á. En það er annað mál.

Kær kveðja til þín, Edda

Kolgrima, 18.6.2008 kl. 14:06

7 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Gott ef svona kannanir eru marktækar. En íslenskar stúlkur eiga samt vinninginn hvað varðar kynlíf. Þær byrja fyrr að stunda það en jafnaldrar þeirra á norðurlöndum.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 18.6.2008 kl. 19:03

8 identicon

Mér fannst þetta áhugaverð frétt og vildi gjarnan vita meira um könnunina.

Hjó einmitt eftir þessu með liðanina í skólanum á Íslandi vs. Finnlandi, kannski vegna þess að ég var að tala við tvo unglinga sem kvörtuðu sáran yfir skólanum í Finnlandi. Þegar ég spurði hvað væri svona slæmt kom svarið um hæl: Það má EKKERT gera af sér og svo þarf maður að læra svo MIKIÐ, bæði í skólanum og heima. Illa farið með blessuð börnin .

Lena (IP-tala skráð) 18.6.2008 kl. 19:29

9 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Já  Ólöf, kynlífið hefur alltaf verið feimnismál að tala um við börnin á heimilum þeirra og teprugangurinn er mikill. Það þykir bara sjálfsagt að hlaða niður börnum á Íslandi og ennþá er sú mýta til staðar að fólk eigi bara að læra þetta af sjálfu sér!

Ægir sem betur fer erum við ekki í verri endanum.

Kolgríma það eru margir sem taka kannanir með fyrirvara og s.s. ekkert að því - samt er þetta tæki sem við höfum til rannsóknar á högum manneskjunnar. Ég er mikið í kringum kannanir sem börn og unglingar taka og það er vitað að unlgingar eiga það til að ofgeraí könnun staðreyndum eða fara vitlaust með til að sýnast meiri (stærri karl) eins og í sambandi við drykkju og kynlíf! Einhver töffaragangur.

Nei Ingólfur, það segirðu satt, foreldrar eiga að vera í varðhundahlutverki til góðs!

Sleggjudómari, takk fyrir þitt innlegg hef ekki gefið mér tíma í að setja inn slóðina og skoða. Hef heyrt að Finnar eru ekki með skóla án aðgreiningar, allavega ekki í raunveruleikanum.

Jenný, ég hef haft á tilfinningunni að við vanmetum íslenska unglinga hvað áfengi varðar, þarna er nefnilega ekkrt talað um önnur vímuefni!

Ingibjörg, það væri gaman að vita hvernig þetta snýr að þér sem eingöngu unlingakennara?

Rósa, viljum við líkjast Finnunum? Ég var mjög spennt fyrir því sem þeir eru að gera en fékk einkennilega velgju þegar ég vissi að hjá þeim eru engir nemendur inni í bekk með sérþarfir! Og núna þetta með vanlíðanina. 

Edda Agnarsdóttir, 18.6.2008 kl. 19:34

10 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Lena takk fyrir þitt innlegg.

Edda Agnarsdóttir, 18.6.2008 kl. 19:35

11 identicon

Ég hef haft börn bæði í skóla hér heima og í Englandi og í Svíþjóð.  Allir hafa skólarnir kosti og galla.  Ég hef verið afskaplega ánægð með Vesturbæjarskólann því þar hefur öllum börnunum mínum liðið afskaplega vel; en ég er ekki frá því að meiri áhersla hafi verið lögð á sjálft námið í Svíþjóð og þau fengið betri kennslu þar.  Mæli ekki með breskum almenningsskólum... 

Talandi um að hlaða niður börnum; ég er orðin amma.

Elísabet Ronalds (IP-tala skráð) 18.6.2008 kl. 21:21

12 Smámynd: kloi

Ég drekk bara vatn og rjóma á laugardögum..  Vil helst ekki tjá mig um kynlífið, það er viðkvæmt þegar maður er steingeldur ........ 

kloi, 18.6.2008 kl. 21:55

13 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Elísabet, til hamingju með að vera orðin amma!

Skil það vel Klói minn.

Edda Agnarsdóttir, 18.6.2008 kl. 23:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband