20.7.2008 | 18:12
Dauðarefsingar - vegna kynferðis?
Hér í þessaari frétt er sagt frá því að konurnar séu dæmdar m.a. fyrir sifjaspell. Það hvarflar að manni að þarna sé verið að snúa hlutunum á hvolf, það er að karlmaður sem er í sömu fjölskyldu og konan, misnotar hana og hún er dæmd. Eða hvað haldið þið miðað við það sem sagt er frá hér í mbl fréttinni að þar eru átta konum refsað á móti einum karli?
Það er ekki svo ýkja langt síðan konur á íslandi voru látnar bera alla ábyrgð vegna naugana, misnotkunar og ofbeldis af hálfu karlmanna - þær voru líka teknar af lífi!
"Í Íran er framhjáhald glæpur sem varðar við dauðadóm. Refsilög Írans segja til um að karlmenn, sem hafa verið sakfelldir fyrir framhjáhald, skuli grafnir í jörðu upp að mitti og konur upp að brjóstkassa, áður en grýting hefst. Þá er tekið fram að steinarnir eigi ekki að vera svo stórir að einstaklingurinn láti lífið við fyrsta
Óhugnaðurinn eftir þennan lestur, segir mér hvað það er hræðilega langt í land að kynin í heiminum nái jafnræði.
Níu manns bíða þess að vera grýtt til bana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Feminístar
Grá Gautaborg og víðar
- Feminístar Steinunn frænka og fl.
Stjórnmálin
Alþingismenn, bæjar-og sveitarstjórnarmenn og áhugafólk
- Össur Varaformaður Samfylkingarinnar
- Oddný Sturludóttir Oddný er borgastjórnarfulltrúi Samfylkingarinnar
- Ásta R. Jóhannesdóttir Samflokksmaður og gamall vinur
- Annna Kristín Gunnarsdóttir Skipar 3. sæti NV-landi fyrir X-S
- STEINUNN VALDÍS Feministi og pólitískur vinur
- http://
Fjölskylda
Börn, tengdabörn og barnabörn.
- Þór Birgisson Örverpið mitt.
- Sindri Birgisson Sonur minn, leiklistarneminn.
Bloggvinir
- jenfo
- jonaa
- kolgrima
- annaeinars
- krummasnill
- draumur
- heg
- ringarinn
- olapals
- christinemarie
- gudrunkatrin
- sunnadora
- helgamagg
- gisgis
- svanurg
- pallijoh
- olinathorv
- skordalsbrynja
- lillagud
- hlynurh
- siba
- fridust
- gurrihar
- rosa
- annriki
- heidathord
- ingolfurasgeirjohannesson
- ragnhildur
- gisliivars
- stormur
- ragnarfreyr
- jakobk
- hjolaferd
- ingasig
- reni
- arnalara
- alfholl
- fridaeyland
- soley
- toshiki
- korntop
- kallimatt
- saxi
- bryndisfridgeirs
- hugsadu
- astabjork
- kiddip
- skaftie
- thor
- huldam
- annaragna
- fjola
- kloi
- hronnrik
- manisvans
- brandarar
- truno
- vefritid
- samfo-kop
- para
- gattin
- adhdblogg
- tryggvigunnarhansen
Athugasemdir
Þetta er þvílíkur óhugnaður að maður á ekki orð. Að grýta konur sem hafa verið beittar kynferðislegu ofbeldi af ættingjum sínum er svo fáránlegt að maður á bara ekki eitt einasta orð. Jafnréttið á sko örugglega langt í land víða,
Helga Magnúsdóttir, 20.7.2008 kl. 18:22
Ertu að bera saman örlög þessara kvenna saman við stöðu kvenna í heiminum almennt ?
...það er náttúrulega dásamlegt að vera fórnarlamb og þurfa ekki að bera ábyrgð á eigin lífi og þessi frétt toppar náttúrulega allt.
Nonni (IP-tala skráð) 20.7.2008 kl. 19:02
´
Konum var drekkt hér á Íslandi fyrr á öldum fyrir að eignast börn í lausaleik. Þá þekktist ekki "kynferðislegt ofbeldi". Þegar þeim var nauðgað í fjósinu, hlöðunni, í fjáhúsunum við dags- eða kvöldverkin og enginn trúði þeim.
Hverjir dæmdu þær, ÚPS! jú það var víst blessuð kirkjan okkar. Eftir hvers lögum, ÚPS! Gamla Testamentinu. Hvort ætli að sé verra: Kóraninn eða Gamla-Testamentið? Í Gamla-Testamentinu eru boðuð grýting fyrir lauslæti (kvenna - ekki minnst á karla).
Kveðja, Björn bóndi L
´
Sigurbjörn Friðriksson, 20.7.2008 kl. 19:10
Skelfilegt aflestrar. Það verður ekki á þessari öld sem hlutirnir lagast er ég hrædd um.
Ásdís Sigurðardóttir, 20.7.2008 kl. 19:24
GRÝTING TIL DAUÐA FYRIR HÓRDÓM.
Ein kona enn í blómagarði Múhameðs spámanns, dæmd til dauða fyrir hórdóm.
(Konum sem er nauðgað eru einnig dæmdar fyrir hórdóm, og dæmdar til dauða.)
(Samkynhneigð telst hórdómur samkv. Múhameðstrú),
Múhameðstrú kúgar konur.
Sent af Lily Mazahery Mánudaginn 3 júlí 2006.
Samkvæmt AdnkronosInternational ( AKI fréttastofan), þá var önnur Írönsk kona dæmd til dauða með grýtingu, 29 júní , 2006.
Dómstóll í Norðvestur Íran í borginni Urmia dæmdi Kúrdiska konu, Malak Ghorbany, seka um hórdóm. Samkvæmt hegningarlögum Írans, þá er orðið “hórdómur” notað til að lýsa öllum kyntengdum athöfnum, milli manns og konu , sem ekki eru gift.(eða samkynhneigðra) Hórdómsglæpurinn er einnig notaður í þeim tilfellum, sem stúlka er dæmd fyrir að hafa framið ,,gerning sem er ósamræmanlegur skírlífinu”, sem innifelur í sér tilfelli þegar stúlku er nauðgað. “Dauðarefsing gildir fyrir hórdóm”.
Við fullnægingu dómsins, þá eru hendur konunnar bundnar fyrir aftan bak hennar, og síðan er hún umvafin líni frá toppi til tár. Henni er síðan komið fyrir sitjandi í holu. Holan er síðan fyllt upp með jarðveg að brjósti og troðið meðfram. Þegar hér er komið þá er meðlimum samfélagsins, boðin að myrða hana með því að grýta hana. Til að tryggja að hin dæmda kona fái hámarks kvöl og píningu, þá hefur Íranska klerkastjórnin lögfest stærð steinanna, sem nota skal í þessari villimannlegu opinberu aftöku. Samkvæmt lögunum mega steinarnir ekki vera of smáir, svo að dauði hljótist ekki af, eða of stórir svo að dauðinn náði hina dauðadæmdu of fljótt.
Mannréttindanefnd í Íranska Kurdistan hefur opinberað yfirlýsingu til bjargar Malak Ghorbani og ég er nú að vinna með ýmsum samtökum og einstaklingum til að bjarga lífi Malak og til að afla meiri vitneskju um málsatvik hennar.. Ég væri ákaflega þaklát fyrir sérhverjar þær upplýsingar sem varða þetta mál, á hvaða tungumáli sem er.
Nýjustu upplýsingar:
Tildrög dómsins voru þessi: Abu Bakr Ghorbai, eiginmaður Malak Ghorbany og bróðir hennar Múhammeð Daneshar myrtu meintan elskhuga hennar.
Dómur: Hún skyldi grýtt til bana samkv. Hegningarlögum Írans, en morðingjarnir (karlmenn) fengu aðeins 6 ára dóm.
Nú skulum við líta á orð spámannsins Múhameðs, hins miskunnsama og sáttfúsa varðandi grýtingu fólks til dauða.
Bindi 2, Bók 23, Númer 413: Frásögn Abdullah bin Umar:
Hópur fólks færði spámanninum, mann og konu sem höfðu framið “hórdóm”. Hann skipaði svo fyrir að bæði skildu grýtt til bana, nálægt fórnarstaðnum, þar sem greftrunarbænir fóru fram við hliðina á Moskunni.
(Athugið að hórdómur í Múhameðstrú getur verið: framhjáhald og kynmök samkynhneigðra.)
Hvernig getum við leyft Múhameðstrúarmönnum (Múslimum) sem trúa slíkum villimannasiðum (Sharia) að búa meðal okkar
Ofangreint er á upplýsingaveitunni www.news.faithfreedom.org.
Sjá HEIÐURSMORÐ OG STAÐA KVENNA Í ÍSLAM á þessari slóð:
http://hermdarverk.blogcentral.is/blog/2008/4/21/heidursmord-og-stada-kvenna-i-islam/
Skúli Skúlason (IP-tala skráð) 20.7.2008 kl. 20:49
Meðferðin á konum í þessum löndum er verri en á skepnum. Þær eru umskornar. Lifi þær það af, geta þær aldrei notið kynlífs eftir það. Verði þeim nauðgað og það kemst upp, eru þær drepnar. Því halda þær nauðgunum leyndum, sé þess nokkur kostur. Þær eiga síðan að þjóna mönnum sem feður þeirra velja fyrir þær.... oft eldgömlum körlum... til borðs og sængur hvenær sem þeir óska. Þær eiga að hylja sig svo aðrir karlmenn girnist þær ekki.
Það skín í gegnum allt að karlmenn í þessum löndum semja reglurnar. Þeir geta skv. þessu fengið hvaða konu sem þeir óska... stundum margar... nauðgað konum ef þeim sýnist svo, fengið sér 10 ára gamla "konu" ef þeir kjósa og látið þær svo þjóna sér á allan hátt. Hræðilegt !
Anna Einarsdóttir, 20.7.2008 kl. 21:05
Langt í jafnréttið en nóg af grimmdinni.
Jenný Anna Baldursdóttir, 20.7.2008 kl. 21:07
Þetta er hinn algjöri óhugnaður. Hvílík grimmd og illska.
Kolgrima, 20.7.2008 kl. 21:37
Hvílík grimmd, hvílíkur viðbjóður. -
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 20.7.2008 kl. 22:39
... púff... ótúrlegt að þetta skuli vera til í heiminum í dag... þvílík grimmd...
Brattur, 20.7.2008 kl. 22:47
Já, ótrúleg grimmd, en svona er íslam í dag ...algjör viðbjóður, en samt eru sumir menn tilbúnir að taka upp hanskann fyrir íslam vegna sjúklegs haturs þeirra á bandaríkjunum og Ísrael...menn segja bara iss þetta er svona í gamla testamentinu líka ???
Nonni (IP-tala skráð) 20.7.2008 kl. 23:14
Þetta er svo mikill viðbjóður að ég get ekki lesið þetta.
Eigðu góða komandi viku mín kæra.
Heiða Þórðar, 20.7.2008 kl. 23:54
Helga, þannig lít ég á það að jafnræði er ótrúlega langt framunan í heiminum.
Nonni, nei ég er ekki að bera neitt saman - sé bara á þessu að langt er þangað til að heimurinn allur geti státað sig af því að það verði komið fram við konur af sömu lámarksvirðingu.
Það er tilfellið að margt ljótt er skrifað í Biblíuna og líka í söguna okkar - það eiga allar þjóðir fortíð og fara misjafnlega með það eins og við vitum.
Nei Ásdís ekki á þessari og ekki á næstu.
Ansi þarft þú mikið pláss Skúli - annars gott innlegg.
Anna, því miður er það nú svo að það eru líka karlmenn sem samið hafa reglurnar á Vesturlöndum og okkur konum hefur ekki en auðnast að komast í gegn um það reglufargan til leiðréttingar. En okkur finnst það miklu mun verra í Afríku og víðar.
Jenný, grimmdin er bölið. Illskan líka Kolgríma, Liljaguðrún og Brattur.
Heiða, það er slæmt að geta ekki lesið, ég get lesið fyrir þig - djók, hafðu það sömuleiðis gott.
Edda Agnarsdóttir, 21.7.2008 kl. 00:25
Þetta er bara dæmigert hvernig strangtrúaðir múslímar fara með konur og svo kunnu þær víst ekki að lesa þannig að þær gátu aldrei lesið ákæruna, þí þessir menn banna líka konum að mennta sig.
Jakob Falur Kristinsson, 21.7.2008 kl. 09:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.