Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Bleikur og bleikur litur í teppum, í orkugeislum, í klámi og ungbörnum!

 Bleikur vann töltið á hestamannamóti Fáks.

Bleikur litur hefur tákn eins og aðrir litir, í hnýttum teppum er bleiki liturinn skilgreindur sem tákn umhyggju, kærleika og skilyrðislausrar ástar.  En almennt er hann táknaður fyrir umhyggju.

Orkugeislar hafa líka liti og eru oft bland af tveimur, bleikur litur með gulum geisla sem ber með sér skilning í gegnum umhyggju og samúð. Þessi geisli þykir góður til að brjóta niður vanabindandi munstur sem hver og einn hefur komið sér í.

Orkugeisli sem hefur bleikan og grænan lit  hreinsar út tilfinningar í hærri orkustöðvum fyrst og fremst og færir inn kærleik í staðinn, til dæmis hreinsar hann út neikvæðar hugsanir og færir inn kærleika.

Nú er þessi litur inn í Thailandi afþví konungur landsins mætti í bleikum fötum opinberlega. Margir karlar eru hrædddir við bleika litinn og þola hann ekki fyrir sjálfan sig. Einn karlmann veit ég um sem er nýbúin er að eiga stúlkubarn og kveið mest fyrir bleika farginu sem fylgir ungbörnum af kvenkyni. Ég sjálf er mjög hrifin af bleikum lit og hef bæði troðið eiginmönnum mínum í bleikar skyrtur, slaufur, bindi og peysur, við mismikla hrifningu þeirraog gengið sjálf töluvert í bleiku. Sævar Karl klæðskeri hefur viljað eigna sér þann heiður að hafa komið íslenskum karlmönnum í bleikar skyrtur, sel það ekki dýrara en ...Hann ku hafa sagt að viðskipti gengu betur ef karlmenn væru í bleikum skyrtum.

Svo eru sumir sem segja að þetta sé klámlitur! Ég sé ekkert klámlegt við bleikt en vera má að það sé eitthvað sem hefur þróast með kvenfólki og bleiku?

Það er ekki skrýtið að Kolbrún Halldórsdóttir vekji máls á þessum hallærislegri venju Landspítalans með aðgreiningu á kynjum í bleikt og blátt! Burtu með þessa liti og klæðið drengi í svart og stúlkur í hvítt....Tounge

Blár litur hvíldar, friðar og öryggis.  Einnig er hann tákn tjáningar, krafts, hraða, stefnu og ákveðni.

  

 


mbl.is Allir í bleikum skyrtum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kalli Tomm og getið verður upp á íslenskri bíómynd og helst að vita um höfund og tvo aðalleikara!

Ég ætla að vera með einn Kalla Tomm kl. 21. Tók við af Óskari. Nú ætla ég að bregða út af vananum og hafa íslenska bíómynd sem á að geta upp á! Óskar var með áhald og áhaldið var ostaskeri. Það er ágætt að hvíla sig á manneskjum og drífa í einhverju þjóðlegu 1. desember.

AÐVENTU ÁTAK

Moggabloggari númer eitt,  er engin venjuleg kona.

Hún er skemmtileg, alltaf að hjálpa öðrum og sér það jákvæða við nánast allar kringumstæður.

Eins og flestir vita, á hún við alvarleg veikindi að stríða. 

Það þarf ekkert að kynna Þórdísi Tinnu, svo þekkt er hún orðin fyrir að vera hún sjálf.

Nú er rétti tíminn til að sýna Þórdísi Tinnu stuðning í verki. 

Sýnum samstöðu og styðjum við hana og dóttur hennar, Kolbrúnu Ragnheiði, svo þær geti notið hátíðanna, lausar við fjárhagsáhyggjur.  Þúsundkall eða Fimmþúsundkall..... allt hjálpar.

 

Bankareikningur

0140-05- 015735.     Kt.101268-4039

 

Ég skora á aðra bloggara að taka þátt og birta samskonar færslu á sinni síðu. 


« Fyrri síða

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband