Leita í fréttum mbl.is

Hvað getur maður sagt!

Ég hef aldrei á ævinni upplifað aðra eins samkennd í svona stórum hópi fólks eins og landsfundi Samfylkingarinnar í dag og í gær. Hrikalega mikil og góð vinna sem var framkvæmd á þessum fundi. Nú erég sæl of þreytt og blogga um þetta siðar.

En ég verð að setja inn texta Magneu J.Matthíasdóttur á ljóðinu  sem Diddú flutti á svo eftirminnilegan hátt, eitt af mínu uppáhaldi.

 Yfirlýsing.

 

líf mitt

er ekki laugardagsvöllur

að þú getir leikið þér

í fótbolta

með tilfinningar mínar

 

líkami minn

er ekki vesturbæjarlaug

að þú getir svamlað þar

þér til hressingar

gegn vægu gjaldi ástarorða

 

hjarta mitt

er ekki aðalbókasafnið

að þú getir sótt þangað

þær kenndir

sem falla best að smekk þínum

 

í stuttu máli

heyri ég ekki undir félagslega þjónustu

í reykjavík

heldur er ég kona

bý í skerjafirði

og á mig sjálf 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Eitt af mínum uppáhaldsljóðum.  Algjört dúndur.  Til hamingju með góðan landsfund.

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.4.2007 kl. 00:35

2 Smámynd: Páll Jóhannesson

Þessi landsfundur var bara tær snild - og Diddu hvað getur maður sagt?

Páll Jóhannesson, 15.4.2007 kl. 21:50

3 Smámynd: Tómas Þóroddsson

Ótrúlega flottur fundur.

Tómas Þóroddsson, 15.4.2007 kl. 22:26

4 Smámynd: Ingibjörg Stefánsdóttir

Líka uppáhald hjá mér. Sé að ég verð að nota tækifærið og leiðrétta það sem ég sagði við einhvern á landsfundinum að ljóðið væri eftir Ingibjörgu Haraldsdóttur. Mig minnti það endilega en held að þú hljótir að hafa rétt fyrir þér Edda. Ljóðið er í það minnsta frábært.

Ingibjörg Stefánsdóttir, 20.4.2007 kl. 11:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband