Leita í fréttum mbl.is

Anna Kristín Gunnarsdóttir er hitt kynið!

  Kjördæmið sem karlarnir ráða.

Í þessu kjördæmi er framboð karla mest áberandi í efstu sætum allra stjórnmálaflokkana til alþingiskosninga vorið 2007. Kjördæmið hefur því fengið það umtal að vera karlægasta kjördæmið á Íslandi. Það vantar hitt kynið inn á alþingi fyrir  kjördæmið. Raddir kvenna verða að vera með vegna þess að konur eru öðruvísi en karlmenn.  Anna Kristín Gunnarsdóttir er alþingismaður, hún hefur dýrmæta reynslu sem við höfum ekki efni á að missa. Þar að auki er reynsla hennar mikilvæg fyrir frambjóðendur í 1. og 2. sæti Samfylkingarinnar sem eru karlmenn. Ég ætla ekki að segja að þeir gætu ekkert án hennar en óneitanlega verður allt markvissara fyrir kjördæmið með hana og hennar reynslu fyrir kjördæmið. Anna Kristín  er í 3. sæti Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi  til alþingiskosningar 2007.

Hæfi kvenna

Skoðanakannanir hafa sýnt það undanfarið að raunhæfur möguleiki er að koma Önnu aftur á þing. Til þess að svo megi verða er afar mikilvægt að konur hugsi um konur og kjósi konur. Karlar hafa nær aldrei kosið annað en karla og leyft konunum að vera með. Ég er búin að fá nóg af þeim klysjum „að það eigi ekki að kjósa konu af því hún er kona heldur eftir hæfni hvers og eins hvort sem það er karl eða kona“. þessi „viska“ er orðin yfirþyrmandi og traðkar á konum, það er eins og það þurfi að afsaka það sérstaklega að kjósa konu og sýna fram á að hún hafi fullt af hæfileikum umfram karla til að mega styðja hana. Það hefur margoft komið fram í ýmsum rannsóknum að konur eru samviskusamari en karlar og vinna vel vinnuna sína.Það er ekki nóg að reka upp öskur og segja að það sé erfitt að fá konur í pólitík og félgsstörf almennt en hundsa þær svo þegar þær eru til staðar.

Kreppan bitnar á konum

Anna hefur unnið ötullega fyrir kjördæmi sitt  á þingi . Störf án staðsetningar og samgöngur hefur  verið eitt af hennar baráttumálum fyrir kjördæmið.

Hún hefur marg oft vakið athygli á því að hjá ríkinu eru um fjórða þúsund opinber störf sem ætluð eru landsbyggðinni sem hægt er að vinna allsstaðar en af þeim eru 300 – 400 störf auglýst árlega laus til umsóknar. Til fróðleiks og viðmiðunar að þá eru 15.000 störf í Reykjavík á vegum hins opinbera. Með bættum fjarskiptum þ.e. háhraðatengingu eru möguleikar manneskjunnar efldar í sinni heimabyggð í staðin fyrir þann flótta sem átt hefur stóran þátt í fólksfækkuninni, Fólksfækkun úr dreifðari byggðum landsins er 20% og á Norðvesturlandi eru konur í meirihluta sem flýja vegna atvinnuástands.

Samfylkingin setti fram þingsályktunartillögu um að skilgreind verði öll opinber störf á landsbyggðinni í byrjun síðasta þings og fékk það samþykkt undir þinglok. Með þessari tillögu er hægt að jafna aðstöðu þeirra sem vilja búa í sinni heimabyggð en hafa ekki getað vegna atvinnuástands. Meirihluti þeirra ungmenna sem ganga til mennta annars staðar vilja snúa heim að námi loknu, en því miður hefur samfélagið í heild sinni sofið á verðinum og ríkisstjórnin ekki haft hugmyndaflug fyrir þetta vel menntaða fólk.

Hvar eru allir ráðherrar kjördæmisins?

 Anna hefur talað um forneskju í vegamálum Vestfirðinga þar sem íbúar hafa bæði búið við skeytingarleysi og metnaðarleysi samgönguyfirvalda. Á Suðurfjörðum Vestfjarða eru stórhættulegir malarfjallvegir. Það vantar ekki að íbúar hafa leitað ásjár hjá stjórnvöldum um endurbætur og viðhald en undirtektir eru engar.Á norðurvæði  Vestfjarða eru ýmsar hindranir eins og, flóðasvæði, fjallshlíð sem er að hrynja smátt og smátt og gæti þess vegna komið í heilu lagi,snjóflóðahætta og 13 einbreiðar brýr. Ýmsum frankvæmdum sem legið hafa fyrir hefur verið slegið á frest vegna ofþennslu annarsstaðar!  Það getur stundum verið erfitt að skilja sumar skilgreiningar.Það er líka sérkennilegt að á sama tíma og Norðvesturkjördæmið hefur á að skipa þremur ráðherrum í ríkisstjórn, samgönguráðherra, sjávarútvegsráðherra og félagsmálaráðherra að allt sem tilheyrir þeirra ráðuneytum er meira og minna á niðurleið í norðvesturbyggðum landsins. Áföll atvinnufyrirtækja s.s. fiskvinnslu í Bolungarvík og Marel á Ísafirði, vegakerfi með dauðagildrum og skildi félagsmálaráðuneytið hafa einhver afskipti af þessum 20% flóttamönnum innanlands?Anna Kristín er ekki bara kvenmaður hún er vígamaður sem vinnur vel fyrir sitt kjördæm  

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Flottur greiningarpistill.  Anna Kristín er flott stjórnmálakona og ég vil veg hennar sem mestan.  Nú tökum við flottu flokkarnir þetta með vinstri 12. maí Edda mín.  Baráttukveðjur.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.5.2007 kl. 15:59

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Já eigum við ekki bara að gera það. þín kona var góð hér í gærkvöldi á fjölmennum fundi flokkanna, Hjördís Garðarsdóttir heitir hún!

Edda Agnarsdóttir, 3.5.2007 kl. 16:36

3 identicon

Skil bara ekki af hverju öflug kona eins og Anna Kristín og fleiri góðar Samfylkingarkonur náðu ekki beri stöðu á listunum í prófkjörum fyrir jafnréttisflokkinn... skil það bara alls ekki og kemst ekki yfir það

Gilbaugur (IP-tala skráð) 3.5.2007 kl. 21:40

4 identicon

Ég hef tjáð mig áður um ágæti Önnu Kristínar hér á blogginu þínu, óþarfi fyrir mig að endurtaka mig þar en ég segi bara að ég vildi óska þess að hún ætti meiri möguleika að komast á þing. En því miður er enn langt í land að jafnrétti sé náð á framboðslistum sem og víða annars staðar eins og fram kemur í þessum pistli

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 4.5.2007 kl. 23:27

5 Smámynd: Hlynur Hallsson

Það var fúlt að Anna Kristín náði ekki ofar í prófkjörinu ykkar. En ertu ekki að gleyma Ingibjörgu Ingu Guðmundsdóttur sem er í öðru sæti á lista Vinstri grænna og á meiri möguleika á þingsæti en nokkur Önnur kona í NV? Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 4.5.2007 kl. 23:40

6 Smámynd: Eggert Hjelm Herbertsson

Anna Kristín á mjög góða möguleika á að halda þingsæti sínu. Samfylkingin hefur verið að mælast með um 25% fylgi í kjördæminu og miðað við það þá vantar ekki mikið uppá að hún haldi sínu sæti, eða amk eigi séns sem uppbótarþingmaður. Ingibjörg Inga er örugglega fín. En Anna Kristín hefur sannað sig á Alþingi og á skilið að halda sínu sæti - fyrir því þarf að berjast.

Eggert Hjelm Herbertsson, 5.5.2007 kl. 10:25

7 Smámynd: Eggert Hjelm Herbertsson

Edda þessi pistill þinn var birtur á bloggi Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi.

Eggert Hjelm Herbertsson, 5.5.2007 kl. 10:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband