Leita í fréttum mbl.is

Ég hlakka svo til...

... ég hlakka svo til

Nú eru það elskulegu Hollendingarnir sem verða þeir flottustu í átta riðlinum! Svo er ég líka veik fyrir Tyrkjunum, þannig að góð veisla er framundan.

En fótbolti er ekki bara bolti. Fótbolti er: útlit, framkoma, klæðnaður, þ.e. sokkar, skór, buxur, treyja, hárband, spennur, teygja og fleira ásamt hreyfingu og snerpu.

Gleði og samvinna spilar líka eina stærstu rulluna.

Þetta allt og meira til virðast Hollendingar hafa.

Þeir eru bara æði þangað til annað kemur í ljós.

Áfram Holland!


mbl.is Ítalir fylgja Hollendingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tína

Rétt að senda þér knús i daginn kona góð. Ég setti inn mynd af settinu fyrir þig. Veit ekki hvort þú varst búin að sjá það.

Tína, 18.6.2008 kl. 06:43

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég elska ykkur stelpurnar, þ.e. þig og Önnu Ólafs, en skil ég ykkur varðandi boltann: NEI

En kærleikurinn uber allt

Kveðja inn í daginn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.6.2008 kl. 09:18

3 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Tyrkjamarkvörðurinn þykir sætur, en ég hef haldið með Hollandi síðan þEr Von Basten og Ruud Gullit voru upp á sitt´allra besta, þeir eru frábærlega flottir enn þann dag í dag.  Váaaaaa maður, fer að slefa, en ætla að halda mig við það að vera prúð og stillt í dag svo ég ætla í gönguferð

Áfram Holland og Von Basten  Cheerleader

Ingibjörg Friðriksdóttir, 18.6.2008 kl. 09:40

4 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Já Ingibjörg, það er satt og rétt, Ruud Gullit var mitt idol og ég er búin að bíða eftir að Hollendingar komi aftur til baka þannig að hægt sé að halada með þeim eins og þá!

Elsku Jenný mín, svona lagað gerist eins og þessi keppni gerist bara á nokkurra ára fresti! Ég elska þig líka.

Takk Tína, fer að skoða gersemarnar!

Edda Agnarsdóttir, 18.6.2008 kl. 10:19

5 Smámynd: Hulda Elma Guðmundsdóttir

Satt, nú tekur við væntanlega æði spennandi úrslitakeppni. Ég hef fulla trú á mínummönnum. Áfram Holland. En þetta með Gullit og Basten minnir mig á þá félaga Sókrates og Ardiles hjá Tottenham, ég fylgi því liði ennþá síðan þeir voru þar!!!

Hulda Elma Guðmundsdóttir, 18.6.2008 kl. 10:41

6 Smámynd: Rósa Harðardóttir

Þú gleymdi einu, búningurinn þeirra er svo flottur á litinn.

Rósa Harðardóttir, 18.6.2008 kl. 11:37

7 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Já ég veit - þeir eru skrautlegir - samt ekki aveg að mínum smekk! hvernig datt þeim í hug ljósbláir sokkar við appesínugult?

Edda Agnarsdóttir, 18.6.2008 kl. 12:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband