Leita í fréttum mbl.is

Magnea og "Skoppa og Skrítla"

 

skoppa-skrýtla og magn.Skoppa og Skrítla eru í miklu uppáhaldi hjá Magnea litlu Sindra og Aldísardóttur. Hún horfir á Skoppu og Skrítlu þætti lon og don af DVD diskum heima hjá sér.

Svo gerðist það einn daginn í vetur að Skoppa og Skrítla komu í heimsókn til Kaupmannahafnar og héldu nokkrar sýningar fyrir íslensk börn.

Magnea fór með mömmu sinni og það var ekki að spyrja að því, barnið steinlá fyrir þeim og fannst hún alltaf hafa þekkt þær, faðmaði og knúsaði í lok sýningar.

Nú eru Skoppa og Skrítla að búa til kvikmynd um sjálfar sig, það verður gaman að fara í bíó með ungviðið!

Hér fyrir neðan er svo nýjasta myndin af Magneu minni sem varð 2ja ára 2. júní s.l.

 

MAGN.24-06


mbl.is Skoppa og Skrítla á hvíta tjaldið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Þóra Jónsdóttir

Vá! hvað þetta er flott mynd af gullfallegu barni.

Þekki Lindu (Skoppu eða Skrítlu) frá því hún var lítil. Þjálfaði hana í sundi í gamladaga. Hún er náttúrulega bara yndi og ekkert skrýtið þó þín hafi fallið fyrir henni og hinum litríka gleðigjafanum. 

Anna Þóra Jónsdóttir, 24.6.2008 kl. 19:28

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Já myndin er flott og svona flottar eru til margar af þessu barnabarni mínu því mamman er ljósmyndari! Takk fyrir kveðjuna!

Edda Agnarsdóttir, 24.6.2008 kl. 19:34

3 identicon

Vá hvað þetta er falleg mynd af fallegu barni  Það er greinilegt að Skoppu og Skrítlu hefur tekist að ná í gegn sem er held ég ekki auðvelt í dag þegar áreitið er nánast endalaust á þessa kynslóð af hinum og þessum fígúrum mismerkilegum. ég hef ekki fylgst með þeim en grunar að það sé heilmikið´innihald í því sem þær hafa fram að færa.

Knús á Skagann

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 24.6.2008 kl. 20:47

4 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Takk fyrir Anna mín og knús á þig líka!

Ég hef aðeins skoðað DVD diska með litlunni og þetta eralveg frábært hjá þeim.

Edda Agnarsdóttir, 24.6.2008 kl. 20:50

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.6.2008 kl. 22:42

6 Smámynd: Tína

Mér þykir leiðinlegt að endurtaka það sem aðrir hafa sagt, en VÁ hvað þetta er ofsalega falleg mynd af unaðslega fallegu barni!! Enda sýnist mér á öllu að hún sé af gullfallegu fólki komin.

Njóttu svo dagsins Edda mín, því þessi dagur eins og allir aðrir lofa bara ansi góðu  

Tína, 25.6.2008 kl. 07:51

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hún er falleg litla stúlkan ykkar og skemmtileg mynd af henni með Skoppu og Skrítlu.  Kær kveðja frá Selfossi.

Ásdís Sigurðardóttir, 25.6.2008 kl. 12:22

8 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Flower

Ingibjörg Friðriksdóttir, 25.6.2008 kl. 13:18

9 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Takk fyrir allar - þið eruð bestar nú er boltinn að byrja!

Edda Agnarsdóttir, 25.6.2008 kl. 18:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband