Leita í fréttum mbl.is

Metskilabókin er...

..."Harðskafi"  Arnaldar og var líka metsölubókin. Gaman væri að vita hvað þær voru margar sem seldust eftir skilin.

Það er glinggló þetta æði sem rennur á nýrembuna í okkur, allir kaupa einn höfund og ímyndunaraflið vantar töluvert. Krimmahöfunadarnir eru samt orðnir æði margir á Íslandi og það eykst með hverju ári.

Við eigum t.d. Yrsu, Árna Þórarins og Ævar Örn Jósepsson, en ekki man ég bókarheitin hjá þeim nema síastnefnda af einni bók "Skítadjobb"!

Afhverju ætli það sé?

Þorgrímur Þráinsson sagði að hann gæti ekki annað en verið glaður með sölu sinnar bókar í sexþúsund eintökum en bjóst við meiru!Blush

Nú er hann komin í ÚTRÁS!

Jú til Danmerkur ætlar Þorgrímur að kenna bjórbaunavömbum hvernig þeir eigi að elska konur sínar.

Gaman hjá þeim.

Æi eg er orðin púruleg og tala betur við ykkur síðarSleeping


mbl.is Metskilabókin í ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já hversu margir Harðskafar verða eftir á heimilum landsins þegar upp er staðið?  Hm.. og hver ætli sé þá hin raunverulega metsölubók.

Sex þúsund stykki af vitleysunni í Þorgrími, OMG þjóðarsálin þarf að fara til sála.  EKki seinna en strax.

Farðu vel með þig Edda mín

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.1.2008 kl. 23:54

2 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Hef aldrei heyrt þetta hugtak fyrr en í fréttunum í kvöld, "metskilabók..."

...en að Þorgrimur hafi selt  6 þús stk af sinni bók segir meira um kaupendurna en hann

Marta B Helgadóttir, 3.1.2008 kl. 23:59

3 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Jenný, ég kemst ekki inn á kommentakerfið hjá þér núna - altt í hassi á þessu  þetta er svo pirringslegt arg!

Edda Agnarsdóttir, 4.1.2008 kl. 00:02

4 identicon

finnst dönskum konum gott það sama og konunni hans Þorgíms? Eða eru konur kannski það einfaldar að þær eru allar eins. 

Las tvær blaðsíður úr bókinni hans Þorgríms, þar sem hann fjallaði um að eðlilegt væri að girnazt konu vinar síns hehe. Þá nennti ég ekki að lesa meira .  En ætli konan hans hafi lesið bókina?

Þorsteinn Ingimarsson (IP-tala skráð) 4.1.2008 kl. 00:08

5 identicon

Já á þær allar og búinn að lesa þær líka. Allar góðar. Samt var Aska best, gat varla sleppt henni.;)

Asgeir (IP-tala skráð) 4.1.2008 kl. 00:10

6 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Þorsteinn, þetta er óborganlegt - ég einfaldlega sprakk úr hlátri! En hvað með mann vinkonu sinnar?

Edda Agnarsdóttir, 4.1.2008 kl. 00:12

7 Smámynd: Björg K. Sigurðardóttir

Ég hefði frekar átt von á að bókin hans Þorgríms yrði "metskilabók" - verð bara að segja eins og er.

Björg K. Sigurðardóttir, 4.1.2008 kl. 00:12

8 Smámynd: Hulda Elma Guðmundsdóttir

Gleðilegt ár. Guð minn góður, ég held að mikið eigi eftir að á ganga áður en ég les ÞB.

Hulda Elma Guðmundsdóttir, 4.1.2008 kl. 00:48

9 Smámynd: Hulda Elma Guðmundsdóttir

Drotinn minn dýri, ég meinti ÞÞ - en ÞB?

Hulda Elma Guðmundsdóttir, 4.1.2008 kl. 00:50

10 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Fékk þrjá Harðskafa og eina Þorgrím í jólagjöf! Hélt einni eftir af Harðskafanum en skilaði hinum. ÞÞ verður aldrei opnaður fyrir framan mínar glirnur, hvað svo sem hann skrifar um, svo mikið er víst. Fer sennilega ekkert mjög hátt hve raunsalan á hverri bók verður, eftir að skiptidæmið er afstaðið.

Halldór Egill Guðnason, 4.1.2008 kl. 09:25

11 Smámynd: Páll Jóhannesson

Ég er ekki mikill bókaormur. Fékk þó draumagjöf hinnar íslensku eiginkonu þ.e.a.s. bókina hans Þorgríms í jólagjöf. Verð að játa að ég hélt fyrirfram að ég myndi lesa þá bók hraðar en raunin er á, samt hin skemmtilegasta lesning.

Páll Jóhannesson, 4.1.2008 kl. 10:57

12 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Enga fordóma, við skiluðum Guðna og ætluðum að fá ÞB í staðinn, en því miður ekki til.

Ekki svo að skilja, að ég trúi því að einhver geti gert annan hamingjusaman, það er í eigin höndum.  Enda viðurkennir Þorgrímur, að titillinn sé ekki góður. 

Ingibjörg Friðriksdóttir, 4.1.2008 kl. 17:11

13 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Rosalega átti ég erfitt með mig þegar ég blaðaði í gegnum bókina hans Þorgríms....hún er einstaklega gremjulega, ergilega vond bók ! Þegar ég sá fréttina af útrásinni þá bara datt af mér andlitið alveg niður í gólf! Það er svo merkilegt að vegir sumra eru alveg órannsakanlegir !

Bestu kveðjur og góða helgi

Sunna Dóra Möller, 4.1.2008 kl. 20:26

14 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Fékk ekki bók, keypti ekki bók og las ekki bók. En ég ætla að bæta mér það upp á nýja árinu, íslenskir höfundar verða þar fremstir á blaði.

Ásdís Sigurðardóttir, 4.1.2008 kl. 21:09

15 identicon

Jólabókin mín var Harry Potter og henni var sko aldreilis ekki skilað.. enda stútað á 3 náttum.. og nú veit ég allt um hvort að Harry Potter lifir eður ei.. og þið megið öfundast mig út í það.. þið sem ekki hafa lesið hana

Björg F (IP-tala skráð) 7.1.2008 kl. 02:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband