22.1.2008 | 21:45
Sjálfsvirðingin er ein af dyggðunum
Eftir allann óhugnaðinn í pólitíkinni er eins gott að saklaus börnin viti ekki neitt um þetta. En þau verða líka fullorðin og sagan er ekki falleg og verður ekki fyrir þau. Hvaða fyrirmyndir erum við að hafa fyrir börnum og barnabörnum okkar? Mér sýnist það vera illgirni, svik, prettir og klækjabrögð.
Ef við hugsum til þess hvað verið er að kenna börnum í leikskólum og grunnskólum, þá er eitt víst að allt sem hefur verið gert í pólitíkinni í gær og í dag fellur ekki undir dyggðir eins og stefnan í mínum skóla er, ein dyggð á önn og dyggðin núna er SJÁLFSVIRÐING!
Í Aðalnámskrá Grunnskóla er áhersla á virðingu og gildi hennar: "Helstu gildi lýðræðislegs samstarfs eru: jafngildi allra manna, virðing fyrir einstaklingum og samábyrgð"
Grunnskólinn er þá málið eftir allt saman fyrir þá sem fara út af brautinni á fullorðinsárum! Virðingin er eina leiðin til að halda lýðræðinu.
Á myndinni eru elsta og yngsta barnabarnið mitt, Sandra María sú eldri og Magnea sú yngri. Þær eru 13 ára og hálfs annars árs. Ég sé það svo vel núna að það er hræðilegt að ein og tvær kynslóðir í viðbót eru að vaxa úr grasi og hafa engan pólitískan áhuga, en nú skil ég hvers vegna.
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Feminístar
Grá Gautaborg og víðar
- Feminístar Steinunn frænka og fl.
Stjórnmálin
Alþingismenn, bæjar-og sveitarstjórnarmenn og áhugafólk
- Össur Varaformaður Samfylkingarinnar
- Oddný Sturludóttir Oddný er borgastjórnarfulltrúi Samfylkingarinnar
- Ásta R. Jóhannesdóttir Samflokksmaður og gamall vinur
- Annna Kristín Gunnarsdóttir Skipar 3. sæti NV-landi fyrir X-S
- STEINUNN VALDÍS Feministi og pólitískur vinur
- http://
Fjölskylda
Börn, tengdabörn og barnabörn.
- Þór Birgisson Örverpið mitt.
- Sindri Birgisson Sonur minn, leiklistarneminn.
Bloggvinir
- jenfo
- jonaa
- kolgrima
- annaeinars
- krummasnill
- draumur
- heg
- ringarinn
- olapals
- christinemarie
- gudrunkatrin
- sunnadora
- helgamagg
- gisgis
- svanurg
- pallijoh
- olinathorv
- skordalsbrynja
- lillagud
- hlynurh
- siba
- fridust
- gurrihar
- rosa
- annriki
- heidathord
- ingolfurasgeirjohannesson
- ragnhildur
- gisliivars
- stormur
- ragnarfreyr
- jakobk
- hjolaferd
- ingasig
- reni
- arnalara
- alfholl
- fridaeyland
- soley
- toshiki
- korntop
- kallimatt
- saxi
- bryndisfridgeirs
- hugsadu
- astabjork
- kiddip
- skaftie
- thor
- huldam
- annaragna
- fjola
- kloi
- hronnrik
- manisvans
- brandarar
- truno
- vefritid
- samfo-kop
- para
- gattin
- adhdblogg
- tryggvigunnarhansen
Athugasemdir
Já úff. Það er einskis svifist til að ná völdum.
Anna Einarsdóttir, 22.1.2008 kl. 21:55
kvitta fyrir mig
Þorsteinn Ingimarsson (IP-tala skráð) 23.1.2008 kl. 01:03
Barnabörnin mín sex, búa öll í útlöndum, og ég nota hvert tækifæri til að segja dætrum mínum hversu gott sé að búa á Íslandi. Í morgun hringdi frumburðurinn, hún býr í Þýskalandi,
Hún sagði: Hverskonar lýðveldi býrð þú í? Verð að viðurkenna að það varð fátt um svör. Ég ætla að vera hjá þeim um helgina, og þá verð ég að vera búin að undirbúa ræðuna, sem á að fá hana til að skilja, að hún verði að koma heim til að hjálpa okkur til að uppræta spillinguna sem hér virðist ríkja.
Þetta er sorglegt. Og svo er ég líka döpur út af gengi „strákana okkar“
Ingibjörg Friðriksdóttir, 23.1.2008 kl. 08:27
Sunna Dóra Möller, 23.1.2008 kl. 08:29
Þetta leiðir til þess að flokkar þurfi meir að segja til um hvaða flokka þeir vilji starfa með fyrir kosningar. Dygðir eiga að vera í orðabókum stjórnmálamanna frekar en sviksemi.
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 23.1.2008 kl. 10:56
Innlitskvitt: Góður pistill Edda. Takk
Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 23.1.2008 kl. 17:43
það væri auðvitað betra að unga fólkið hefði áhuga og þá áhuga á að breyta þessu systemi. En það verða alltaf til framapotarar, óheiðarlegt fólk og falskt fólk.
Jóna Á. Gísladóttir, 23.1.2008 kl. 18:05
Leit við hjá þér.
Marta B Helgadóttir, 23.1.2008 kl. 22:05
Falleg börn ekki spurning. Annars er ég bara á rúntinum. Hafðu það gott.
Ásdís Sigurðardóttir, 23.1.2008 kl. 22:49
Frábær færsla, en ég deili ekki trú þinni á áhugaleysi unga fólksins í pólitík, ekki nema tímabundið. Eins gott, þvílík framtíðarsýn.
Edda, ég hætti aldrei að verða hissa á hversu lík ömmu sinni hún Sandra María er. Magnea er algjör dúlla líka.
Jenný Anna Baldursdóttir, 24.1.2008 kl. 10:28
Um dygðir:
Til upprifjunar:
Ólafur F. í Silfrinu 2. des. 07
Hér er slóð á viðtal við Ólaf F. Magnússon í Silfri Egils 2. desember síðastliðinn:
http://http.ruv.straumar.is/static.ruv.is/geyma/olafurf.2007-12-02.wmv
Kristján Þór Júlíusson um nýja meirihlutann í Reykjavík:
http://www.visir.is/article/20080124/FRETTIR01/80124016
Hér er því haldið fram að sjálfstæðismenn hafi lekið upplýsingum um heilbrigðisvottorð
Ólafs F,Magnússonar:
http://eyjan.is/hux/2008/01/22/bjortu-hli%c3%b0arnar/
kv. gb
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 17:46
Hugsa sér að þetta fólk sem er að bítast um völd með öllum hugsanlegum brögðum voru einu sinni lítil saklaus börn. Ekki veit ég í hvaða skóla þeir hafa numið þessi fræði ,svik, prettir og klækjabrögð. Vildi gjarnan vita það svo mínir afkomendur villist ekki þangað.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 24.1.2008 kl. 17:47
Flottar stelpur - kannski framtíðarpólitíkusar, hver veit ?
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 25.1.2008 kl. 23:01
.... verður maður ekki alltaf að trúa því að framundan séu bjartari tímar
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 25.1.2008 kl. 23:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.