Það kom að því að þeir buðu bloggurum að hafa auglýsingafríar síður. Nú getið þið reiknað út hvað það kostar að hafa blikkandi auglýsingu á bloggsíðunni fyrir auglýsandann. Annars hvað eru margir bloggarar á mbl.is?
Auglýsingar geta verið skemmtilegar og gefið heilmikið af húmor og listrænum töktum. Ég hef unnið að auglýsingaöflun fyrir blöð og kannast aðeins við þetta. En það sem var leiðinlegast við þessa auglýsingu var sú yfirgengilega ósvífni að hella þessu yfir bloggsíðuna án þessara möguleika í upphafi!
En nú er þetta afstaðið og ég komin aftur með myndir af fjölskyldumeðlimum.
Hér eru mamma og pabbi. Mamma varð 79 ára 19 febrúar, pabbi er 82 ára frá því í desember. Þessi mynd var tekin af þeim í áttræðisafmæli pabba fyrir rúmum tveimur árum. Nú er pabbi veikur á spítala eftir heilablæðingu og getur ekki gengið né talað. Þau heita Eyja og Agnar.
Þarna er hann Sindri minn í Kaupmannahöfn í nýju íbúðinni sinni sem hann var að kaupa á Englandsvej á Amager, hann heldur á Magneu sinni sem verður 2ja ára í sumar.
Hér er Magnea með myndavélina hennar mömmu sinnar, hún er orðin vön að prósa - en mig grunar að það sé bakslagur í litlunni með fyrirsætubransann!
Magnea með mömmu sinni. Þær eru sætar!
Nú er ég í krútta- og hamingjukasti, þau komin í íbúðina sína og ég fer til þeirra í byrjun apríl.
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Feminístar
Grá Gautaborg og víðar
- Feminístar Steinunn frænka og fl.
Stjórnmálin
Alþingismenn, bæjar-og sveitarstjórnarmenn og áhugafólk
- Össur Varaformaður Samfylkingarinnar
- Oddný Sturludóttir Oddný er borgastjórnarfulltrúi Samfylkingarinnar
- Ásta R. Jóhannesdóttir Samflokksmaður og gamall vinur
- Annna Kristín Gunnarsdóttir Skipar 3. sæti NV-landi fyrir X-S
- STEINUNN VALDÍS Feministi og pólitískur vinur
- http://
Fjölskylda
Börn, tengdabörn og barnabörn.
- Þór Birgisson Örverpið mitt.
- Sindri Birgisson Sonur minn, leiklistarneminn.
Bloggvinir
- jenfo
- jonaa
- kolgrima
- annaeinars
- krummasnill
- draumur
- heg
- ringarinn
- olapals
- christinemarie
- gudrunkatrin
- sunnadora
- helgamagg
- gisgis
- svanurg
- pallijoh
- olinathorv
- skordalsbrynja
- lillagud
- hlynurh
- siba
- fridust
- gurrihar
- rosa
- annriki
- heidathord
- ingolfurasgeirjohannesson
- ragnhildur
- gisliivars
- stormur
- ragnarfreyr
- jakobk
- hjolaferd
- ingasig
- reni
- arnalara
- alfholl
- fridaeyland
- soley
- toshiki
- korntop
- kallimatt
- saxi
- bryndisfridgeirs
- hugsadu
- astabjork
- kiddip
- skaftie
- thor
- huldam
- annaragna
- fjola
- kloi
- hronnrik
- manisvans
- brandarar
- truno
- vefritid
- samfo-kop
- para
- gattin
- adhdblogg
- tryggvigunnarhansen
Athugasemdir
Velkomin aftur Flottar myndir af fjölskyldunni, Magnea er æðisleg með risastóru myndavélina
Kolgrima, 21.2.2008 kl. 17:58
Velkomin aftur Edda
Frábærar myndir.
Marta B Helgadóttir, 21.2.2008 kl. 18:03
Okkur hlakkar til að fá þig.
Magnea er alltaf að æfa sig að tala, hún málaði ótrúlega flotta mynd á leikskólanum og fóstrunar veittu því athygli að hún blandaði ekki öllum litunum saman eins og aðrir. Ég sótti hana eftir vinnu og við fórum beint heim og fengum okkur skyr með sykri og rjóma *namm namm* síðan fórum við í bað og mamma kom heim með tilbúin kvöldmat. Núna er hún í hláturskasti með mömmu sinni... hihihi
Annars erum við alveg að fara að fá síma, ég er búinn að panta hann, og þá verður hægt að hringjast á.
Kveðja frá Englandsvej
Sindri (IP-tala skráð) 21.2.2008 kl. 19:46
Frábært. Þetta er yndisleg fjölskylda sem þú átt. Hafðu það sem best og hlakka til bloggársins.
ps. Organ er í Hafnarstrætinu.
Elisabet R (IP-tala skráð) 21.2.2008 kl. 19:48
Ég keypti mig líka frá auglýsingum... í 3 mánuði meðan ég er að hugsa málið.
Þau eru myndarleg foreldrar þínir. Það hlýtur að vera ótrúlega erfitt að horfa upp á foreldri ósjálfbjarga... sérstaklega ef viðkomandi hefur alla tíð verið aðili sem heldur utan um fjölskylduna sína.
Hugguleg íbúð hjá þeim í Danmörku.. og Magnea algjör krúttmoli.
Nú er ég búin að lesa 24 stundir. Sástu Edda !!! Þeir settu mynd af Villa hjá greininni minni.
Anna Einarsdóttir, 21.2.2008 kl. 19:56
Móðir í hjáverkum, þakka þér fyrir.
Gunnar, já það er ekki fjarri lagi - nú verðum við bloggarar að stofna ókeypis blogg eða færa okkur eitthvað annað þar sem er ókeypis!
Einmitt Anna, ég las líka klausuna tvisvar til að vera alveg viss um að þetta væri þitt en ekki Villa! Foreldrar mínir líta vel út á þessari mynd þakka þér fyrir, þess vegna langaði mig að birta hana og deila henni með bloggvinum mínum.
Takk fyrir Elísabet mín. Já er morgan kannski í gamla húsinu sem Penninn var í?
Gaman að heyra frá Sindri minn. Gott að síminn er að koma. Magnea er náttúrlega svo gáfuð og pen að hún er ekki í þessu barnasulli enda að komast á krakka árin bara 1 árs!
Takk fyrir Marta.
Kolgríma, hún Magnea er undur, með hæfileikana mína, nægjusöm og kát eins og ég!
Edda Agnarsdóttir, 21.2.2008 kl. 21:45
Rommý er dagsett þann 15. mars n.k. Og svo höfum við páskana til að jafna okkur.
Anna Einarsdóttir, 21.2.2008 kl. 22:00
Frábært að fá þig til baka
Kolgrima, 21.2.2008 kl. 22:12
Jíbíii, ég vissi að þú kæmir aftur, velkomin kæra bloggvinkona.....
Páll Jóhannesson, 21.2.2008 kl. 22:31
Velkomin til baka....falleg fjölskylda en örugglega erfið þessi veikindi pabba þíns...
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 21.2.2008 kl. 22:57
Mikið er ég glöð að sjá þig aftur Magnea er yndisleg. Gott áttu að vera að fara í heimsókn í Danaveldi. Falleg mynd af pabba þínum og mömmu.
Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 21.2.2008 kl. 23:06
Velkomin aftur kæra Edda. Mér finnst fullmikið að borga 3600 kall á ári fyrir að fá að blogga án auglýsinga. Læt mig hafa það að vera með þessa ömurlegu auglýsingu blikkandi þarna uppi til hægri.
Gott að þú ert komin aftur og frábærar myndir og vonandi líður pabba þínum samt vel. Bestu kveðjur og gangi þér allt í haginn,
Hlynur Hallsson, 21.2.2008 kl. 23:11
Velkomin aftur
Gísli Bergsveinn Ívarsson, 22.2.2008 kl. 00:54
Það leynir sér ekki hvaðan allur myndarskapurinn kemur. Flottir foreldrar og flottir krakkar, þetta stemmir allt saman. Ég kenni erfðafræði í 10. bekk, svo ég veit nokk hvað ég segi.
Danmörk er venjulega æðisleg í aðríl, maí, vonandi verður vorið snemma eins og páskarnir í ár.
Ingibjörg Friðriksdóttir, 22.2.2008 kl. 09:01
Ætlaði að sjálfsögðu að segja apríl.
Ingibjörg Friðriksdóttir, 22.2.2008 kl. 09:02
Velkomin aftur Edda.
Mikið er þetta falleg fjölskylda sem þú átt, og æðisleg dúlla hún Magnea með myndavélina
Ásta Björk Hermannsdóttir, 22.2.2008 kl. 12:32
Hæ skvís, gaman að fá færslu frá þér. Ef þú saknar auglýsingarinnar geturðu kíkt á mína síðu flottar myndir af fólkinu þínu, sonur minn í Köben er einmitt að spá í að kaupa íbúð, vill það frekar en að leigja, hann er ekkert á heimleið, kærastan er bara að klára 1 árið af 5
Eigðu góða helgi mín kæra.
Ásdís Sigurðardóttir, 22.2.2008 kl. 15:05
Takk fyrir allar kveðjurnar - knús og kossar á ykkur öll!
Edda Agnarsdóttir, 23.2.2008 kl. 18:24
Edda Agnarsdóttir, 23.2.2008 kl. 18:26
Hæ Edda
Ég tók sama pól í hæðina og þú.
Maður getur eiginlega ekki annað en keypt þetta út fyrst maður er að gera sig breiðan við að mótmæla þessum auglýsingum.
Gísli Bergsveinn Ívarsson, 25.2.2008 kl. 22:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.