29.6.2008 | 19:23
Svona var kjötið af kálfunum í gamla daga í sveitnni og kannski eru kálfarnir borðaðir svona ennþá!
Í sveitinni var oft kálfakjöt á boðstólum. Þegar kýr var nýborin var kálfurinn ekki látin lifa lengi vegna þess hve dýrt var að ala hann. Hann þurfti mikla mjólk og það var of mikið fyrir venjulega bændur sem voru að auka nytina við burðinn.
Ég man bara að yfirleitt fannst mér það ekki gott þegar ég var barn, allt of hvítt og oft slepjulegt.
En það besta sem ég fæ í dag er kálfakjöt en það er ekki af nýbornum, svolítið eldri!
Það verður gaman að smakka lambið þótt husunin á bak við litla fallega lambið sé ekki geðsleg - en það fannst manni líka um kálfinn forðum!
Mjólkurlamb kynnt matgæðingum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Feminístar
Grá Gautaborg og víðar
- Feminístar Steinunn frænka og fl.
Stjórnmálin
Alþingismenn, bæjar-og sveitarstjórnarmenn og áhugafólk
- Össur Varaformaður Samfylkingarinnar
- Oddný Sturludóttir Oddný er borgastjórnarfulltrúi Samfylkingarinnar
- Ásta R. Jóhannesdóttir Samflokksmaður og gamall vinur
- Annna Kristín Gunnarsdóttir Skipar 3. sæti NV-landi fyrir X-S
- STEINUNN VALDÍS Feministi og pólitískur vinur
- http://
Fjölskylda
Börn, tengdabörn og barnabörn.
- Þór Birgisson Örverpið mitt.
- Sindri Birgisson Sonur minn, leiklistarneminn.
Bloggvinir
- jenfo
- jonaa
- kolgrima
- annaeinars
- krummasnill
- draumur
- heg
- ringarinn
- olapals
- christinemarie
- gudrunkatrin
- sunnadora
- helgamagg
- gisgis
- svanurg
- pallijoh
- olinathorv
- skordalsbrynja
- lillagud
- hlynurh
- siba
- fridust
- gurrihar
- rosa
- annriki
- heidathord
- ingolfurasgeirjohannesson
- ragnhildur
- gisliivars
- stormur
- ragnarfreyr
- jakobk
- hjolaferd
- ingasig
- reni
- arnalara
- alfholl
- fridaeyland
- soley
- toshiki
- korntop
- kallimatt
- saxi
- bryndisfridgeirs
- hugsadu
- astabjork
- kiddip
- skaftie
- thor
- huldam
- annaragna
- fjola
- kloi
- hronnrik
- manisvans
- brandarar
- truno
- vefritid
- samfo-kop
- para
- gattin
- adhdblogg
- tryggvigunnarhansen
Athugasemdir
Edda maður á ekkert að vera að velta sér upp úr ferlinu frá haga í maga.
Bara borða glaður og sæll.
Áfram Ítalía
Jenný Anna Baldursdóttir, 29.6.2008 kl. 20:06
Áfram Ítalía hvað?
Ertu á leið þangað?
Edda Agnarsdóttir, 29.6.2008 kl. 21:26
Sem betur fer tekst mér að aðskilja algjörlega litla lambið í haganum / folaldið sem hoppar og leikur sér í kringum mömmu sína, og kjötið á diskinum mínum..... eða allavega þangað til núna að ég setti þessi orð niður á ''blað''
Jóna Á. Gísladóttir, 29.6.2008 kl. 21:29
Já það er gott Jóna. það er komið nóg af allskonar móðursýki inn á bloggsíðurnar vegna þessara fréttar!
Edda Agnarsdóttir, 29.6.2008 kl. 21:37
Mér eins og þér Edda, mjólkurkjötið af ungkálfiekki gott. Það er svo slepjulegt og slímugt. Ég reyndi tvisvar að borða svona kjöt þar sem ég var gestkomandi og skilaði því til baka á miður skemmtilegan hátt. - Enda tíðkaðist ekki að elda svona mjólkurkjöt á mínu heimili. -
Hvernig heldurðu að lambamjólkurkjötið sé þá, í samanburði við það lambakjöt sem við erum vön. -
Það er þegar lambið hefur gengið á fjalli í þrjá til fjóra mánuði. - Sem lambakjötið verður til.
Ég veit að það er með útivistinni, hagagöngunni, sem bragðið kemur í lambakjötið. -
Því fæði Ærinnar sem gekk með lambið hefur einungis verið þurrt hey sem vaxið hefur af innfluttum áburði. - Svo varla er eftirsóknarvert bragð af því mjólkurlambakjöti. - Ef bragð skyldi kalla. -
Samanber vatnsbragðið af mjólkurkálfakjötinu. - Að ég tali nú ekki um slímið, sem sat eftir í munni manns.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 29.6.2008 kl. 22:24
Mér finnst eins og þér Edda, mjólkurkjöt af ungkálfi ekki gott - svona á fyrsta setningin í athugasemdunum hér að ofan að byrja. Restin skilst vonandi. Fyrirgefðu flýtinn. - LG
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 29.6.2008 kl. 22:29
Jú rétt er það - að það það er bara mjólkin sem lambið er búið drekka, aðeins byrjað að narta í gróður.
Edda Agnarsdóttir, 29.6.2008 kl. 22:43
Ég smakkaði einu sinni mjólkurkálf og fannst hann meiriháttar
Gunnar Th. Gunnarsson, 30.6.2008 kl. 17:43
Já sumir segja að þetta fari eftir eldamennskunni Gunnar!
Edda Agnarsdóttir, 30.6.2008 kl. 17:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.