Leita í fréttum mbl.is

Hvar er þetta kvenmannsleysi Samfylkingarinnar?

Að undanförnu hafa fjölmiðlar verið að birta skoðanakannanir um fylgi flokkanna til alþingiskosninga og hefur fylgishrun Samfylkingarinnar verið stöðugt. Vísbendingar hafa komið fram í könnunum um að konur flykkist yfir á Vinstri Græna. Í bloggheiminum má sjá ýmsar athugasemdir hér og þar um að Samfylkingin sé orðin karlaflokkur og ekkert nema karlar á listum og Ingibjörg ein að rogast með karlastóðið á eftir sér. Ekki hefur heldur vantað yfirlýsingar þess efnis að Vinstri Græn séu eini femínista flokkurinn.

En lítum á staðreyndir. Í landinu í dag eru sex kjördæmi og yfirleitt í kringum 20 manns á hverjum framboðslista innan kjördæmis (eða frá 18 upp í 24). Hjá báðum þessum flokkum er yfirleitt jöfn skipting milli kynja á listunum. Undantekningarnar eru Reykjaneskjördæmi hjá Samfylkingunni þar sem 11 konur eru á lista á móti 13 karlmönnum og hjá Vinstri Græn er það öfugt í sama kjördæmi eða 13 konur og 11 karlar.

Samtals í framboði fyrir hvorn lista eru 126 og þar af 62 konur fyrir Samfylkingu og 66 konur fyrir Vinstri Græn í öllu landinu.

Af þessum sex kjördæmum er aðeins ein kona Ingibjörg Sólrún Gísladóttir í fyrsta sæti fyrir Samfylkinguna og er það miður að ekki skulu vera fleiri konur í fyrsta sæti. Þetta er niðurstaða prófkjörs.

Hjá Vinstri Græn eru aðeins tvær konur í fyrsta sæti eða Kolbrún Halldórsdóttir fyrir Rvk.-s. og Katrín Jakobsdóttir fyrir Rvk.-s.  Hjá þessum flokki Vinstri Græn er raðað á lista og fleiri konur samtals á listunum en karlmenn - en samt!

Af hverju?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er ekki verið að tala um að konur ætli ekki að kjósa Samfylkinguna. En enn hefur þátttaka í þessum könnunum ekki verið meiri en um 60% og stærsti hluti svarenda er í Reykjavík. Ég vil fá eina landsbyggðarkönnun. Og annað. Ég er farin að efast um að ég sé í þjóðskránni. Ég hef aldrei, segi og skrifa aldrei lent í skoðanakönnun!

Eg. (IP-tala skráð) 11.3.2007 kl. 20:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband