Leita í fréttum mbl.is

Skólaslit og frágangur

Skólaslit 10. bekkinga var í gærkvöldi og hjá yngri bekkjunum fyrr um daginn. Nú eru kennarar og starfsfólk í frágangi, sem inniheldur tiltekt og extra mikið hjá heimilisfræðikennurum eins og ég er búin að vera í vetur.

Í skólanum er allt þrifið sem ekki er gert heima, svona eins og einn ísskápur stór, einn frystiskápur stór, sjö eldavélar með ofnum og þar af leiðandi er þetta stóra eldhús eins og fimm til sjö venjuleg eldhús að umfangi. Ég er komin með í bakið og samstarfskona mín er með liðagigt svo ástandið er ekki gott. En allt hefst þetta og á morgun er áætlað að það klárist!

Það er að mörgu leyti notalegt en líka söknuður af skólastarfinu, sumarlokun skóla er of löng, vetrafríin ættu að vera lengri, tvisvar á vetri. Það var algjör dásemd þegar ég var að ala upp mín börn þegar frí var í skólanum, þau þurfa mest á því að halda. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þú þarf greinilega að vinna fyrir kaupinu þínu Edda mín.  Nú förum við skellurnar þrjár að hittast er það ekki??

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.6.2007 kl. 10:04

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Jú - við verðum!

Edda Agnarsdóttir, 6.6.2007 kl. 13:36

3 identicon

Þessi pistill rifjaði margt upp hjá mér frá fyrri tíð. Kenndi í grunnskólum og tónlistarskólum meira og minna frá 83-98 og það var alltaf jafn dásamleg tilfinning að klára. Ekki það að starfið var alltaf jafnskemmtilegt og gefandi en kona var orðin nett lúin svona þegar komið var undir vor. Annars fannst mér reyndar jólatörnin oft strembnari en törnin kringum skólalok. Til hamingju með að vera að klára!  

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 7.6.2007 kl. 17:14

4 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Nú er ég hissa, bara fullt af kennurum! Ég er hrifin af því að hafa vetra´frí tvisvar á vetri eins og hjá þér Ægir. Hvað ert þú að kenna?

Anna ég vissi að þú værir kennari, það hefur komið fram í þínum skrifum, ég er sammála þér að jólin eru erfið, sérstaklega þegar maður kemur þreyttur til baka frá jólatörninni. Það er út af fyrir sig spursmál með þessi blessuð jól, það á allt að gerast þá, allir að hittast og vera vinir, systkin,frænkur, frændur og ekki síst foreldrar! Allt of mikið!

Edda Agnarsdóttir, 7.6.2007 kl. 17:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband