Leita í fréttum mbl.is

Hvar er allt melgrasið

sem var meðfram veginum niður í Þorlákshöfn síðasta spölinn í gamla daga? Nú er ekkert nema Lúpína!

Ferðin í Þorlákshöfn gekk eins og í sögu og Guðbjörg Runólfsdóttir tengdamóðir mín nr. 1 er fjallhress og og eins og unglamb í útliti tæplega 91 árs. En ég og dóttir mín gleymdum að taka myndir  - við erum ekki alveg í lagiBlush Ég sagði henni að hún yrði að bruna einn tveir og þrír aftur og taka myndir af ömmu sinni. Hún fór með vísur fyrir okkur sem hún lærði sem barn bæði ortar af mömmu hennar og afa. Hún les ennþá sér til hressingar og dægrastyttingar en nennir ekki að setja heyrnartækin á sig áður en hún fer í mat - allt of mikið vesen segir hún!

Þetta var góð ferð til heiðurs Guðbjörgu sem við gátum hvorugar heiðrað á 90 ára afmælinu í fyrrasumar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

'Eg er líka aðdáandi Lúpínu, ég fór bara að hugsa hvort Melgrasið er horfið eða er það ókomið í sumar? Mér finnst Melgrasið svo flott og ekki of mikið til af því!

Edda Agnarsdóttir, 13.6.2007 kl. 22:55

2 identicon

Veit ekki hvort það er ellimerki eða eitthvað annað en ég er farin að auðnina á Íslandi alltaf betur og betur. Hausmyndin í blogginu mínu er af Möðrudalsöræfum þar sem nánast allt landslagið einkennist af vikurhólum og fjöllum, mér finnst það ótrúlega flott. En ég man að þegar ég fór til Þorlákshafnar í gamla daga fannst mér melgrasið nánast tignarlegt þar sem það bauð sandinum byrginn.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 13.6.2007 kl. 23:24

3 identicon

sorry  það vantaði inn í setninguna hjá mér: Ég ætlaði að segja að ég væri farin að kunna betur og betur við auðnina á Íslandi

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 13.6.2007 kl. 23:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband