Leita í fréttum mbl.is

Afmælið sem varð að brúðkaupi

CIMG0751

                          Hrund og Guðni ásamt séra Ágústi.

Ég dvaldi í Kaupmannahöfn í fyrrasumar við vinnu og til að fá tilbreytingu. Dóttir mín og hennar maður búa í Svíþjóð í Nörsesund ekki langt frá Gautaborg. Þau buðu til fertugsafmælis Guðna í fyrra og giftu sig í leiðinni öllum að óvörum. brúðkaupið var yndislegt og var úti á bryggju við vatnið þar sem þau búa. Presturinn kom siglandi til þeirra á litlum mótorbát að bryggjunni og var þá mörgum brugðið er prestur byrjaði að klæðast á bryggjunni og svo mætti brúðurinn stuttu seinna gangandi niður brekkuna að bryggjunni.

Nú er ég að fara til hennar þann 19 júlí og hitta þau og barnabörnin mín þrjú sem þau eiga. Alltaf einhver tilhlökkunarefni þessa dagana.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góða ferð og njóttu   Það er alveg einstaklega bjart yfir þessari mynd, skemmtilegt sjónarhorn.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 3.7.2007 kl. 01:25

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já sammála Önnu, myndin er afburðaskemmtileg.  Þú ert alltaf á ferðinni kona. Smjúts.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.7.2007 kl. 02:33

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Frábær mynd og enn frábærari hugmynd að smella í brúðkaup!

Guðríður Haraldsdóttir, 3.7.2007 kl. 13:51

4 Smámynd: Guðrún Helgadóttir

já gott brúðkaup er alltaf með betri viðburðum - ég er svolítið fyrir að þau komi á óvart... Við eigum góða vini sem voru fyrir löngu að gantast með að gifta sig þegar 9. nóvember bæri uppá laugardag - svo stendur það bara skýrum stöfum á almanakinu eitt haustið. Um miðjan nóvember áttum við vinirnir okkur á því að það stendur ekkert til hjá skötuhjúunum og við sem vorum búin að sjá brúðkaup í hillingum! Svo við bara giftum þau þeim að óvörum (að vísu með platpresti) héldum veislu og alles. Þau eru enn saman, létu meira að segja gefa sig saman í alvöru á endanum.

Guðrún Helgadóttir, 3.7.2007 kl. 15:18

5 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Já stelpur mínar A-J-G, það er dáldið skemmtilega bjart yfir henni, hún er reyndar yfirlýst eða eitthvað (er svo lítið inni í þessu) en hún er mjög krúttleg en kemur ekki eins vel út á blogginu mínu.

Guðrún, þetta er frábær saga. Það ætti kannski að vera meira af svona platbrúðkaupum, það gæti bæði verkað sem prufa á kærleikann og líka sálrænt.

Edda Agnarsdóttir, 3.7.2007 kl. 19:34

6 Smámynd: Páll Jóhannesson

Góða skemmtun. kv Palli

Páll Jóhannesson, 4.7.2007 kl. 10:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband