Leita í fréttum mbl.is

NORÐURLJÓSABLÚS 2008

Ég var á Höfn í Hornafirði um helgina á blúshátíðinni Norðurljósablús og skemmti mér konunglega. Ótrúlegt að svona lítill staður eins og Höfn er skuli hafa fundið upp á þessu og það um miðjan vetur. Þeir héldu hátíðina í þriðja skiptið núna og buðu upp á tólf hljómsveitir.

Ég sá fjórar af þessum tólf ein var að vísu farin af staðnum þegar ég kom. Danska sveitinn Öernes Blues Band spilaði á Hótel Höfn á föstudagskvöldið og voru þeir með þeim eldri af öllum spilurum eða á mínum aldri. Þeir hafa spilað saman í 23 ár og voru rosalega góðir, mjög þéttir og spiluðu músík sem er ekki ný á nálinni, svona eins og Jimmy Reed, Allman Brothers, Jimi Hendrix Freddie King og Robert Johnson. Undir þeirra spilamennsku leið mér vel og fann fyrir nostalgíunni flæðandi.

Á eftir dönsku sveitinni kom íslenskt  band, Hulda Rós og Rökkrtríóið. Hulda hefur gullfallega rödd og ég hlustaði á hana taka þrjú lög og svo dreif ég mig heim í háttinn.

Segi ykkur meira frá þessu í kvöld - er að fara í leikfimi.

Get þó bætt því við að ADHD 800 spiluðu dagin áur en ég kom og voru þrusugóðir, enda ekki við öðru að búast með Davíð Þór Skagamann á hljómborði, bræðurna Óskar og Ómar Guðjónssyni á saxa og gítar, og Magnús Tryggvason á trommur. Þeir höfðu heimsótt skólanna um daginn og spilað um kvöldið og gert mikla lukku. Þeir voru víst meira jazzaðri en blúsaðir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þarna hefði verið gaman að vera.  Knús.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.3.2008 kl. 16:13

2 Smámynd: Kolgrima

Skemmtilegt að hafa svona hátíð á Höfn og frábært hjá ykkur að skella ykkur austur

Kolgrima, 3.3.2008 kl. 16:18

3 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

SKOOO! Þú ert nú meiri stuðkerlingin, þrátt fyrir að vera komin yfir fertugt. Skyldi Catherine Zeta-Jones, þú ekki full gömul til að vera djamma svona feitt, og það austur á Höfn í Hornafirði.

Ég segi nú bara svona!

En í alvöru, hefi ég viljað vera með þér þarna. Party Time 





Ingibjörg Friðriksdóttir, 3.3.2008 kl. 19:54

4 Smámynd: Páll Jóhannesson

Get vel trúað því að það hafi verið stuð á Höfn. Á höfn býr gott fólk það þekki ég af eigin raun.

Páll Jóhannesson, 3.3.2008 kl. 20:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband