Leita í fréttum mbl.is

Barnabók um brjóstastækkun

bilde 
Gagnrýnendur segja barnabókina stuðla að útlitsdýrkun meðal barna.

Bandarískur lýtalæknir sætir gagnrýni fyrir að gefa út barnabókina „Fallega mamma mín" sem fjallar um brjóstastækkanir, fitusog og aðrar lýtaaðgerðir.
Dr. Michael Salzhauer, fimm barna faðir, skrifaði bókina til að útskýra lýtaaðgerðir fyrir börnum, svo að þau verði ekki fyrir áfalli ef foreldrar þeirra láta flikka upp á útlitið.

Bókin fjallar um litla stelpu sem á mömmu sem undirgengst stórfelldar fegrunaraðgerðir. Móðirin segir henni frá öllu ferlinu og litríkar myndskreytingar sýna afraksturinn. - sgj

 

Tekið af visir.is í dag! EA.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Blessuð börnin. Það er ábyggilega erfitt að eiga það á hættu að fá gjörbreytta móðir heim, en er þetta nú ekki too much??

Ásdís Sigurðardóttir, 1.6.2008 kl. 13:40

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Það átti nú að standa þarna neðanmáls líka frá mér: Þar kom að því - hvað finnst ykkur um þetta?

Það hefur þótt gott að fá útskýringarbækur í sögulegu formi fyrir börn um dauðann, fæðingu, slys og veikindi. En nú er spurning hvernig á að útskýra þetta, kannski er þetta leiðin, ég bara veit það ekki, mér finnst þetta gerfilegt og ælulegt.

Edda Agnarsdóttir, 1.6.2008 kl. 14:03

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Mér finnst þetta ekki mikið akútmál, þe að gefa út bók um þennan fáránleika tilverunnar.  Ansi margt annað sem liggur meira á. 

Rosalega óttast ég þessa útlitsdýrkun.

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.6.2008 kl. 15:06

4 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Þetta er dæmigert fyrir "einkaframtakið" veifa namminu framan í börnin svo börnin reki nú ljótu foreldrana sína í lýtaaðgerðir það er svo leiðinlegt að eiga svona ljóta foreldra, og afþví það er svo erfitt, eða seinlegt,  að skipta foreldrunum út fyrir nýja. -  Þá er þetta aðferðin. - Lýtaaðgerð - Það er svo miklu skemmtilegra að mamma líti út eins og A. Jolie og pabbi eins og Brad Pitt, eða öfugt.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 1.6.2008 kl. 16:05

5 identicon

Kemur nokkuð á óvart núorðið þegar Ameríka á í hlut?

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 1.6.2008 kl. 23:21

6 identicon

Ég á ekki til eitt einasta aukatekið orð! Sýnir manni að veruleikinn þarna úti er fremur skrýtinn.

Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 2.6.2008 kl. 13:10

7 Smámynd: Hlynur Hallsson

Ég held að "útskýringarnar" í þessari bók séu heldur ekki alveg hlutlausar. Afar ósmekkleg bók, toppar allt. Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 2.6.2008 kl. 13:27

8 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Og hún er svo sæt, svo sæt að það er algjört met.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 2.6.2008 kl. 14:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband