2.7.2008 | 11:48
Konur í æðstu stöður, en konur hverra?
Hanna Birna Kristjánsdóttir hefur slegið í gegn um þessar mundir. Hún er skelegg og kemur vel fyrir. Ekki hef ég kynnt mér náið það sem hún vinnur innan borgarstjórnar, en það sem almenningur hefur til hliðsjónar af fólki í pólitík er aðallega það sem það fær að sjá í fjölmiðlum. Það sem ég hef séð til hennar hugnast mér ágætlega nema hún er ekki í sama flokki og ég.
Hvernig ég merki það?
Jú það er, ákveðni, framkoman, flugmælsk, lætur ekki kveða sig í kútinn og hefur útlitið með sér, og þá er ég hvorki að tala um ytri né innri fegurð því það þekki ég ekki.
Hún er flott og greinilega smekkkona á tau og heimili og svo má ekki gleyma því að hún er góð vinkona Ásdísar Höllu!
Þarna sjáið þið, þetta er það sem ég veit um hana.
En hvað er það við pólitíkina sem fer svo leynt fyrir almenningi og er haldið frá almenningi meðvitað?
Jú jú ég veit, þú getur skoðað allt um þetta á netinu og þú mátt mæta á fundi og líklega geturðu hlustað á þá á netinu!
Af hverju er ekki hægt að setja glassúr á pólitíkina og vekja þannig upp forvitni, ja, eigum við ekki bara að segja kúnnans eða neytandans?
Getur Dr. Gunni ekki verið líka á neytendavaktinni í pólitíkinni?
Konur ánægðari með Hönnu Birnu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Feminístar
Grá Gautaborg og víðar
- Feminístar Steinunn frænka og fl.
Stjórnmálin
Alþingismenn, bæjar-og sveitarstjórnarmenn og áhugafólk
- Össur Varaformaður Samfylkingarinnar
- Oddný Sturludóttir Oddný er borgastjórnarfulltrúi Samfylkingarinnar
- Ásta R. Jóhannesdóttir Samflokksmaður og gamall vinur
- Annna Kristín Gunnarsdóttir Skipar 3. sæti NV-landi fyrir X-S
- STEINUNN VALDÍS Feministi og pólitískur vinur
- http://
Fjölskylda
Börn, tengdabörn og barnabörn.
- Þór Birgisson Örverpið mitt.
- Sindri Birgisson Sonur minn, leiklistarneminn.
Bloggvinir
- jenfo
- jonaa
- kolgrima
- annaeinars
- krummasnill
- draumur
- heg
- ringarinn
- olapals
- christinemarie
- gudrunkatrin
- sunnadora
- helgamagg
- gisgis
- svanurg
- pallijoh
- olinathorv
- skordalsbrynja
- lillagud
- hlynurh
- siba
- fridust
- gurrihar
- rosa
- annriki
- heidathord
- ingolfurasgeirjohannesson
- ragnhildur
- gisliivars
- stormur
- ragnarfreyr
- jakobk
- hjolaferd
- ingasig
- reni
- arnalara
- alfholl
- fridaeyland
- soley
- toshiki
- korntop
- kallimatt
- saxi
- bryndisfridgeirs
- hugsadu
- astabjork
- kiddip
- skaftie
- thor
- huldam
- annaragna
- fjola
- kloi
- hronnrik
- manisvans
- brandarar
- truno
- vefritid
- samfo-kop
- para
- gattin
- adhdblogg
- tryggvigunnarhansen
Athugasemdir
"Jú það er, ákveðni, framkoman, flugmælsk, lætur ekki kveða sig í kútinn og hefur útlitið með sér" mér finnst þetta hljóma eins og bein lýsing á mér þegar ég er upp á mitt besta. Það er fullt til af okkur flottu konunum út um allt land, við verðum bara að segja fólki frá því. Kær kveðja og knús til þín.
Ásdís Sigurðardóttir, 2.7.2008 kl. 12:23
Mér finnst hana vanta allan sjarma. Ef hún og Gísli Marteinn væru hjón, myndum við alveg vita hver væri karlinn í sambandinu. Ég fyrir mína parta hefði valið Júlíus Vífil ef ég væri í Sjálfstæðisflokknum, en þar sem ég er það ekki, þá hef ég ekkert um það að segja.
En mér finnst Hanna Birna frekar frekjuleg á að líta, klæðir sig skammlaust og er oftast tilbúin í stríðið. Hana vantar að mínu viti, allan kjörþokka sem er svo ríkt í bæði Degi svo ég tali ekki um Stefáni Jóni. (Var aldrei hrifin af ST. V. heldur. En nafna mín hefur þokkann, hún er ákveðin, en hefur glimtið í öye.
Ég er óforbetranlegur vinstrisinni og sætti mig ekki við neitt annað fyrir mig og mína parta.
Ingibjörg Friðriksdóttir, 2.7.2008 kl. 12:56
Ég fagna alltaf góðu gengi kvenna en ég hef alvarlegar áhyggjur af því hvað íhaldið er að bardúsa í velferðarmálum borgarinnar.
Jórunn Frímannsdóttir er ekki kona sem ég treysti.
En Hanna Birna er skeleggur pólitíkus en hún er í kolröngum flokki og ég á þá ósk heitasta að meirihlutinn fara frá.
Enda siðlaust að halda þessu gangandi með fárveikann mann innanborðs.
Jenný Anna Baldursdóttir, 2.7.2008 kl. 13:17
Ég hef ákveðnar efasemdir um notkun á orðinu "frekja" eða að vera "frekur" - það er nánast aldrei notað yfir karlmenn:
Er þá orðið frekja, frekur og frekjuleg til vansa? Þannig er ég í það minnsta alin upp við orðið. Karlmenn sm tala svona eins og Hann Birna eru aldrei frekjur, það er stundum sagt að þeir séu frekir á orðið en aldrei frekjulegir. Hvað segið þið um það?
Edda Agnarsdóttir, 2.7.2008 kl. 15:05
Er sammála þér Edda, finnst Hanna Birna mjög frambærilegur pólitíkus, en ekki í sama flokki og við, en ég vildi gjarnan hafa hana innanborðs. Hún á ættir að rekja til Neskaupstaðar, já hún er frekja!
Hulda Elma Guðmundsdóttir, 2.7.2008 kl. 15:59
Ójú, Edda, karlmenn fá oft og iðulega á sig þann stimpil, að þeir séu frekir og til viðbótar, hrokafullir. Svo hef ég oftar en ekki rekið mig á að fólki hættir til að rugla saman ,,ákveðni" og ,,frekju."
Að auki dreg ég mjög í efa að Hanna Birna sé frambærilegur pólitíkus nema í meðallagi. Stjórnmálamenn sem virka skapvondir eru sjaldnast uppá marga fiska þegar upp er staðið.
Jóhannes Ragnarsson, 2.7.2008 kl. 18:26
Aha Jóhannes, ég þarf nú að fá að vita meir, hefurðu séð hana skapvonda?
Já Hulda það eru margir frekir á Neskaupsstað - annars hefði staðurnn ekki svona merka pólitíska sögu!
Edda Agnarsdóttir, 2.7.2008 kl. 20:59
Hanna Birna virkar á mig sem hún fari alltaf öfugumegin fram úr rúminu. Og á mínu heimili er jafnt talað um karla og konur sem frekjur; nema kannski karlarnir fá alltaf forskeytið helvítis og viðskeytið pungur á eftir.
Ingibjörg Friðriksdóttir, 2.7.2008 kl. 21:21
Hahahahah Skamm skamm Imba! Það er ekki annað hægt en að springa úr hlátri - góð!
Edda Agnarsdóttir, 2.7.2008 kl. 21:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.