23.7.2008 | 12:07
Framkvæmdir
Hér á bæ er mannurinn sá eini sem nennir að gera eitthvað. Hann ryksugar, eldar mat, smíðar glugga, málar, festir upp rör fyrir útblástur úr sturtu, slær garðinn þvær bílinn, teiknar eldhúsinnréttingu og nú erum við á leiðinni í bæinn, það er hin svokallaða borg, að kaupa eitt stykki eldhús í IKEA.
'Ég er auðvitað voða glöð - allt fylgir með sko allar græjur eins og ísskápur, uppþvottavél, kaffivél, ísskápaskúffur, spam helluborð, örbylgju/bakaraofn með hitaskúffu og svo venjulegur bakaraofn!
Ég held ég sé búin að telja allt upp!
Mannurinn spurði mig gær hvort ég yrði eitthvað ánægðari í lífinu við þetta?
Ég svaraði að það væri ég nú ekki viss um - kannski pínulítið.
Þá lyfti hann upp vísifingri og þumalputta og setti þá saman eins og þegar maður smellir fingrum, skildi samt rifu eftir og sagði; kannski svona lítið?
Annars er ég sæmileg.
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Feminístar
Grá Gautaborg og víðar
- Feminístar Steinunn frænka og fl.
Stjórnmálin
Alþingismenn, bæjar-og sveitarstjórnarmenn og áhugafólk
- Össur Varaformaður Samfylkingarinnar
- Oddný Sturludóttir Oddný er borgastjórnarfulltrúi Samfylkingarinnar
- Ásta R. Jóhannesdóttir Samflokksmaður og gamall vinur
- Annna Kristín Gunnarsdóttir Skipar 3. sæti NV-landi fyrir X-S
- STEINUNN VALDÍS Feministi og pólitískur vinur
- http://
Fjölskylda
Börn, tengdabörn og barnabörn.
- Þór Birgisson Örverpið mitt.
- Sindri Birgisson Sonur minn, leiklistarneminn.
Bloggvinir
- jenfo
- jonaa
- kolgrima
- annaeinars
- krummasnill
- draumur
- heg
- ringarinn
- olapals
- christinemarie
- gudrunkatrin
- sunnadora
- helgamagg
- gisgis
- svanurg
- pallijoh
- olinathorv
- skordalsbrynja
- lillagud
- hlynurh
- siba
- fridust
- gurrihar
- rosa
- annriki
- heidathord
- ingolfurasgeirjohannesson
- ragnhildur
- gisliivars
- stormur
- ragnarfreyr
- jakobk
- hjolaferd
- ingasig
- reni
- arnalara
- alfholl
- fridaeyland
- soley
- toshiki
- korntop
- kallimatt
- saxi
- bryndisfridgeirs
- hugsadu
- astabjork
- kiddip
- skaftie
- thor
- huldam
- annaragna
- fjola
- kloi
- hronnrik
- manisvans
- brandarar
- truno
- vefritid
- samfo-kop
- para
- gattin
- adhdblogg
- tryggvigunnarhansen
Athugasemdir
vá greinilegt að þú býrð með orkubolta.... svo er nú alltaf gaman að fá nýtt eldhús...til lukku.
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 23.7.2008 kl. 12:48
Þú virkar nú þannig á mig að þú sért yfirleitt í góðu skapi. Þannig fólk er miklu mun erfiðara að gera ánægðara en það er.
En þú heppinn með mann, þetta er sannalega "einn með öllu". ekki nema von að þú sért alltaf glöð og kát.
Til lukku með nýja sænska eldhúsið.
Anna Þóra Jónsdóttir, 23.7.2008 kl. 13:10
Mannurinn er krútt. Get ég fengið hann lánaðan? Vantar að láta dytta að einu og öðru. Tónlistarmaðurinn sem ég er gift notar ekki fingurnar í sollis. Spilar bara á hljóðfæri.
Fékkstu meil?
Jenný Anna Baldursdóttir, 23.7.2008 kl. 13:19
Þetta er frábært, Edda Til hamingju með eldhúsið sem þú ert um það bil að fá - og svo gleymdirðu fiskisúpunni í upptalningunni
Kolgrima, 23.7.2008 kl. 13:26
Sunna Dóra Möller, 23.7.2008 kl. 14:37
Takk fyrir innlitið ljúflingar.
Var að koma úr borginni. Þetta tekur sko sinn tíma - en við erum búin að ganga frá öllu. Þetta verður ægilega flott og fínt, ætli ég taki ekki eina mynd af gamla eldhúsinu og sýni ykkur og svo seinna af því nýja!
Fer bloggvinarúntinn á eftir.
Edda Agnarsdóttir, 23.7.2008 kl. 19:11
Heyrðu, færðu ekki kokk með líka??? annars er Anna Þóra að misskilja þetta, það er svo rosalega auðvelt að gleðja okkur síkátu konurnar, allavega á það við í mínu tilviki og alveg er ég viss um að það er eins með þig, húsböndin okkar þurfa ábyggilega ekki nema rétt að brosa til að við gleðjumst. Hlakka til að sjá fyrir og eftir.
Ásdís Sigurðardóttir, 23.7.2008 kl. 19:30
Jenný ég er búin að fá mail og búin að senda til baka!
Edda Agnarsdóttir, 23.7.2008 kl. 19:41
Hí, hí, ég meinti þetta nú þannig að það væri erfiðara að kæta kátan ( af því að hann /hún væri það allready) ...svona alveg eins og að gylla gull. Ef þú ert mjög ánægður almennt þá þarf heilmikið til að kæta þig meira.......skilur einhver hvað ég er að meina
Anna Þóra Jónsdóttir, 23.7.2008 kl. 20:14
Jú, nú skil ég þig mín kæra.
Ásdís Sigurðardóttir, 23.7.2008 kl. 20:24
Til lukku með manninn, sem er algjörlega svona eintak sem ætti að vera til á hverju heimili, og allt nýja dótið.
Helga Magnúsdóttir, 23.7.2008 kl. 20:33
Hvar fást svona karlar?
Hulda Elma Guðmundsdóttir, 23.7.2008 kl. 21:12
Ég mundi gefa gull að hafa bara hálfan,bið ekki um meira.
Sigurbjörg Sigurðardóttir, 23.7.2008 kl. 23:55
Sæl Sigurbjörg mín. Ertu búin að samþykkja mig? Geturðu ekki farið á skiptimarkaðinn?
Hulda, bara prófa "Hjá vondu fólki"!
Takk fyrir Helga.
Edda Agnarsdóttir, 24.7.2008 kl. 15:12
Til hamingju með framkvæmdirnar.
Flott nýja myndin þín sæta kona.
Marta B Helgadóttir, 24.7.2008 kl. 16:54
Takk fyrir Marta mín.
Edda Agnarsdóttir, 24.7.2008 kl. 19:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.