12.7.2007 | 00:14
Himinn og haf
er nafn á listsýningu hér á Akranesi. Sýnendur eru allt konur sem búa hér eða hafa sterk tengsl við staðinn. Þetta er sölusýning og er í heimahúsi eða n.t.t. að Bakkatúni 20 300 Akranesi ekki langt frá Bióhöllinni.
Konurnar kalla sig Glöggar systur.
Ein kvennanna sem málar myndir í vatnslit af Akrafjalli býr í Bakkatúni, hún heitir Jóhanna Leópoldsdóttir.
Dýrfinna Torfadóttir er landsþekkt fyrir smíði sína á skarti og reyndar skúlptúrum, hún kom hingað fyrir nokkrum árum frá Ísafirði og hefur haft vinnustofu á safnasvæðinu.
Margrét O. Leopoldsdóttir vinnur með textilþrykk á hör sem eru forkunnar fallegir dúkar og löberar.
Lára Stefánsdóttir varaþingmaður og bloggari sýnir ljósmyndir en hún hefur gefið út bók með myndum sínum skreytt með ljóðum manns hennar.
Kristín S. Garðarsdóttir er leirlistar- og glerlistarkona, hún hefur m.a. gert svokölluð veltiglös sem hægt er að kaupa m.a. í fríhöfninni - mjög sérstök.
Síðust er svo Sigrún Skarphéðinsdóttir, hún vinnur með vefnað og eru borðmottur með trjágreinum ofnar í eða með tauvefnaði áhugavert og notagildið er margvíslegt.
Nú getið þið allir bloggvinir mínir meldað ykkur á Skagann og ég tek á móti ykkur og leiðsaga ykkur ef þið viljið!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
11.7.2007 | 12:47
Marengsterta og alles
Ég er búin að vera svo dugleg, bjó til stóra marengs í skúffukökustærð í gærkvöldi og er að baka núna múffur og bananabrauð! Allt á fullu fyrir hana Söndru mína. Þetta verður eins og 70 ára afmæli fyrir barnið. Kona fyrrverandi mannsins míns kemur með köku osta og brauð og Heiða er búa til eitthvað sérdeilis gott pastasalat handa þeim sem eru svangir.
Annars eins og þið sjáið að þá standa konur einungis að þessu miðað við færsluna en karlmennirnir eru nokk lúmskir í aðstoð og minn bakar mjög oft og líka fyrrverandi! Hahaha
Þið megið fá vatn í munninn og smjatta
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
10.7.2007 | 21:00
Við erum greinilega ekki lengur lítil eyja norður í ballarhafi.
Með auknum tengingum og samgöngum verður að horfast í augu við það neikvæða sem fylgir því að ná því að vera eftirsóttur blettur á heimskortinu. Það er sem betur fer fullt af jákvæðum hlutum sem fylgir því að vera í hnattrænu sambandi en það sorglegast af öllu er VÆNDIÐ.
Hver tekur á þessu lögreglan eða er hægt að fela þetta eins og ýmislegt annað innan ramma laganna?
![]() |
Rússnesk vændiskona send til Íslands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
10.7.2007 | 16:05
Afmælisveisla heima hjá Heiðu frænku.
Sandra María Högnadóttir elsta barnabarnið mitt verður 13 ára 2. ágúst. Nú er hún á Íslandi og við ætlum að halda upp á afmælið hennar á morgun heima hjá Heiðu dóttur minni. Þá hittir Sandra eitthvað af skyldmennum sínum á Íslandi sem hún þekkir ekki mikið.
Sandra María 1. júlí 2007
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.7.2007 | 12:54
Arnór Skagamaður.
Arnór Smárason (Gulluson)sem ég kynntist árið 1991 á Leikskólanum Garðasel á Akranesi í gegn um drengina mína tvo sem voru með honum á leikskóla er komin í atvinnumennsku í fótboltanum.
Gulla mamma hans var leikskólakennarinn á deildinni og síðan þá hafa Arnór og Þór yngsti sonur minn verið samsíða í alla sína grunnskólatíð utan síðustu árin þegar Arnór flutti til Hollands.
En nú er litli/stóri strákurinn komin í úvalsdeildarfélag í hollenska boltanum. Bravó Arnór og til hamingju.
Kann því miður ekki að setja myndina inn sem fylgir fréttinni - alltaf í vandræðum með þessar myndir.
![]() |
Arnór með atvinnusamning hjá Heerenveen |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
9.7.2007 | 21:38
Sumar og deyfð á blogginu
eða bara sumarfrí? Ég finn fyrir því að fólk sem bloggar er á faraldsfæti og bloggið hefur minnkað all verulega. Ég hef líka fundið fyrir leti og finnst stundum erfitt að blogga í svona góðu veðri, en ég verð að viðurkenna að mér finnst samt skemmtilegt að lesa á blogginu. Það gæti orðið erfitt að lesa eitthvað ef allir færu í sumarletikast eða sumarfrí. Þess vegna er ég svo heppin að Jenný bloggar alltaf og nokkrir fleiri. En ef það er leti sem hrjáir manninn er ekki svo vitlaust að leita eftir einhverju um letina. ´
Í bók Gunnars Hersveins Gæfuspor ritar hann kafla um letina. Þar telur hann upp viðfang letinnar eins og leti er löstur, letinginn er bykkja, draugur og silakeppur. En í upphafi kaflans segir hann: "Að afrek letinnar er að koma í veg fyrir að maður geti öðlast það sem skiptir máli í lífinu".
Niðurlag kaflans segir: "Letin kemur líka í veg fyrir að menn vinni bug á fordómum. Það er miklu léttara að þylja upp vitleysuna eftir öðrum eða það sem oftlega heyrist heldur en að leggja á sig það erfiðiað mynda sér eigin skoðanir. Það kostar átak sem hvarflar ekki að letingjanum."
Þetta á maður nú oft við að stríða!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
8.7.2007 | 12:09
Myndirnar sem ekki komu
Því miður elskurnar tókst mér ekki í gær að koma mynunum inn á bloggið. Var búin að raða 12 myndum samviskusamlega inn á bloggið en varð að fjarlægja færsluna - allt í rugli og myndir yfir hverja aðra til hálfs og röðunin öll á ská og skjön. Veit ekk hvort ég reyni aftur. Set eina núna til gamans - það ætti allavega að takast.
skjáumst!
Hverjir eru þetta?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.7.2007 | 12:24
Írskir dagar
Ég fór út í búð í gær og keypti írska fánann og tvö flögg, írska húfu/hatt og nokkrar blöðrur og nú á að skreyta úti. Ég er á leiðina í búðina að kaupa mér á sameiginlegt grill, tveggja götu grill.
í dag er margt í boði. Fyrst ber að nefna sýningu Glöggra systra kl.13 sem er gullsmíði, leirverk, myndlist og handverk fjögurra kvenna og er Dýrfinna Torfadóttir ein þeirra, önnur er Jóhann Leópoldsdóttir sem málar myndir og systir hennar með frábært handverk.
Í Akraneshöllinni verður markaður. Tívolí á íþróttasvæðinu. Opnunarhátíðin verður kl. 14 í mibænum. Þar geta allir fengið lánað reiðhjól og hjólað um bæinn. Svo koma Bína og Búri í heimsókn, þekki þau ekki en vonandi verður eins gaman að kynnast þeim og nöfnin bera með sér. Svo verður ljósmyndasýning, lúðra sveit frá gömlu heimaborginni minni Aarhus, , Jónsi, víkingar, siglingakeppni unglingaball, Celtic Songfest, Dean Ferrell með tónlistargjörning og að lokum í kvöld eru Stuðmenn fyrir alla fjölskylduna.
Drífið ykkur bara elskurnar - það er stuð á Skaga!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
5.7.2007 | 03:12
Persónuupplýsingar án leyfis.
Rannsóknin "Langtímaáhrif ráðgjafar um getnaðarvarnir á óráðgerða þungun og notkun getnaðarvarna meðal kvenna sem farið hafa í fóstureyðingu"
Er ég eitthvað skrýtin eða hvað, ég er bara ekki alveg að fatta nafnið á rannsókninni ? Er ekki einhver með betri fattara en ég?
Fyrir nú utan það að ég er nú lika svo glær að ég hélt að engum dytti til hugar að reyna að komast í persónugögn án þess að fá fyrst og fremst leyfi hjá viðkomandi persónu. Það er líka alvarlegt mál ef Landlæknisembættið afhendir gögn áður en leyfi er fengið frá Persónuvernd. Þetta átti að vera framhaldsrannsókn frá 1999 um sömu konur og þá, þar sem öll gögn átti að eyðileggja eftir þá rannsókn - ég held stundum að það vanti upp á siðgæðisvitund, allt á að vera svo jollý jollý - púh
Ja það er eins gott að persónuvernd gæti hagsmuna almennings eða skjólstæðinga Landlæknisembættisins eins og í þessu tilfelli.
![]() |
Fær ekki að veita aðgang að upplýsingum úr fæðingaskrá og um fóstureyðingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.7.2007 | 00:15
Súpan góða
Þetta tókst allt vel í dag með gestina, en þeir urðu heldur fleiri. Hér sátum við ellefu saman út undir berum himni og borðuðum súpu sem hefur ekkert nafn, uppskriftina ætla ég samt að koma frá mér hér á bloggið svo ég muni sjálf hvernig þetta var síðar meir.
Í eftirrétt var ís með þeyttum rjóma og kirsuberjum, bláberjum og jarðaberjum. Nokkrir bættu sírópi út á. Svo var auðvitað kaffi og norskt súkkulaði (Freia Firklover með hnetum) á boðstólum sem önnur mágkona mín kom með frá sínum heimaslóðum í Bergen eða Björgvin.
2 l vatn
Kjúklingabringur (ef vill)
2 dósir kokósmjólk
2 krukkur Satay sósa (200gr krukka)
Lítill blómkálshaus
Svipað af brokkolí
Hálfur til einn poki af litlum gurótum
Einn blaðlaukur
Ein sæt kartafla
Steinselja eftir smekk
Salt og pipar
Einn grænmetisteningur
Einn kjúklingateningur
Vatnið sett yfir og allt grænmetið niðurbrytjað sett út í nema steinseljan. Saltað og piprað eftir smekk og teningarnir settir út í. Soðið í 10 mínútur. Ferskum kjúklingabringum bætt við í bitum, soðið saman 15 til 20 mínútur í viðbót. Kókósmjólkinni og Satay sósunni er líka bætt í og látið malla með . Steinseljan bætt við rétt undir lokin.
Það er líka hægt að nota afganga af kjúklingi frá deginum áður. Ég var með hluta af afgangi og hluta af ferskum í kvöld. Þessi súpa var bara æði.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Feminístar
Grá Gautaborg og víðar
- Feminístar Steinunn frænka og fl.
Stjórnmálin
Alþingismenn, bæjar-og sveitarstjórnarmenn og áhugafólk
- Össur Varaformaður Samfylkingarinnar
- Oddný Sturludóttir Oddný er borgastjórnarfulltrúi Samfylkingarinnar
- Ásta R. Jóhannesdóttir Samflokksmaður og gamall vinur
- Annna Kristín Gunnarsdóttir Skipar 3. sæti NV-landi fyrir X-S
- STEINUNN VALDÍS Feministi og pólitískur vinur
- http://
Fjölskylda
Börn, tengdabörn og barnabörn.
- Þór Birgisson Örverpið mitt.
- Sindri Birgisson Sonur minn, leiklistarneminn.
Bloggvinir
-
jenfo
-
jonaa
-
kolgrima
-
annaeinars
-
krummasnill
-
draumur
-
heg
-
ringarinn
-
olapals
-
christinemarie
-
gudrunkatrin
-
sunnadora
-
helgamagg
-
gisgis
-
svanurg
-
pallijoh
-
olinathorv
-
skordalsbrynja
-
lillagud
-
hlynurh
-
siba
-
fridust
-
gurrihar
-
rosa
-
annriki
-
heidathord
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
ragnhildur
-
gisliivars
-
stormur
-
ragnarfreyr
-
jakobk
-
hjolaferd
-
ingasig
-
reni
-
arnalara
-
alfholl
-
fridaeyland
-
soley
-
toshiki
-
korntop
-
kallimatt
-
saxi
-
bryndisfridgeirs
-
hugsadu
-
astabjork
-
kiddip
-
skaftie
-
thor
-
huldam
-
annaragna
-
fjola
-
kloi
-
hronnrik
-
manisvans
-
brandarar
-
truno
-
vefritid
-
samfo-kop
-
para
-
gattin
-
adhdblogg
-
tryggvigunnarhansen